Fotbolti.net
Besta deildin
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
3 - 1
KA
KA
Emil Atlason 18'1 - 0Benedikt V. Warén 21'2 - 02 - 151' Hallgrímur Mar SteingrímssonÞorri Mar Þórisson 95'3 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 403
Leik lokið!
Þetta var loka spyrna leiksins. Stjörnumenn með verðskuldaðan sigur, stýrðu leiknum vel.

Skýrsla og viðtöl væntanleg í kvöld.
Stjarnan
95. mín
Fyrrum KA maðurinn klárar þetta fyrirn Garðbæinga

Þorri Mar Þórisson

Mikið klafs inn í teig, fyrst ver Steinþór mjög vel frá Emil Atla en Þorri nær lausa boltanum og nær að klára vel.
94. mín
Alex Þór fær boltann eftir hornið og tekur skotið fyrir utan teig, þetta fer alveg greinilega af KA manni, en ekkert horn núna.
93. mín
Daníel Finns með skotið fyrir utan teig, mér sýndist þetta fara bara beint útaf en fór víst af varnarmanni og Stjarnan fær horn.
91. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
90. mín
Hallgrímur með aukaspyrnuna og lyftir honum inn í teig. Boltinn er eitthvað að skoppa milli manna og Jakob Héðinn nær aðeins að pota í hann en beint á Árna Snæ.
Stjarnan
89. mín
Gult spjald

Haukur Örn Brink

Tók hann svona sjö sekúndur að næla sér í gult.
Stjarnan
89. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtGuðmundur Baldvin Nökkvason
Stjarnan
89. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtBirnir Snær Ingason
87. mín
Árni Snær sest í grasið, fékk eitthvað högg í magann en hann er fljótur að hrista þetta af sér.
86. mín
Spyrnan hjá Grímsa í vegginn og aftur fyrir KA menn fá horn.
85. mín
Brotið á Grímsa og KA menn fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað!
84. mín
Stórhættulegur bolti inn í teig hjá Svein Margeir, en hann fer á einhvern hátt framhjá öllum og Stjörnumenn rétt ná að pota boltanum aftur fyrir.
KA
82. mín
InnBreki Hólm Baldursson
ÚtOliver Heiðarsson
82. mín
Örvar Logi í góðu færi og tekur skotið en beint á markið.
81. mín
Stubbur með enn aðra vörslu!
Birnir með boltann vinstra megin í teignum, hann tekur eina hraða stefnubreytingu og neglir á nær, boltinn fer undir Guðjón og Steinþór sér hann því seint en ver bara samt!
KA
76. mín
InnGuðjón Ernir Hrafnkelsson
ÚtKári Gautason
76. mín
Stjörnumenn í þungri sókn, ná tveim skotum á markið. Seinna var Daníel Finns en Stubburinn varði.
KA
72. mín
Gult spjald

Hans Viktor Guðmundsson

Jóhann farinn að leita mikið í vasann.
Stjarnan
70. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtÖrvar Eggertsson
Stjarnan
70. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtBenedikt V. Warén
69. mín
HRIKALEG MISTÖK HJÁ ÁRNA
Árni er að reyna að spila út frá marki en hann gefur boltann bara beint á Jakob Héðinn sem reynir að skjóta í fyrsta í opið markið en hann skýtur framhjá!
KA
68. mín
Gult spjald

Birgir Baldvinsson

KA menn að safna spjöldum núna. Birgir of seinn í þetta skiptið.
KA
66. mín
Gult spjald

Kári Gautason

Allt of seinn og þetta verður frekar ljót tækling á Birni.
KA
65. mín
InnDiego Montiel
ÚtDanijel Dejan Djuric
KA
65. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtJakob Snær Árnason
64. mín
Stubbur í stuði!
Birnir keyrir upp kantinn og fer framhjá Kára, hann kemur svo boltanum inn í teig á Benedikt sem er í dauðafæri, hann tekur skotið en Steinþór ver mjög vel frá honum. Birnir nær þá lausa boltanum og tekur skotið en aftur ver Steinþór!
63. mín
Þorri með fyrirgjöfina inn í teig og Örvar Eggerts nær skallanum en hann fer beint á Steinþór.
60. mín
Frábær markvarsla!
Jóhann Árni með mjög góða sendingu inn á teiginn. Örvar Logi er mættur á fjær þar sem hann skallar boltann aftur fyrir teiginn og Emil er í algjöru dauðafæri þar sem hann skallar á markið en Steinþór ver frá honum frábærlega!
Stjarnan
59. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtDamil Serena Dankerlui
Fyrrum KA maðurinn mætir sínu gamla liði.
57. mín
Emil í færi!
Sendingin inn í teig og Emil tekur hann á kasssann, leggur hann fyrir sig og tekur skotið en framhjá.
57. mín
Jóhann Árni tekur spyrnuna, hún er föst en fer aðeins yfir markið.
KA
56. mín
Gult spjald

Danijel Dejan Djuric

Peysutog, og Stjörnumenn með aukaspyrnu á stórhættilegum stað.
55. mín
Stjörnumenn með hornspyrnu og Jóhann Árni lyftir boltanum á fjær. Þar er Gustav Kjeldsen í góðu færi en það er eins og hann bjóst ekki við því að þetta myndi ná til hans því hann bara potar aðeins í boltann og skotið vel framhjá.
KA
51. mín
KA menn að gera þetta að leik!

Hallgrímur Mar Steingrímsson (stoðsending: Oliver Heiðarsson)

Kári með frábæra tæklingu á vallarhelmingi Stjörnunnar og vinnur boltann. Hann gefur svo boltann fyrir þar sem Oliver nær aðeins að koma hnénu í boltann sem stýrir þá boltanum að Hallgrími.

Hann er hægra megin í teignum með nokkra varnarmenn fyrir framan sig en hann sneiðir boltann í hornið.

Töluvert betri byrjun á þessum hálfleik hjá gestunum.
50. mín
Fín skyndisókn hjá KA mönnum, langur bolti fram og Hallgrímur nær skotinu inn í teig en af varnarmanni og gestirnir fá horn.
49. mín
Sveinn Margeir reynir skotið fyrir utan teig, en það fer í varnarmann og Árni skokkar svo eftir boltanum.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Stjörnu menn með verðskuldaða tveggja marka forystu í hálfleik, þeir hafa stýrt leiknum vel og nýtt þessi færi sem þeir hafa fengið. KA menn hafa á hinn bóginn alls ekki verið góðir, í stökustu vandræðum með að hitta á samherja. Gæðaleysið er rosalegt.

Sjáum til hvað gerist í seinni 45.
45. mín
Tvær mínútur í uppbótartíma
43. mín
KA menn í miklu veseni í að vinna boltann rétt fyrir utan eigin teig og hreinsa. Boltinn skoppar af mönnum og fer á Birni sem reynir skotið en aftur kasta menn sér fyrir skotið. Hans Viktor í þetta skiptið sem blokkerar.
42. mín
Hallgrímur reynir skotið af svona 35 metrum. Beint á Árna Snæ.
Stjarnan
41. mín
Gult spjald

Gustav Kjeldsen

Stoppar Oliver sem er að reyna að hlaup inn fyrir.
39. mín
Menn kasta sér fyrir
Stjörnumenn með hornspyrnu og Jóhann Árni lyftir boltanum á fjær. Steinþór þarf að fara í gegnum mikla þvögu til að blaka hendinni í boltann. Birnir nær þá lausa boltanum inn í teig og tekur skotið en þar mætir boltinn vegg af KA mönnum sem kasta sér fyrir boltann.
33. mín
Svo nálægt því að vera geggjað mark!
Stjörnumenn með hornspyrnu sem Hans Viktor skallar frá. Birnir nær lausa boltanum vinstra megin í teignum og hann reynir bara skotið, sem syglir bara rétt yfir markið.
30. mín
KA menn með hornspyrnu. Hallgrímur lyftir boltanum inn í teig, og úr verður mikill skallatennis, held ég taldi alls fjóra skalla. Stjörnumenn ná svo að hreinsa.
28. mín
KA menn í bullandi veseni að hitta á annan mann í gulu. Þeir eru að gera ágætlega í að pressa ig vinna boltann en gæðin eftir það fylgja ekki.
Heimamenn njóta mikils góðs af því.
Stjarnan
21. mín
Skyndisókn og heimamenn tvöfalda forystuna!

Benedikt V. Warén (stoðsending: Örvar Eggertsson)

Langur bolti á Örvar úti hægra megin. Hann tekur af stað og neglir síðan boltanum fyrir teignn og á fjær er mættur Benedikt sem klárar vel framhjá Steinþóri!
20. mín
Birgir með flott hlaup upp miðjan völlinn, hann sér markið og tekur skotið en það er langt framhjá.

Svo sem ekkert galið að reyna þetta, hann er markahæsti maður KA á tímabilinu með þrjú mörk.
Stjarnan
18. mín
Emil sópar til sín lausa boltann!

Emil Atlason

Birnir fær boltann úti vinstra megin og keyrir á Kára sem er að verjast gegn honum. Hann kemst framhjá honum og tekur skot sem Steinþór ver en beint út í teig. Þar lúrir Emil og hann potar boltanum í opið markið.
15. mín
Langur bolti fram hjá KA á Danijel sem leggur hann strax inn fyrir á Oliver. Hann er í ágætu færi en með varnamanninn í sér og nær því bara mjög lausu skoti á markið sem Árni tekur.
10. mín
Rétt yfir!!
KA menn með hornspyrnu. Hallgrímur tekur hana og lyftir boltanum á nær þar sem Hans nær skallanum, mjög góður skalli en fer rétt yfir þverslánna.
9. mín
Jóhann Árni reynir skotið fyrir utan teig en það er laust og frekar beint á Steinþór.
7. mín
Skemmtilegir taktar hjá Danijel Djuric. Fer framhjá Örvari og kemur með sendinguna á nærstöngina. Sveinn Margeir rétt nær ekki til boltans og Árni tekur þennan.
5. mín
Sindri Þór með góðan bolta inn í teig og Gustav Kjeldsen nær lausum skalla hátt upp en á markið. Það munaði ekki miklu að þessi myndi lauma sér undir stöngina og í markið en Stubbur vel á verði og tók þetta.
2. mín
Hætta en ekkert verður úr þessu
KA menn með langt innkast inn á teig sem Oliver tekur. Boltinn fær að skoppa tvisvar inn á miðjum teignum án þess að nokkur maður fari í hann og Markús Máni er mættur á fjær að ráðast á boltann. Árni Snær er hins vegar rétt á undan honum og hrifsar boltann til sín.
1. mín
Leikur hafinn
Jóhann flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Fyrir leik
Gengur betur inn á skrifstofu en inn á velli
KA liðinu hefur ekki gengið vel að ná í úrslit inn á velli, en peninga hliðin hefur gengið töluvert betur. Utan Vallar tók saman fjárhagstekjur KA í greininni hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Spáin
Daníel Freyr Kristjánsson, nýr leikmaður Lyngby í Danmörku, spáir í leikina sem eru framundan.

Stjarnan 3 - 1 KA
Verð að bakka mína menn upp í þessum leik, verður þægilegt. Haukur Brink skorar fyrir bæði lið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar gerir tvær breytingar frá síðasta leik þegar Stjarnan tapaði 2-1 fyrir ÍBV. Gustav Kjeldsen og Jóhann Árni Gunnarsson koma inn í liðið. Daníel Finns Matthíasson færist á bekkinn en Guðmundur Kristjánsson er ekki í hóp, en hann er í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda.

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA gerir einnig tvær breytingar á sínu liði sem tapaði 3-1 fyrir Breiðablik í síðustu umferð. Kári Gautason og Jakob Snær Árnason koma inn í liðið. Guðjón Ernir Hrafnkelsson sest á bekkinn en Samuel Karl Kroon er ekki í hóp.
Fyrir leik
Dómarinn
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Ragnar Þór Bender og Jovan Subic. Varadómari er Hreinn Magnússon og eftirlitsmaður KSÍ er Oddur Ingi Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Risa leikur fyrir bæði lið
Það er óhætt að segja að bæði lið myndu vilja vera með fleiri stig en þau eru með eins og er. Stjarnan er í 8. sæti með 11 stig, og hafa þegar rekið þjálfarann sinn. Margir töldu Stjörnumenn fyrir mót vera með besta hópinn í það að veita Víkingum samkeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Það hefur svo sannarlega ekki komið á daginn, og nú eru Garðbæingar að berjast um að koma sér aftur á flot.

KA menn voru stórhuga fyrir mót. Vissulega misstu þeir nokkra lykil leikmenn, en þeir sóttu stór nöfn á borð við Danijel Dejan Djuric og Oliver Heiðarsson. Það var því búist við góðu gengi á brekkunni á Akureyri. Það hefur ekki komið á daginn, því KA menn eru í 10. sæti með 10 stig. Þar að auki hafa þeir tapað fjórum leikjum í röð.

Það er því ljóst að ef að annað liðið vinnur þennan leik verður það mikilvægara en áður var. Það er stutt upp í topp 6 og núna þegar við erum komnir inn í seinni helminginn fyrir skiptingu, þá lítur það út fyrir að ef þú kemst upp fyrir strik ert þú ekki að berjast um Evrópu heldur ertu öruggur frá falli. Ef þú ert fyrir neðan strik, þá lítur út fyrir að hver sem er getur fallið úr deildinni.
Mynd: Lengjudeildin
Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Stjörnunnar og KA í 12. umferð Bestu deildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður spilaður á Samsungvellinum í Garðarbæ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.