Leik lokið!
1-1 Jafntefli hér á Hlíðarenda!
Stjörnukonur klaufar að setja ekki fleiri mörk í fyrri hálfleik en Valskonur komu grimmar út í seinni og uppskáru þetta jöfnunarmark!
93. mín
Sóleu tekur hornið en það kemur ekkert út úr því og leikurinn rennur út í sandinn.....
92. mín
Ása Kristín komin ein gegn Skiba en í þröngum vinkil, setur hann í Skiba og út fyrir endalínu. Horn!
92. mín
Skiba komin hér langt út úr markinu, boltinn berst á Margréti Brynju en hún nær ekki að setja hann á markið
92. mín
Ása Kristín brýtur á Telmu, hún tekur þetta hratt fram en þar er engin tilbúin.
90. mín
Uppbótartíminn er a.m.k 2 mínútur
90. mín
Aufí reynir skot af löngu færi en skýtur í þéttar stjörnukonur
90. mín
InnÁsa Kristín Tryggvadóttir
ÚtNadía Atladóttir
90. mín
Ísabella Sara nælir í horn fyrir Valskonur, Sóley Edda setur hann á fjær en Stjörnukonur ná að koma þessu frá
88. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtBirna Jóhannsdóttir
88. mín
Úlfa Dís tekur það, boltinn berst svo til hennar aftur en ekkert kemur úr þessu
87. mín
Stjarnan reynir að finna sigurmarkið, eiga skot sem Tinna ver, Horn!
86. mín
Bolti frá Þóru Maríu sem hún ætlaði eflaust að setja fyrir en hann skoppar ofan á þverslánni
86. mín
Sóley tekur þetta sjálf setur hann fastann inn í en Skiba grípur þetta
85. mín
Gult spjald
Þóra María Hjaltadóttir
brýtur harkalega á Sóleyju Eddu84. mín
Úlfa stálheppin að sleppa hér við spjald! Lemur Bryndísi hérna við hliðarlínuna..... fær ekki einu sinni tiltal, hann hlýtur að hafa misst af þessu
83. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
82. mín
Bryndís og Snædís María skella saman, Stjarnan vill aukaspyrnu en ekkert brot hér á ferðinni segir dómari leiksins
80. mín
Gult spjald
Matthías Guðmundsson
Bekkurinn fær gult fyrir mótmæli79. mín
Svoooo nálægt!
Fínasti staður! rétt fyrir utan teig, Ísabella lætur vaða en Skiba rétt nær að blaka boltanum yfir.... hins vegar dæma dómarar leiksins markspyrnu?!?
78. mín
Gult spjald
Jakobína Hjörvarsdóttir
Brýtur á Margréti Brynju og stöðvar skyndisókn þeirra78. mín
Hulda Hrund reynir skotið en það er laust og Tinna á ekki í neinum vandræðum með að grípa það
76. mín
NADÍA!
Aftur kemst Nadía í dauðafæri, Skiba kemst út á móti henni en Nadía á svo síðastu snertinguna og aftur er þetta framhjá
75. mín
Andrea Mist tekur aukaspyrnu út við hliðarlínuna vinstra megin en ekkert kemur úr þessari spyrnu
71. mín
Dauuuuðafæri!
Ísabella Sara fær stungu frá Bryndísi úr vörninni hún finnur svo Nadíu aleina en hún á einhvern ótrúlegan hátt setur hann framhjá ein gegn Skiba!
70. mín
Andrea Mist með hornið en það svífur hins vegar yfir allan pakkann og ekkert kemur úr þessu
69. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtFanney Lísa Jóhannesdóttir
67. mín
MAAAARK!
Margrét Brynja Kristinsdóttir
Þær eru að jafna þetta! Þetta er það sem er svoooo hættulegt að vera bara einu marki yfir! Margrét Brynja gerir þetta hins vegar ógeðslega vel! Skýtur fyrst í Jakobínu, fær boltann til sín aftur og miðar þá bara betur í fjærhornið
65. mín
ÚFFFF
Málfríður stálheppin þarna að setja ekki boltann í eigið mark, Fanney Lísa á sprettinum komin út að endalínu setur boltan í Möllu og upp í slánna!
64. mín
Fanney Lísa brýtur á Bryndísi á miðjum vallarhelmingi Stjörnunnar, Ísabella og Sóley taka þetta stutt en ekkert kemur úr þessu
62. mín
Úlfa Dís með fyrirgjöf, reynir að finna Birnu inn í teignum en Tinna Brá er fyrst á boltann
59. mín
Valskonur komast í ágætisfæri en Skiba kemst inn í þetta
57. mín
Lillý Rut!
Hulda Hrund ætlaði að lauma boltanum inn á Birnu sem var alein gegn markmanninum en Lillý las þetta eins og opna bók og kom í veg fyrir dauðafæri!
55. mín
Telma með frábæra tæklingu kemur í veg fyrir að Ísabella Sara nái að valda einhverjum usla
53. mín
Fanney Lísa reynir að renna boltanum tjahh á nærstöngina eða fyrir? En allavega rennur hann útfyrir endalínu
48. mín
Kolbrá Una nær hörkuuuu skoti en það er framhjá
48. mín
Sóley Edda tekur horn fyrir Val, setur hann fastann a miðjan teiginn en þær ná ekki til hans
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Ísabella Sara sparkar seinni hálfleiknum aftur af stað
46. mín
InnHulda Hrund Arnarsdóttir
ÚtAníta Ýr Þorvaldsdóttir
46. mín
InnKolbrá Una Kristinsdóttir
ÚtSonja Björg Sigurðardóttir
46. mín
InnArnfríður Auður Arnarsdóttir
ÚtHelga Rut Einarsdóttir
45. mín
Nokkrar myndir frá fyrri hálfleik






45. mín
Hálfleikur á Hlíðarenda!
Stjarnan leiða hér 0-1 í hálfleik en það er rosalega lítið forskot og það getur allt gerst í seinni hálfleik!
45. mín
45+8 Fanney Lísa með flotta takta setur síðan góðan bolta fyrir stýrir honum á kollinn á Birnu en hún hins vegar nær ekki að stýra honum á markið og langt framhjá
45. mín
45+7 Andrea brýtur á Ísabellu inn í miðjuboganum, þær taka þetta hratt
45. mín
45+5 Birna kemur sér í frábæra stöðu en nær ekki nægum krafti í fyrirgjöfina, þetta hefði getað orðið eðal tækifæri til að tvöfalda forskotið fyrir hálfleik
45. mín
45+4 Andrea Mist með horn fyrir Stjörnukonur, Telma nær þrusu skalla en rétt framhjá
45. mín
Shiiiiiii
45+3 Birna setur boltann í slánna, þær eru svo nálægt því að bæta við
45. mín
A.m.k 7 mínútur í uppbótartíma! Enda hafa verið þónokkrar tafir á leiknum
45. mín
Aníta ýr nálægt því að bæta við! Úlfa laumar boltanum inn á hana en hún nær ekki að setja kraft í skotið
44. mín
Gult spjald
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
Fer harkalega í Margréti Brynju og stöðvar skyndisókn42. mín
Hafliði Breiðfjörð er á vellinum og fangaði stemminguna í markinu!






40. mín
Sonja Björg með lúmskt skot af löngu færi en Skiba er fljót niður og tekur hann
37. mín
Úlfa Dís í kapphlauði við Lillý Rut en Lillý aðeins fljótari að komast í boltann og setur hann útaf
36. mín
Andrea með horn, finnur Fanneyju stutt sem lætur bara vaða en framhjá markinu
35. mín
Fanney Lísa gerir vel, eltir boltann upp að endalínu og nær að koma honum fyrir, út í teiginn en vantaði herslu muninn þarna
34. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu á hættulegum stað, rétt utan við vítateigsbogann, Andrea Mist lætur vaða en það er hátt yfir
33. mín
Úlfa Dís gerir vel, finnur svo Birnu inn í teig en hún nær ekki skotinu
32. mín
Vá!!
Þarna munaði mjóu! Fanney Lísa nelgdi boltanum í slánna
31. mín
Helga Rut finnur Sóleyju Eddu upp í horn sem nær fyrirgjöfinni en Skiba vel vakandi og handsamar boltann
28. mín
Úfff
Valskonur komast í góða skyndisókn sem enda með hættulegu skoti frá Nadíu en það er örfínt framhjá fjærstönginni
27. mín
Fanney Lísa reynir fyrirgjöf en yfir markið
25. mín
Brotið á Ísabellu, hún tekur spyrnuna sjálf, hún er föst inn í teig þar lendir Skiba í samstuði við Valsara og missir boltann frá sér en brotið er dæmt
23. mín
Þeir segja mér Valsararnir að Esther varamarkmaður hafi fengið heilahristing á æfingu og því ekki í hóp.... vonandi getur Tinna harkað þetta af sér út leikinn
22. mín
Tinna er eitthvað ennþá að kveinka sér, ég sé ekki í fljótu bragði neinn varamarkmann á bekknum
20. mín
Nadía Atla ryenir skot utan af velli, ekki galin tilraun en framhjá að þessu sinni
18. mín
Þóra María reynir fyrirgjöf en Tinna grípur hana örugglega
16. mín
Jæja! við erum komin aftur af stað, innkast sem Stjarnan fékk en gerðu þó lítið úr...
15. mín
Tinna Brá er byrjuð að reima skóinn á aftur þannig við hljótum að fara að byrja þetta aftur
12. mín
Enn er verið að hlúa að Tinnu Brá, liðin nýta það bæði vel í liðsfund
10. mín
Aníta Ýr er við það að koma sér í góða stöðu en Tinna kemur veeeeel út úr markinu á móti henni sem endar ekki betur en svo að þær liggja báðar eftir við hægra vítateigshornið. Stjörnukonur vilja víti en hornspyrna varð það heillin!
6. mín
Ísabella Sara tekur aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Stjörnunnar, fínast fyrirgjöf en Skiba hins vegar fyrst á boltann
3. mín
MAAAARK!
Þóra María Hjaltadóttir (stoðsending: Andrea Mist Pálsdóttir)
Þetta var ekki lengi gert! Andrea með frábæra hornspyrnu inn á miðjan teiginn þar er Þóra María algjörlega ein og óvölduð og stýrir boltanum inn í fyrsta
3. mín
Helga Rut brýtur á Birnu við hornfánann, Andrea Mist tekur spyrnuna á fjær, Telma er nálægt þessu en fer af varnarmanni
1. mín
Úlfa Dís sparkar þessu af stað fyrir Stjörnuna
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin eru komin út á völl þetta er allt samkvæmt áætlun
Fyrir leik
Stjarnan - byrjunarlið
Óskar Smári gerir einnig 1x breytingu á sínu liði frá 3-0 sigri gegn Fram fyrir hlé. Inn í liðið kemur Aníta Ýr en Snædís María tekur sér sæti á bekknum.


Fyrir leik
Valur - byrjunarlið
Matthías þjálfari Vals gerir 1x breytingu á sínu liðið frá 1-1 jafnteflinu gegn FH fyrir hlé. Inn í liðið kemur Ísabella Sara en Kolbrá Una fær sér sæti á bekknum.


Fyrir leik
Varnarsinnuð lið
Liðin í kvöld eru þau lið í deildinni í sumar sem fengið hafa á sig fæst mörk. Stjarnan hefur ekki fengið á sig nema 8 mörk í sumar og eru með langfæst mörk skoruð á sig. Valur hefur einnig verið solid varnarlega og hefur einungis fengið á sig 11 mörk þær hins vegar hafa átt í miklum vandræðum með að skora og hafa einungis skorað 8 mörk. Ætli það sé ekki akkúrat ástæðan fyrir stöðu liðanna í töflunni en Stjarnan hefur skorað 8 mörkum fleiri! sem sagt 16 mörk!
Ég vona nú samt að við fáum ekki of lokaðan leik hér í kvöld þrátt fyrir góðan varnarleik beggja liða! Ég vill allavega fá smá action takk!


Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust 29. apríl sl. þar sem Stjarnan fór með 2-0 sigur af hólmi. Birna Jóhannsdóttir skoraði þar fyrsta mark leiksins á 61. mínútu áður en Jana Sól Valdimarsdóttir rak smiðshöggið á lokamínútu venjulegs leikstíma.

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur hafa heldur betur verið að sækja í sig veðrið og hafa sigrað síðustu fjóra leiki sína í deildinni. Þær sitja í 3. sæti með 17 stig, fimm unna leiki, tvö jafntefli og tveir tapleikir. Vinni Stjarnan í dag þá eru þær komnar langleiðina í að tryggja sig í bullandi toppbaráttu en stigin þrjú tryggir þeim 20 stig. Þ.e. einu stigi á eftir Breiðabliki og þremur stigum á eftir FH á toppnum.

Fyrir leik
Valur
Valskonur hafa verið í bullandi botnbaráttuslag í sumar og hafa einungis unnið tvo leiki. gert þrjú jafntefli og tapað fjórum. Þær sitja fyrir þennan leik í 8. sætinu með níu stig og eftir leiki gærdagsins er mjög stutt á milli í neðri hlutanum. Þrjú stig í dag og þær væru komnar upp í 6. sætið.
Fyrir hléið náðu þær mikilvægu og nokkuð óvæntu jafntefli við FH og hafa sýnt framfarir í sínum leik.

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts verða Þráinn Jón Elmarsson og Heimir Árni Erlendsson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Óli Njáll Ingólfsson og eftirlitsmaður í dag er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Fyrir leik
Hlíðarendi heilsar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Hlíðarenda þar sem Valur tekur á móti Stjörnunni í 11. umferð Bestu deildarinnar.
Leikurinn hefst á slaginu 18:00!




