Hundrað milljóna punda tilboði Liverpool hafnað - Arsenal vill Guimaraes - Newcastle setur 100 milljón punda verðmiða á Tonali
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 2
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 0
2
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 2
1
ÍR
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
Ægir
2. deild karla
Selfoss
LL 2
2
Haukar
Selfoss
2
2
Haukar
0-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson '41
Eysteinn Ernir Sverrisson '56 1-1
Ivan Paponja '74 2-1
2-2 Ólafur Darri Sigurjónsson '85
26.06.2026  -  19:15
JÁVERK-völlurinn
2. deild karla
Dómari: Atli Björn E Levy
Byrjunarlið:
98. Benjamín Jónsson (m)
3. Reynir Freyr Sveinsson (f) ('79)
5. Dagur Jósefsson
6. Daði Kolviður Einarsson ('4)
7. Jón Daði Böðvarsson ('79)
8. Bjarki Flóvent Ásgeirsson
9. Viðar Örn Kjartansson
10. Aron Fannar Birgisson
11. Frosti Brynjólfsson ('67)
19. Eysteinn Ernir Sverrisson
24. Guðmundur Stefánsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Rökkvi Rafn Agnesarson (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson ('67)
18. Maksymilian Luba
22. Ivan Paponja ('4)
23. Elías Karl Heiðarsson ('79)
27. Einar Bjarki Einarsson ('79)
75. Aron Darri Auðunsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Bjarki Birgisson (Styrktarþj.)
Helgi Bárðarson (Liðsstj.)
Þorkell Ingi Sigurðsson (MÞ)
Alfreð Elías Jóhannsson (AÞ)
Lilja Dögg Erlingsdóttir (Sjúkraþj.)
Heiðar Helguson (AÞ)

Gul spjöld:
Reynir Freyr Sveinsson ('57)
Dagur Jósefsson ('59)
Jón Daði Böðvarsson ('60)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Sigurjón Árni Torfason
Skýrslan: Allt Jafnt á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Haukar voru sterkari aðilinn í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þeir spiluðu sig ítrekað auðveldlega í gegnum miðju Selfoss og stjórnuðu gangi leiksins, en áttu hins vegar erfitt með að skapa sér afgerandi marktækifæri. Þrátt fyrir það hefðu gestirnir hæglega getað farið með stærra forskot inn í hálfleikinn. Haukar byrjuðu einnig seinni hálfleikinn betur, en eftir um klukkutíma leik tóku Selfyssingar smám saman yfir og komust yfir, 2-1. Gestirnir gáfust þó ekki upp og náðu að jafna undir lok leiks. Jafntefli verður að teljast sanngjörn niðurstaða þegar á heildina er litið. Ef annað liðið átti þó meira skilið úr leiknum voru það Haukar, sem voru sterkari aðilinn lengst af.
Bestu leikmenn
1. Benjamín Jónsson
Benjamín var flottur í marki Selfoss varði marga góða bolta og var einn af þeim sem hélt þeim inní leiknum í fyrri hálfleik.
2. Pablo Punyed
Hann kom bara með púra gæði á miðjunna og maður sá bara hvað hann er ennþá sturlaður í fótbolta og leikskilning uppá 10.
Atvikið
Slæmu tíðindin fyrir Selfoss voru að Daði Kolviður meiddist strax á 2. mínútu leiksins og þurfti að fara af velli. Eftir leik sást hann á hækjum, sem vekur áhyggjur af alvarleika meiðslanna.
Hvað þýða úrslitin?
Haukar halda toppsæti deildarinnar með 20 stig og eru nú fjórum stigum á undan Selfossi, sem situr í 4. sæti með 16 stig. Selfyssingar hafa aðeins unnið einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og ljóst að þeir þurfa að finna leið til að snúa genginu við ætli þeir sér að halda sér í toppbaráttunni.
Vondur dagur
Enginn einstakur leikmaður átti sérstaklega slakan leik að mínu mati. Hins vegar var Selfoss langt frá sínu besta í fyrri hálfleik. Selfyssingar áttu í miklum vandræðum með að halda boltanum og tengja saman sendingar, og það væri áhugavert að sjá sendingatölfræðina úr fyrri hálfleiknum.
Dómarinn - 3
Atli Björn átti hreint út sagt slæman dag dæmdi illa og var of mikið í aðalhlutverki með röngum ákvörðunum og flr. Bæði lið voru vægast sagt ósátt við hann í dag.
Byrjunarlið:
1. Sveinn Óli Guðnason (m)
4. Máni Mar Steinbjörnsson
5. Daníel Smári Sigurðsson
7. Jón Arnar Barðdal
9. Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('73)
10. Daði Snær Ingason (f) ('73)
11. Jón Gísli Stefánsson ('84)
17. Tómas Atli Björgvinsson
18. Einar Karl Ingvarsson
23. Pablo Punyed
28. Magnús Ingi Halldórsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
77. Heiðar Máni Hermannsson (m)
3. Kári Vilberg Atlason ('84)
6. Óliver Steinar Guðmundsson
19. Ólafur Darri Sigurjónsson ('73)
21. Gabríel Aron Sævarsson ('73)
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
26. Reynir Leó Egilsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Guðjón Pétur Lýðsson (Þ)
Ævar Daði Segatta (Liðsstj.)
Anton Karl Sindrason (Liðsstj.)
Óskar Örn Hauksson (AÞ)
Gunnar Breki Gíslason (Sjúkraþj.)
Hallur Húni Þorsteinsson (Leikmaður utan hóps)

Gul spjöld:
Daníel Smári Sigurðsson ('27)
Jón Gísli Stefánsson ('48)

Rauð spjöld: