Fotbolti.net
16.07.26 - 10:58
Kári Snorrason

Vilja Summerville í stað Rashford - Arsenal undirbýr tilboð í Nusa

Mikill áhugi á Summerville.

Mikill áhugi á Summerville.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Man Utd vill fá Summerville takist félaginu að losa Rashford, Arsenal vill norska HM stjörnu og Rico Lewis er eftirsóttur. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Man Utd mun reyna að fá kantmanninn Crysencio Summerville (24) frá West Ham ef Marcus Rashford yfirgefur félagið í sumar. Hollendingurinn er talinn kosta um 30 milljónir punda. (Guardian)

Arsenal undirbýr tilboð upp á um 34 milljónir punda í norska kantmanninn Antonio Nusa (21) sem er á mála hjá RB Leipzig. (CaughtOffside)

Man City hefur tilkynnt Lille að félagið vilji fá marokkóska miðjumanninn Ayyoub Bouaddi (18) beint inn í aðalliðið í stað þess að lána hann aftur til franska félagsins. (TeamTalk)

Man City hefur jafnframt áhuga á sóknarmanninum Ibrahim Mbaye (18), leikmann PSG. En Aston Villa og Tottenham hafa sömuleiðis sýnt Senegalanum áhuga. (Foot Mercato)

Sunderland undirbýr tilboð í franska varnarmanninn Dayann Methalie (19), leikmann Toulouse. (Football Insider)

Everton íhugar að gera tilboð í hægri bakvörðinn Rico Lewis (21) hjá Manchester City. Nottingham Forest, Bournemouth og Fulham eru einnig með augastað á Englendingnum. (TeamTalk)

Hull er að ganga frá kaupum á sænska kantmanninum Elliot Stroud (24) frá Mjallby fyrir þrjár milljónir punda. Félagið vonast einnig til að semja við gríska markvörðinn Konstantinos Tzolakis (23) frá Olympiacos. (Sky Sports)
Sló í gegn á HM.

Sló í gegn á HM.

Canon

Mynd: EPA

Rico Lewis er eftirsóttur.

Rico Lewis er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.