Fotbolti.net
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild karla
JBÓ Völlurinn
Grátt yfir og mikill vindur
Njarðvík
Njarðvík
5 - 4
Grindavík
Grindavík
0 - 16' Stefán Jón FriðrikssonAron Einarsson 12'1 - 11 - 217' Rúnar Ingi EysteinssonLeandro Fernandes 26'2 - 2Leandro Fernandes 38'3 - 23 - 342' Gunnleifur Orri GunnleifssonArnleifur Hjörleifsson 50'4 - 34 - 463' Gunnleifur Orri GunnleifssonEiður Aron Sigurbjörnsson 76'5 - 4
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson

SKÝRSLAN: Það sá þetta ekki nokkur maður fyrir

Hvað réði úrslitum?

Þetta var ótrúlegur leikur og það var enginn að búast við þessu fyrirfram. Þetta voru tvö bestu varnarlið deildarinnar fyrir leikinn en það var enginn varnarleikur spilaður í kvöld. Á endanum voru Njarðvíkingar sterkari á svellinu en það var ekkert rosalega mikið sem skildi liðin að í opnum og stórskemmtilegum leik. Mögulega var þetta skemmtilegasti leikur Íslandsmótsins til þessa.

Bestu leikmenn

1. Leandro Fernandes (Njarðvík)

,,Hvar hefur hann verið?" heyrðist í stúkunni í Njarðvík í kvöld. Leandro fór hægt af stað í sumar en hefur verið að stíga upp í undanförnum leikjum. Hann skoraði tvö í kvöld og lagði upp sigurmarkið. Skemmtilegur leikmaður.

2. Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)

Skoraði tvö mörk fyrir Grindavík í kvöld og var ekki langt frá því að fullkomna þrennuna undir lokin. Mjög sprækur frammi hjá Grindavíkurliðinu.

Atvikið

Það er auðvitað bara sigurmarkið sem Eiður Aron skorar í seinni hálfleiknum. Hans fyrsta mark fyrir Njarðvík stuttu eftir að hann framlengir við félagið. Njarðvík náði að verjast ágætlega eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvík tengir saman tvo sigra í fyrsta sinn í sumar og færir sig upp í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig. Þeir eru núna bara einu stigi frá fimmta sætinu, umspilssæti en þeir eru að horfa ofar en það. Grindavík hefur bara unnið einn leik í sumar og er í tíunda sæti með tíu stig.

Vondur dagur

Vanarleikurinn í heild sinni átti vondan dag. Það var í raun bara ekki boðið upp á neinn varnarleik fyrir utan síðustu 20 mínúturnar eða svo.

Dómarinn - 5

Nokkuð furðuleg lína inn á milli og bæði lið voru ósátt á köflum. Allt í lagi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.