0. mín
Stuðlarnir!
Epicbet eru búnir að gefa okkur stuðla á leikinn.
Skagamenn 2.47
Jafntefli 4.31
Breiðablik 2.49
Það er verið að stuðla þetta sem algjöran 50/50 leik!
0. mín
Dómara tríóið
Elías Ingi fær það verkefni að vera með flautuna en aðstoðarmenn hans eru.
Guðmundur Ingi Bjarnason
Guðni Freyr Ingvason
Og fjórði dómarinn er Gunnar Freyr Róbertson.

0. mín
Gestirnir úr Kópavoginum
Gestirnir í Breiðablik koma væntanlega peppaðir inní þennan leik, þeir tóku Víkinga núna í síðasta leik 3-0. Blikarnir mæta gíraðir í þennan erfiða leik á grasinu hér á Írska daga á Skaganum. Blikarnir hafa einnig ekki verið á einhverju rosalegu skriði þeir hafa líkt og Skagamenn aðeins unnið tvo af síðustu fimm deildarleikjum.

0. mín
Skagamenn
ÍA eru ekkert á rosalega góðu skriði þessa stundina, þeir hafa núna í síðustu 5 deildarleikjun unnið aðeins tvo af þeim. Það bíða margir eftir því að Skagamenn stígi almennilega upp. Við búumst við erfiðum Skagamönnum á grasinu, Írskir dagar gott veður og stemming!

0. mín
Góðan daginn og velkominn á skagan!
Góðan daginn og verið velkominn í þessa beinu textalýsingu. Hér í dag fer fram leikur milli ÍA og Breiðabliks, hér á Írskum dögum á Skaganum




