Fotbolti.net
Besta deildin
Ívar Björgvinsson
Besta karla
Meistaravellir
KR
KR
5 - 3
ÍA
ÍA
0 - 112' Ísak Máni GuðjónssonArnór Ingvi Traustason 15'1 - 11 - 216' Ómar Björn StefánssonLuke Morgan Conrad Rae 32'2 - 2Aron Sigurðarson 61'3 - 23 - 364' Rúnar Már S SigurjónssonAron Sigurðarson 83'4 - 3Eiður Gauti Sæbjörnsson 95'5 - 3
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 1407
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Helgi flautar þetta strax af!
Þvílíkum átta marka leik lokið. Þetta var mikil skemmtun sem endar með sigri heimamanna.

Skýrsla og viðtöl væntanleg.

Ég þakka fyrir mig.
KR
95. mín
ÞETTA ER BÚIÐ!!!

Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Aron Sigurðarson)

KR-ingar keyra í skyndisókn gegn verulega fáliðuðum Skagamönnum og Galdur gefur á Aron sem rennir boltanum á Eið sem klárar í nánast autt markið.

KR að klára þetta!
95. mín
KR-ingar hreinsa
95. mín
ÍA fær horn og Jón Sölvi er mættur
93. mín
DAUÐAFÆRI!!!!
ÍA menn svo nálægt því að jafna.

Gabríel Snær fær dauðafæri inni í miðjum teig KR eftir bolta frá Rúnari en setur boltann í þverslánna og yfir markið.

Var þetta síðasti sénsinn?
92. mín
KR-ingar nálægt því að bæta við
Ástbjörn rennir boltanum á Alexander en Baldvin bjargar þessu.
90. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma
88. mín
ÞAÐ ER HITI
Ástbjörn er nýkominn inn á og bryjar strax með látum. Hann og Rúnar voru í baráttunni og Rúnar lendir með legginn framan í Ástbirni og KR-ingar ekki sáttir.
Helgi Mikael róar þetta hins vegar bara niður og gefur engum spjald.
KR
87. mín
InnÁstbjörn Þórðarson
ÚtAmin Cosic
Virðist hafa fengið krampa og er tekinn útaf.
86. mín
Amin er sestur og biður um aðhlynningu en þar sem Aron Sig liggur einnig á vellinum þarf Amin að láta Gabríel Hrannar sér duga.
ÍA
86. mín
Gult spjald

Rúnar Már S Sigurjónsson

84. mín
Skagamenn nálægt því að jafna strax!
Fá tvær hornspyrnur í röð, sú fyrri var stórhættuleg og sú síðari á fjærsvæðið þar sem Rúnar reyndi við bakfallsspyrnu en hitti ekki boltann.
KR
83. mín
4-3!!!

Aron Sigurðarson (stoðsending: Galdur Guðmundsson)

Fyrirliðinn aftur á ferðinni!!

KR-ingar héldu vel í boltann og spiluðu sig upp allan völlinn og Galdur fær boltann hægra megin við teig Skagamanna og finnur Aron í teignum sem neglir boltanum í fyrsta á nærstöngina.
ÍA
77. mín
InnGabríel Snær Gunnarsson
ÚtÍsak Máni Guðjónsson
Lárus Orri tekur enga sénsa með Ísak.
75. mín
Ísak Máni brýtur á Aroni Sig og fær tiltal frá Helga Mikael. Er líklega kominn á síðasta séns.
73. mín
Skagamenn að hóta!
Hornspyrna Gumma Tóta á nærstöngina sem Aron Sig skallar á fjærsvæðið beint á Rúnar sem skallar í varnarmann úr afbragðsfæri.
71. mín
Aron Sig!
Með gott skot af löngu færi sem Jón Sölvi ver í horn.
70. mín
ÍA menn fá fínasta færi sem Viktor Jóns skallar í stöngina.
ÍA
69. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtMarkús Páll Ellertsson
KR
69. mín
InnGaldur Guðmundsson
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
KR
69. mín
InnAlexander Rafn Pálmason
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
68. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST
Eiður Gauti að valda varnarmönnum ÍA usla og Amin fær boltann í teig Skagans og nær föstu skoti í nærstöngina og þaðan fer boltinn í Luke rae og útaf.
ÍA
64. mín
ÞETTA VAR ÓTRÚLEGT

Rúnar Már S Sigurjónsson

Rúnar Már tekur hornspyrnu beint á nærstöngina og einhvern veginn fer boltinn inn. Baldvin Berndsen var í barningi þarna á nærstönginni við Halldór og mark er niðurstaða.
Guðmundur Benediktsson í stúdíóinu veit ekkert hvort Rúnar, Baldvin eða Halldór Snær eigi að fá markið skráð á sig svo við veitum Rúnari það til þess að byrja með allavega.

Ótrúlegur sex marka leikur sem hættir ekki að gefa.
63. mín
Skagamenn fá fyrstu hornspyrnu síðari hálfleiksins sem þeir taka inn á teiginn og fá aðra í kjölfarið.
KR
62. mín
InnEiður Gauti Sæbjörnsson
ÚtStefán Árni Geirsson
KR
61. mín
ARON SIG!

Aron Sigurðarson (stoðsending: Gabríel Hrannar Eyjólfsson)

Frábær sending frá Gabríel sem lyftir boltanum í miðjan teiginn og Aron nær að stanga á boltann í netið framhjá Jóni Sölva.

Fyrsta korterið í síðari hálfleik var búið að vera afar rólegt en KR-ingar komnir yfir í fyrsta sinn í leiknum.
58. mín
Luke Rae með gott hlaup upp hægri kantinn en endar á að taka skot með vinstri fæti sem fer víðsfjarri markinu.
54. mín
Gísli Laxdal kemst framhjá Gabríel og kemur með fína fyrirgjög á teig KR sem Viktor rétt missir af.
53. mín
Gabríel með skot fyrir utan teiginn sem fer framhjá markinu.
KR
52. mín
Gult spjald

Arnór Ingvi Traustason

Missir boltann of langt frá sér og stoppar upphlaup ÍA strax í fæðingu.
50. mín
Amin með góðan sprett inn á teig Skagans og kemur með bolta fyrir sem fer í varnarmann og rakleiðis upp í loftið. Úr því fær Stefán Árni frían skalla við markteiginn en hittir ekki á markið.
48. mín
Góður bolti inn á teig KR sem Viktor Jóns nær að koma snertingu á en boltinn fer framhjá markinu.
46. mín
Halldór Snær búinn að rífa upp derhúfuna í marki KR sem vörn gegn ógnarsterkri kvöldsólinni.
ÍA
46. mín
InnRúnar Már S Sigurjónsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
46. mín
KR-ingar hefja síðari hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Frábær skemmtun sem þessi fyrri hálfleikur var sem róaðist þó aðeins eftir annað mark KR.

Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Gott spil KR-inga sem endar með skoti frá Amin úr góðri stöðu rétt fyrir utan teiginn en það fer rétt framhjá.
45. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
42. mín
Nú liggur Finnur Tómas eftir og þarfnast aðhlynningar. Virðist hafa fengið öxlina á Viktori Jónssyni í andlitið.
ÍA
41. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtJohannes Björn Vall
Vonandi er þetta ekki alvarleg tognun.
39. mín
Jóhannes Vall virtist togna í lærinu við að taka langa sendingu. Fær aðhlynningu en virðist þurfa að fara útaf.
39. mín
KR-ingar halda áfram að sækja og eru í leit að fimmta marki leiksins.
KR
32. mín
FRÁBÆRT MARK!!

Luke Morgan Conrad Rae (stoðsending: Arnór Ingvi Traustason)

KR-ingar spila sig upp allan völlinn úr markspyrnu. Halldór gefur á Hrafn sem gefur á Aron Sig sem keyrir framhjá einum varnarmanni og gefur á Arnór sem er nánast kominn inn fyrir vörnina en rennir honum á Luke Rae hægra megin sem klárar vel á nærstöngina.

Þvílíkur leikur sem við erum að fá, og já við erum svo sannarlega að fá markaleik.
28. mín
Dauðafæri sem Finnur Tómas fær en hann hittir boltann illa úr afbragðsstöðu eftir sendingu frá Arnóri Yngva.
27. mín
KR-ingar liggja á Skagamönnum þessa stundina
25. mín
Aron Sig!
Tekur frábæra aukaspyrnu á nærstöngina sem Jón Sölvi ver mjög vel. Annað horn sem KR fær.
ÍA
24. mín
Gult spjald

Ísak Máni Guðjónsson

Rífur í Luke Rae rétt fyrir utan teig Skagans.
23. mín
Jón Sölvi
Skot fyrir utan teiginn sem fer í Skagamann og breytir um stefnu en Jón Sölvi rétt nær að verja með fætinum.
23. mín
Fyrsta hornspyrna KR
Vel spilað hjá KR-ingum sem eru að banka. Orri Hrafn með góðan bolta inn fyrir á Luke Rae sem reynir að renna honum fyrir markið en aftur fyrir fer boltinn.
22. mín
Stefán Árni!
Skemmtileg hreyfing hjá Stefáni sem býr sér til smá skotpláss við teig Skagamanna og nær fínu skoti í fjærhornið sem Jón Sölvi ver vel.
20. mín
Akoto í brasi
Tapar boltanum á hrikalegum stað og Skagamenn eru að sleppa inn fyrir en Akoto sjálfur nær að redda sér á ögurstundu.
18. mín
Frábært hlaup frá Orra Hrafni sem stingur sér í gegnum vörn Skagamanna og kemur boltanum á Stefán sem setur boltann framhjá markinu úr fínasta færi.
ÍA
16. mín
ÚFF MISSKILNINGUR AFTAST HJÁ KR

Ómar Björn Stefánsson

Langur bolti inn fyrir vörnina hjá KR sem Gabríel Hrannar ætlar að skalla á Halldór en því miður fyrir KR-inga þá mætti Halldór boltanum og Gabríel skallaði boltann yfir Halldór en boltinn stefndi inn í autt markið þegar Ómar Björn potaði honum í netið.

Gerist ekki mikið auðveldara fyrir Ómar en vel gert þó að elta boltann alla leið.

Ja hérna hér.
KR
15. mín
MAAAARK!

Arnór Ingvi Traustason

Fær boltann frá Stefáni á hægri vængnum í gegn og neglir boltanum fast uppi í nærhornið úr fínu færi.

Þvílík byrjun.
ÍA
14. mín
Gult spjald

Erik Tobias Tangen Sandberg

Frábær hreyfing hjá Orra Hrafni sem labbar framhjá Erik sem stoppar hann og fær verðskuldað gult.
ÍA
12. mín
SKAGAMENN!!!

Ísak Máni Guðjónsson (stoðsending: Ómar Björn Stefánsson)

Ómar Björn rennir boltanum á Ísak Mána sem tekur hann glæsilega með sér í fyrsta og neglir boltanum á nærstöngina og Halldór ræður ekki við þetta.

Virkilega verðskuldað mark.
11. mín
Fyrsta færi KR!
Slæm sending í vörn Skagamanna sem Arnór Yngvi kemst inn í og lætur bara vaða rétt fyrir utan teiginn en Jón Sölvi grípur þetta.
8. mín
Baldvin nær skalla úr löngu innkasti sem fer rétt framhjá. Skagamenn liggja á KR þessar fyrstu mínútur.
7. mín
Ómar Björn bíður utarlega í teignum og fær boltann beint á sig úr horninu og nær föstu skoti sem fer í varnarmann.
7. mín
Skagamenn fá aðra hornspyrnu núna hinum megin.
6. mín
ENN EITT DAUÐAFÆRIÐ
Ísak Máni sleppur einn inn fyrir vörn KR en Finnur Tómas nær aðeins að stugga við honum og trufla skotið. Halldór ver engu að síður vel í markinu og enn ein hornspyrna sem ÍA fær.
5. mín
Skagamenn aftur!
Úr horninu nær Erik Tobias góðum skalla sem Aron Sig nær að bjarga á línu. Mark liggur í loftinu.
4. mín
Enn aftur vinna Skagamenn boltann og fá annað horn.
4. mín
SKAGAMENN
Halldór í markinu of lengi með boltann og Ómar Björn kemst í boltann sem fer beint á Markús sem nær góðu skoti rétt framhjá markinu.
2. mín
Úr horninu myndast usli inni á teig KR sem endar með hælsskoti frá Hauki en KR nær að hreinsa burt.
2. mín
KR-ingar í brasi
Uppspil KR klikkar aftast á vellinum og Skagamenn vinna boltann og komast í færi en KR-ingar koma þessu í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Verður þetta ekki alltaf markaleikur?
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Óskar heldur óbreyttu liði frá tapinu gegn Víkingum í síðustu umferð en Lárus Orri gerir tvær breytingar. Gísli Eyjólfsson og Böðvar Böðvarsson eru frá en inn koma Jóhannes Vall og Ísak Máni.
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir í fyrra
Liðin spiluðu þrisvar við hvort annað í fyrra þar sem bæði liðin fóru í neðra umspil eftir skiptingu mótsins.

KR vann fyrstu viðureign liðanna á síðustu leiktíð, lokatölur voru 5-0 á Meistaravöllum. Í seinni umferðinni unnu Skagamenn 1-0 heimasigur og í þriðja leik liðanna unnu Skagamenn 3-2 sigur.

Sögulega séð hafa KR-ingar yfirhöndina en þeir hafa unnið 68 viðureignir, Skagamenn unnið 58 og liðin gert 32 jafntefli.
Fyrir leik
KR
KR liðið hefur spilað stórskemmtilega á þessu tímabili og situr í 2. sæti deildarinnar eftir 11 leiki spilaða. Liðið tapaði auðvitað gegn Víkingum í síðustu umferð sem virðast ætla að stinga þetta mót af svo ljóst er að KR þarf á þremur stigum að halda í kvöld ef þeir ætla að halda einhverri spennu í þessu móti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍA
Skagamenn eru í 6. sæti deildarinnar með 15 stig eftir tíu leiki. Skagamenn fóru rólega af stað í stigasöfnun en hafa í síðustu fjórum leikjum sótt tíu stig. Með sigri lyfta þeir sér upp fyrir Valsara og í 5. sætið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Helgi Mikael Jónasson er dómari leiksins og honum til aðstoðar verða þeir Guðmundur Ingi Bjarnason og Patrik Freyr Guðmundsson. Fjórði dómari er Elías Ingi Árnason og Þóroddur Hjaltalín er dómaraeftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan dag fagra fólk!
Og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu fyrir leik KR og ÍA í 11. umferð Bestu deildar karla. 11. umfeðrinni lýkur hér í kvöld og vonumst við eftir hörkuleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.