SKÝRSLAN: Öruggur Blikasigur í Eyjum
Hvað réði úrslitum?
Blikastelpur voru einfaldlega betri í þessum leik og voru með algjöra yfirburði sérstaklega í fyrri hálfleik. Þær skora þrju góð mörk í fyrri hálfleik og hefðu getað gert fleiri. Eyjakonur bitu þó frá sér í síðari hálfleik en það var bara of seint.
Bestu leikmenn
1. Líf Joostdóttir Van Bemmel
Var frá frábær í kvöld. Var allt í öllu í sóknaleik Blika og það fór mikið í gegnum hana. Skoraði eitt og lagði upp eitt.
2. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
Skoraði tvö flott ekta framherja mörk í kvöld og var mjög öflug í uppspili Blikakvenna.
Atvikið
Ekkert atvik í raun sem kemur upp í kollinn eftir leik en Blikar skora tvö mörk með stuttu millibili sem gerir í raun út um leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar fara á toppinn með 21 stig, tveimur stigum meira en FH, sem eiga leik til góða. Eyjakonur eru í fjórða sæti með 14 stig og hafa ekki unnið í síðustu fimm leikjum í deildinni.
Vondur dagur
Ragna Sara Magnúsdóttir og Edda Dögg Sindradóttir hafa átt betri daga og áttu erfitt uppdráttar gegn frískum Blikum. Voru báðar teknar útaf í hálfleik.
Dómarinn - 7
Fínn leikur hjá Stefáni. Eitt og eitt sm hægt væri að pikka út en ekkert sem skipti miklu máli.



