Arsenal undirbýr tilboð í Rogers - Fyrrum leikmaður Liverpool til Man Utd?

Arsenal ætlar að setja allt púður í Morgan Rogers

Mynd: EPA

Mo Salah er líklega á leið til Tyrklands

Mynd: EPA

Neco Williams til Man Utd?

Arsenal er á eftir Morgan Rogers, Mohamed Salah er líklega á leið til Tyrklands og Manchester United gæti keypt fyrrum leikmann Liverpool. Þetta og fleiri áhugaverðir molar eru í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Englandsmeistarar Arsenal hafa sett Morgan Rogers (23), leikmann Aston Villa og enska landsliðsins, efstan á óskalistann. Búist er við að félagið leggi fram tilboð í Rogers, sem er metinn á meira en 100 milljónir punda. (Sky Sports)
Mohamed Salah (34), goðsögn hjá Liverpool, er á leið til Besiktas í Tyrklandi. (Foot Mercato)
Manchester United horfir til hægri bakvarðarins Neco Williams (25) hjá Nottingham Forest. Williams lék áður með Liverpool. (Football Insider)
Real Madrid hefur áhuga á Michael Olise (24), leikmanni Bayern München og franska landsliðsins. Olise er sagður mjög spenntur fyrir því að spila á Santiago Bernabeu. (L'Equipe)
Tottenham hefur hafnað 46 milljóna punda tilboði Newcastle United í sænska miðjumanninn Lucas Bergvall (20). (Athletic)
Chelsea þarf að reiða fram 55 milljónir punda ætli félagið sér að fá franska varnarmanninn Maxence Lacroix (26) í sumar. (Times)
Aston Villa, Crystal Palace, Hull, Nottingham Forest og Sunderland hefur verið boðið að fá Ilaix Moriba (23), miðjumann Celta Vigo og landsliðsmann Gíneu. Moriba gæti verið fáanlegur fyrir 17 milljónir punda. (Nos Diario)
Bayern München hefur gefið portúgalska miðjumanninum Joao Palhinha (31) lengri tíma til að ganga frá framtíð sinni. Hann er ekki inni í áætlunum Vincent Kompany en Aston Villa hefur áhuga á honum. (Record)
Tottenham hefur áhuga á Crysencio Summerville (24), vængmanni West Ham og hollenska landsliðsins. Fastlega er búist við að hann yfirgefi félagið eftir fall þess úr ensku úrvalsdeildinni. (Give Me Sport)
Eyðsla Tottenham í sumar þýðir að félagið þarf að selja leikmenn. Argentínski miðvörðurinn Cristian Romero (28) er talinn einn þeirra sem gætu farið. (TeamTalk)
Manchester United og Newcastle vilja fá sænska miðjumanninn Hugo Larsson (22) frá Eintracht Frankfurt en ekkert tilboð hefur enn borist í hann. (Bild)
Juventus hefur boðið 5,5 milljónir punda í Emiliano Martinez (33), markvörð Aston Villa. Enska félagið vill fá að minnsta kosti tíu milljónir punda fyrir hann. (La Gazzetta dello Sport)
Juventus leiðir einnig kapphlaupið um Folarin Balogun (25), leikmann Monaco og bandaríska landsliðsins. Borussia Dortmund og Sunderland hafa sömuleiðis áhuga á honum. (Mundo Deportivo)