Leik lokið!
Flautar til leiksloka beint eftir markið
Breiðablik er á leið í bikarúrslit, þar mætir liðið annað hvort Aftureldingu eða Fylki.
94. mín
BLIKAR Í STUÐI!!
Ágúst Orri Þorsteinsson
Ágúst æðir upp hægri kantinn, enginn sem heldur í við hann og hann klárar frábærlega.91. mín
SKÝTUR BLIKUM Á LAUGARDALSVÖLL
Davíð Ingvarsson
Klaufalegir Víkingar missa boltann á hættulegum stað. Davíð Ingvarsson kemst í boltann, keyrir að marki Víkings og setur boltann snyrtilega í netið!90. mín
Fjórum mínútum bætt við!
88. mín
Víkingar skora rangstöðumark!
Hár bolti á Vatnhamar sem skallar fyrir á Svein Gísla og hann stangar boltann í netið af stuttu færi. Gunnar réttilega flaggaður rangstæður.
88. mín
Víkingur fær hornspyrnu.
87. mín
Víkingar í leit að jöfnunarmarki en Blikar þéttir.
80. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtHelgi Guðjónsson
77. mín

BLIKAR LEIÐA!!!
Gabríel Snær Hallsson (stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson)
Blikar keyra hratt upp völlinn, Ágúst Orri sker boltann út á Gabríel Snæ sem er rétt utan vítateigs og lætur vaða. Aron Snær í boltanum en inn fer hann! Aron hefði mátt gera betur þarna í marki Víkings.

76. mín
Blikar fá hornspyrnu, boltinn á fjærsvæðið. Þar er Ívar Örn sem skallar beint í lúkurnar á Aroni Snæ.
74. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
Hinn bráðefnilegi Arnar Bjarki kemur inn á. Hann skoraði eina mark Breiðabliks gegn Víkingi á fimmtudag.
69. mín
Frábær varsla!
Gabríel Snær keyrir að marki Víkings, ætlar að senda út í teiginn en boltinn í Danna Hafsteins og boltinn á leið í bláhornið. Þá stígur Aron Snær upp og ver frábærlega!
67. mín
InnGylfi Þór Sigurðsson
ÚtJóhannes Kristinn Bjarnason
Sæmilegir leikmenn sem Víkingar áttu inni
67. mín
InnValdimar Þór Ingimundarson
ÚtErlingur Agnarsson
65. mín
Danni Hafsteins með skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá marki Blika.
63. mín
Kristófer Ingi liggur niðri og þarfnast aðhlynningar, leikurinn stopp. Blikar manni færri í mínútu þegar leikurinn fer aftur í gang.
62. mín
Öruggur Anton Ari
Óskar Borgþórsson með lúmskan skalla af nærsvæðinu eftir hornspyrnu Víkings. Anton Ari þó fljótur niður og ver örugglega.
61. mín
Helgi Guðjónsson með stórhættulega fyrirgjöf en enginn Víkingur á hættusvæðinu og Blikar hreinsa yfir eigið mark.
59. mín
Róleg byrjun á þessum síðari hálfleik.
56. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
Víkingar gera tvöfalda breytingu
Karl Friðleifur tekinn af velli. Davíð Örn kemur inn í hans stað og tekur við fyrirliðabandinu af Viktori Örlygi.

56. mín
Viktor Örlygur reynir að róa mannskapinn.
InnDaníel Hafsteinsson
ÚtViktor Örlygur Andrason

Viktor Örlygur reynir að róa mannskapinn.
48. mín
Þéttsetinn Kópavogsvöllur

46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Blikar byrja með boltann.
46. mín
InnGabríel Snær Hallsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
Blikar gera breytingu
Andri var á gulu spjaldi.

45. mín
100% líkur á að það sjóði upp úr
Ívar Örn Árnason, varnarmaður Breiðabliks, sagði um 100% líkur á að það myndi sjóða upp úr í seinni hálfleik í viðtali við Gulla Jóns á Rúv í hálfleik. Ég vona í hið minnsta að Ívar reynist sannspár. Hér að neðan má sjá svipmyndir úr fyrri hálfleik en Hafliði Breiðfjörð er á vellinum vopnaður myndavél.

45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur
Bráðskemmtilegum fyrri hálfleik lokið þó svo að staðan sé enn markalaus. Mikið jafnræði meðal liðanna, vonandi fáum við enn meiri skemmtun í þeim síðari!
45. mín
Einni mínútu bætt við
44. mín
Nú ógna Víkingar!
Keyra hratt upp völlinn, boltinn berst á Óskar Borgþórs sem á skot sem fer af varnarmanni og þaðan framhjá markinu. Víkingar fá hornspyrnu sem ekkert kemur upp úr.
44. mín
Blikar í góðu færi!
Davíð Ingvars með hættulega fyrirgjöf á Kristófer Inga sem skallar boltann rétt framhjá marki Víkings. Eflaust besta færi Blika!
41. mín
Gult spjald
Andri Rafn Yeoman
Andri keyrir seint í Jóa Bjarna og fær það gula.36. mín

Gult spjald
Gunnar Vatnhamar
Færeyingurinn fer í bókina góðu.
34. mín
Besta færi leiksins!
Viktor Örlygur þræðir Jóa í gegn sem er einn gegn Antoni en lætur verja frá sér.

33. mín
Sigurður Hjörtur dómari er í litlu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Breiðabliks þessa stundina. Verð að viðurkenna að það hallar örlítið á Blika í dómgæslunni.
32. mín
Víkingar fá hornspyrnu en Blikar koma hættunni frá.
30. mín
Gult spjald
Ágúst Orri Þorsteinsson
Of seinn í tæklingu á Tarik Ibrahimagic og fer í bókina góðu.28. mín
Blikar fá hornspyrnu, taka það stutt og gefa fyrir en í kjölfarið dæmd rangstaða.
23. mín
Ágúst Orri!
Ágúst fær háa sendingu í teiginn og á skalla rétt framhjá marki Víkings.
20. mín
Hátt yfir!
Elías Már fær sendingu út í teiginn en setur boltann himinhátt yfir frá vítateigslínu.
15. mín
Víkingar ógna
Boltinn skoppar Víkinga á milli í teig Blika, boltinn endar hjá Karli Friðleifi sem á tilraun í varnarmann og í hornspyrnu.
13. mín
Blikar vilja vítaspyrnu!
Jóhannes Kristinn tekur við bolta innan eigin vítateigs. Boltinn skoppar greinilega upp í hendina á Jóa en ekkert dæmir Sigurður Hjörtur! Blikar reiðir og úr verður einhver kítingur milli leikmanna.

7. mín
Víkingar í færi!
Óskar Borgþórs með góða takta og gefur fyrir á Helga sem á skot af stuttu en Anton Ari ver vel.
4. mín
Víkingar fá fyrstu hornspyrnu leiksins. Boltinn á Elías Má sem lætur vaða en boltinn af varnarmanni og í aðra hornspyrnu. Blikar koma seinni hornspyrnunni frá.
3. mín
Blikar í maður á mann dekkningu eins og á fimmtudaginn síðastliðinn.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Víkingar hefja leik!
Fyrir leik
Blikar tökum nú bikar!
Hið frábæra lag Blikar tökum nú bikar ómar um völlinn og stemningin stigmagnast, styttist í þetta!
Fyrir leik
Bæði lið hita vel upp og stuðningsmenn tylla sér í stúkuna, góður grillilmur í loftinu. Víkingar eru mættir tímanlega og uppskera stuðningsmennirnir lófatak frá leikmönnum.
Fyrir leik
Breyting á byrjunarliði Blika
Blikar hafa neyðst til þess að gera breytingu á byrjunarliði sínu. Óli Valur Ómarsson verður ekki til taks og kemur því Arnór Gauti Jónsson inn í byrjunarliðið.

Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi!
Ólafur Ingi Skúlason gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá 4-1 tapi gegn Víkingi í deildinni á fimmtudag.
Kristófer Ingi Kristinsson, Andri Rafn Yeoman, Davíð Ingvarsson og Ívar Örn Árnason snúa allir aftur í liðið.
Úr liðinu víkja þeir Arnar Bjarki Gunnleifsson, Gabríel Snær Hallsson, Arnór Gauti Jónsson og Kristinn Jónsson.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir fimm breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum á fimmtudag.
Gylfi, Valdimar, Ekroth, Aron Elís og Daníel Hafsteinsson víkja úr liðinu. Ekroth er í leikbanni og er því ekki í hóp.
Inn í liðið koma þeir Jóhannes Kristinn Bjarnason, Tarik Ibrahimagic, Viktor Örlygur Andrason, Gunnar Vatnhamar og Erlingur Agnarsson.

Átta úr Víkingi - Enginn frá Blikum
útvarpsþættinum Fótbolti.net var opinberað val á úrvalsliði umferða 1-11 í Bestu deild karla. Hverjir hafa verið bestir það sem af er tímabili.
Topplið Víkings á átta af ellefu leikmönnum í liðinu en Breiðablik er með engan fulltrúa.

Topplið Víkings á átta af ellefu leikmönnum í liðinu en Breiðablik er með engan fulltrúa.

Fyrir leik
Gjáin sem stækkaði
Eftir 13 leiki í Bestu deildinni eru Víkingar með 37 stig, 45 mörk skoruð og aðeins sjö mörk fengin á sig. Þeir hafa unnið 12 af 13 leikjum sínum og eru enn taplausir.
Eini leikurinn hingað til í sumar hjá Víkingum sem vannst ekki var leikur gegn Breiðabliki í fyrstu umferð Bestu deildarinnar sem endaði með 1-1 jafntefli. Breiðablik og Víkingur mættust svo aftur í vikunni og þá unnu Víkingar þægilegan sigur.
Víkingur og Breiðablik hafa á síðustu árum skipst á að vinna Bestu deildina og hafa spilað marga spennandi leiki - verið miklir keppinautar. Núna, miðað við frammistöðu í leikjunum tveimur, virðist þó vera komin gjá á milli liðanna og hún stækkaði síðasta fimmtudag á Kópavogsvelli. Liðin standa allavega ekki jafnfætis í dag en það munar 18 stigum á þeim í töflunni.
Ítarlegri greining á hvernig gjáin myndaðist er hægt að sjá á áskriftarvef Fótbolta.net. Hægt er að skrá sig í viku prufuáskrift til þess að lesa greinina hér að neðan.

Sigurvegarinn mætir Lengjudeildarliði á Laugardalsvelli
Mikið er í húfi á Kópavogsvelli en liðið sem vinnur viðureignina mætir annað hvort Fylki eða Aftureldingu í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli síðar í sumar.

Fyrir leik
'Lélegir' Víkingar unnu 4-1 sigur á fimmtudag
Liðin mættust á fimmtudag í deildinni og unnu Víkingar 4-1 sigur á erkifjendunum. Eftir leikinn var mjög athyglisvert að sjá viðbrögð þjálfara og leikmanna Víkings.
„Ég er sáttur með úrslitin en ég er ekki sáttur með fyrri hálfleikinn hjá okkur," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkinga, við Fótbolta.net.
„Ég var eiginlega mjög ósáttur með hann. Við byrjuðum ágætlega en svo fannst mér eins og menn héldu að þetta yrði bara einfalt dagsverk."
Helgi Guðjónsson, sem skoraði tvö mörk í leiknum úr vinstri bakverði, tók undir með Sölva.
„Við komum ekki oft hingað og vinnum stórt. Það er mjög sterkt. En mér fannst við ekki góðir í dag og ólíkir sjálfum okkur," sagði Helgi.
„Menn fóru að slaka á, ákvarðanatökur voru lélegar og við vorum langt frá þeim standard sem við viljum sýna. Við fórum vel yfir það í hálfleiknum og ég óskaði eftir viðbrögðum frá mönnum," sagði Sölvi.

Velkomin til leiks!
Heilir og sælir lesendur góðir og veriði velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik tekur á móti Víkingi í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.