3. mín
Amalía með fyrsta skot á markið en Mollee Swift ver vel
2. mín
Mikel barátta á miðjum vellinum sem endar með broti og Þór/KA fá aukaspyrnu á fínum stað
1. mín
Þetta er farið af stað!
Þór/KA byrja með með boltann og sparka þessu í gang, Góða skemmtun.
Fyrir leik
Liðin eru að labba inn á völlinn
Liðin eru að gera sig klár og eru að ganga inn á völlinn
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þór/KA gera eina breytingu á sínu liði frá 0-0 jafnteflinu við Val í seinustu umferð Karen María sest á bekkinn og inn fyrir hana kemur Erin Flurey.
Þróttur R. gera 3 breytingar á sínu liði frá 0-0 jafnteflinu við ÍBV, inn koma Kristrún Ýr Holm, Brynja Rán Knudsen og Alexia Marin Czerwien út úr byrjunarliðinu fara Þórdís Elva Ágústsdóttir, Björg Gunnlaugsdótti og María Eva Eyjólfsdóttir.


Fyrir leik
Spáin
Magnús Haukur spáir í 9. umferð Bestu kvenna og hafði þetta að segja um leikinn.
Þór/KA 1 - 0 Þróttur R. (18:00 í kvöld)
Fáum einstaklega leiðinlegan og lokaðan leik þar sem að sigurmarkið kemur eftir hornspyrnu á 76 min. Viðtölin eftir leik verða skemmtileg.
Fyrir leik
Dómarar
Aðaldómari í dag er Ásmundur Þór Sveinsson og honum til aðstoðar eru Leyla Ósk Jónsdóttir og Birkir Örn Pétursson.
fjórði dómari er Sveinn Arnarsson

Fyrir leik
Staða liðanna
Þór/KA eru á botni deildarinnar með 3 stig á meðan Þróttur R. sitja í 5.sæti með 13 stig einu stigi frá 3.sæti.
Þór/KA gerðu 0-0 jafntefli á útivelli gegn Val í seinustu umferð og Þróttur R. gerðu einnig 0-0 jafntefli á móti ÍBV á heimavelli.
Munu Þór/KA ná að sækja sinn fyrsta sigur í deild í flottu veðri á Akureyri í dag?


Fyrir leik
9.umferð í Bestu deild kvenna
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu á leik Þórs/KA og Þróttar R. í 9. umferð Bestu deildar kvenna.




