0. mín
Valur er í fimmta sæti
0. mín
Þegar liðin mættust í apríl
Valur vann 2-1 sigur. Felix Örn Friðriksson kom Val yfir en Lúkas Logi Heimsson og Hólmar Örn Eyjólfsson skoruðu mörk Vals.
0. mín
Stigasöfnunin hjá heimamönnum í ÍBV hefur verið ansi fín að undanförnu, eftir erfiða byrjun. Eyjamenn gerðu 1-1 jafntefli gegn FH í síðustu umferð. Eftir þann leik var Aleksandar Linta þjálfari ÍBV spurður út í komandi leik gegn Val.
„Líka mjög erfiður leikur, við trúum á okkur sjálfa, áttum góðan leik gegn þeim síðast en töpuðum. Reynum að ná í sömu frammistöðu en aðeins öðruvísi niðurstöðu og þá verð ég sáttur," sagði Linta en Valur vann 2-1 þegar liðin mættust á Hlíðarenda 17. apríl.
Leikmannaglugginn opnar eftir tvo leiki hjá ÍBV eða þann 16. júlí. „Stjórnin sér um þær aðstæður, ég held að ef við finnum eitthvað sem hentar okkur þá munu þeir bregðast við og styrkja liðið fyrir seinni hluta tímabilsins," segir Linta. ÍBV er í níunda sæti.
Eyjamenn taplausir í fimm leikjum

Þjálfaramál Vals
Valsarar skiptu um þjálfara í vikunni. Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn og mun Chris Brazell stýra liðinu út tímabilið. Halldór Árnason tekur svo við stjórnartaumunum þegar þessu tímabili í Stúkunni á Sýn lýkur.
0. mín
Twana Khalid Ahmed dæmir leikinn í dag. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Antoníus Bjarki Halldórssons sigldu með honum í Herjólfi og eru aðstoðardómarar dagsins.
Twana með flautuna

0. mín
Leikur ÍBV og Vals í 13. umferð Bestu deildarinnar verður flautaður á klukkan 16:00! Það er spenna í lofti og ég ætla að lofa hörkuleik og mikilli skemmtun!
Vestmannaeyjar heilsa!

Valsmenn sitja í fimmta sæti Bestu deildarinnar. Þeir unnu Þór í síðustu umferð en fyrir leikinn voru örlög Hermanns Hreiðarssonar ráðin. Þetta var langþráður sigur fyrir Val sem er með 19 stig, 21 stigi frá toppliði Víkings.