Como ræðir við Chelsea um Chalobah - Real Madrid skráir sig í baráttuna um Diomande - Fer Rashford til Barcelona?
Besta karla
FH
LL 1
1
ÍBV
Besta karla
Keflavík
LL 3
2
KR
Besta karla
Stjarnan
LL 3
1
KA
Besta karla
Þór
LL 2
4
Valur
Stjarnan
3
1
KA
Emil Atlason '18 1-0
Benedikt V. Warén '21 2-0
2-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson '51
Þorri Mar Þórisson '95 3-1
28.06.2026  -  17:00
Samsungvöllurinn
Besta karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 403
Maður leiksins: Birnir Snær Ingason (Stjarnan)
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson ('70)
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason ('89)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason ('89)
22. Emil Atlason (f)
23. Benedikt V. Warén ('70)
27. Damil Serena Dankerlui ('59)
32. Örvar Logi Örvarsson
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
4. Þorri Mar Þórisson ('59)
10. Daníel Finns Matthíasson ('70)
14. Bjarki Hauksson
17. Haukur Örn Brink ('89)
29. Alex Þór Hauksson ('70)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
36. Arnar Breki Björnsson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('89)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Hrannar Bogi Jónsson (AÞ)
Hákon Ernir Haraldsson (AÞ)
Hilmar Þór Hilmarsson (Sjúkraþj.)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Liðsstj.)
Rajko Stanisic (MÞ)

Gul spjöld:
Gustav Kjeldsen ('41)
Haukur Örn Brink ('89)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@haraldur_orn Haraldur Örn Haraldsson
Skýrslan: Fyrsti sigur Jóns var fimmta tap KA í röð
Hvað réði úrslitum?
Stjörnumenn stýrðu leiknum mest allan leikinn og nýttu sín færi í fyrri hálfleik vel. KA menn í fyrri hálfleik voru hins vegar verulega slakir. Það sem stakk einna helst var hvað þeim gekk bölvanlega að hitta á samherja. Norðanmenn komu skarpari inn í seinni hálfleikinn, minnkuðu muninn og voru aðeins að banka fyrir jöfnunarmarkið. Það kom ekki og Stjörnumenn kláruðu þetta á loka sekúndunum með því að bæta einu marki við.
Bestu leikmenn
1. Birnir Snær Ingason (Stjarnan)
Birnir var að skapa usla á kantinum allan leikinn. Maður sá þarna leikmanninn sem maður var búinn að sakna að horfa á.
2. Steinþór Már Auðunsson (KA)
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk þá var Stubburinn frábær í dag. KA menn hefðu tapað töluvert stærra ef hann hefði ekki verið í þessu stuði.
Atvikið
Þriðja mark Stjörnumanna sem kom alveg á loka sekúndunum var stór stund fyrir Þorra Mar sem hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Hann skoraði þarna fyrsta markið sitt fyrir Stjörnuna og það gegn sínum gömlu félögum í KA. Hann fagnaði vel og innilega eftir það, en sagði eftir leik að hann hefði kannski ekki átt að gera það, en hann missti sig bara í gleðinni.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan fer upp í 14 stig en er ennþá í 8. sæti deildarinnar. Þeir nálgast þó eftir hlutann og fjarlægjast fallsætin. KA menn tapa sínum fimmta leik í röð og eru enn bara með 10 stig, en færast ekkert neðar í töflunni eins og er. Þeir eru í 10. sæti.
Vondur dagur
Allt KA liðið var skelfilegt í fyrri hálfleik. Þá leit liðið ekki út eins og lið í efstu deild. Kári Gautason átti mjög erfitt með að verjast gegn Birni Snæ einn á einn, en þá hefði KA liðið líka getað veitt honum betri hjálparvörn sem var lítið til staðar. Þá var Oliver Heiðarsson aldrei líklegur til að skapa hættu. Oft sem að boltinn barst til hans í fínni stöðu og sóknin dó við það.
Dómarinn - 8
Engin risa atvik, heilt yfir góð frammistaða hjá Jóhanni Inga þó að mér fannst hann aðeins auðveldlega leita í vasann eftir spjaldinu.
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson
3. Kári Gautason ('76)
8. Jeppe Pedersen
9. Sveinn Margeir Hauksson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
14. Danijel Dejan Djuric ('65)
15. Oliver Heiðarsson ('82)
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Jakob Snær Árnason ('65)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('65)
19. Breki Hólm Baldursson ('82)
20. Diego Montiel ('65)
25. Viktor Breki Hjartarson
26. Þórir Hrafn Ellertsson
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('76)
32. Sigurður Nói Jóhannsson
75. Ívar Logi Jóhannsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Egill Daði Angantýsson (AÞ)
Nicklas Cleemann Rulle (MÞ)
Halldór Hermann Jónsson (Sjúkraþj.)
Atli Sveinn Þórarinsson (AÞ)

Gul spjöld:
Danijel Dejan Djuric ('56)
Kári Gautason ('66)
Birgir Baldvinsson ('68)
Hans Viktor Guðmundsson ('72)

Rauð spjöld: