Fotbolti.net
@fotboltinetMagnús Atlason
Magnús Atlason
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
ÍR
ÍR
0 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Fyrir leik
Mættust í 2. umferð
Þróttur bar sigur úr býtum í fyrri leik liðanna. Þá komust Þróttarar í 3-0 í fyrri hálfleik eftir að Ágúst Unnar Kristinsson, leikmaður ÍR, fékk rautt strax á 18. mínútu. ÍR-ingar klóruðu í bakkann í seinni og leikurinn endaði 3-1.
Fyrir leik
Þróttur
Það er aðra sögu að segja frá Þrótti sem sitja í 3. sæti, tveimur stigum frá Aftureldingu á toppnum. Þeir eru þó sigurlausir í síðustu tveimur svo þeir þurfa helst sigur í kvöld til að halda sér almennilega í titilbaráttunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
ÍR
ÍR-ingar hafa verið í brasi þetta tímabilið. Þeir sitja í 9. sæti deildarinnar með 11 stig og eru þremur stigum frá botninum. Þeir hafa fengið einungis fengið 4 stig í síðustu 7 leikjum. ÍR-ingar hafa verið duglegir að skora en hafa sömuleiðis fengið á sig allt of mörg mörk þetta tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Dómaraeftirlitsmaður leiksins verður Lúðvík Þorgeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
13. umferð hefst í dag
13. umferðin hefst í dag með 4 leikjum, hún heldur svo áfram á morgun með einum leik fyrir norðan og lýkur svo á mánudag með stórleik Vestra og Fylkis. Föstudagur 10. júlí Ægir - HK (19:15) ÍR - Þróttur (19:15) Leiknir - Grótta (19:15) Njarðvík - Grindavík (19:15) Laugardagur 11. júlí Völsungur - Afturelding (14:00) Mánudagur 13. júlí Vestri - Fylkir (20:15)
Fyrir leik
Lengjudeildin kallar
Verið velkomin kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik ÍR og Þróttar í 13. umferð Lengjudeildarinnar sem spilaður er á Þarfaþingsvellinum.
Mynd: Lengjudeildin
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.