Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 0
Valur
Valur
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Fyrir leik
Nýr þjálfari í boðvanginum
Valur er komin með nýjan þjálfara hann Chris Brazell, hann var aðstoðarþjálfari Hemma á þessu tímabili. Sumir vilja segja samt að Brazell hafi verið aðalþjálfari Vals og að hann væri að stýra öllu. Brazell hefur stýrt Valsliðinu í einum leik sem aðalþjálfari, það var gegn ÍBV í síðasta leik. Þar tapaði Valur 1-0 og fyrirliðinn Hólmar Örn fékk rautt, Hólmar spilar ekki í dag og ekki heldur í næsta leik þar sem hann fékk tveggja leikja bann.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mikið hefur verið rætt og ritað um hann Chris Brazell. Talað hefur verið um það að hegðun hans gagnvart dómurum og fréttamönnum hefur ekki verið góð. Rifjað hefur verið upp atvik fyrir fjórum árum þegar Brazell var þá þjálfari Gróttu, liðið hans var að spila gegn HK í Kórnum. Brazell var ósáttur út í dómarann að hann beið eftir Erlendi Eiríkssyni dómara í um klukkustund eftir leik fyrir utan dómaraklefana.
Fyrir leik
Taplausir í síðustu fjórum leikjum
Heimamenn í FH hafa ekki tapað leik í síðustu fjórum leikjum. Einn sigur gegn Keflavík á úti velli og svo hafa þeir gert þrjú jafntefli, allt á heimavelli. Í síðasta leik spiluðu FHingar gegn Stjörnunni og fór leikurinn 2-2, Ísak Óli og Adolf Daði með mörkin.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Þrátt fyrir að vera taplausir í fjórum leikjum er FH samt enn þá í fallsæti, þeir sitja í 11. sæti. En það munar bara 2 stigum á milli 11. sæti og 10. sæti. KA situr í 10.sæti, þeir fá ÍA í heimsókn og ef allt fer vel þá getur FH loksins komið sér úr fallsætinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Kári er búin að stíga upp í síðustu leikjum, sigurmarkið gegn Keflavík og 3 stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum. 3 mörk og 5 stoðsendingar á þessu tímabili.
Fyrir leik
Dómarakvartett
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna, Ragnar þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason verða með flöggin. Pétur Guðmundsson verður með skiltið góða.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta Deildin heilsar
Það er komið að 14. umferð Bestu deildarinnar, FH tekur á móti Val í Kaplakrika. Leikurinn byrjar kl 20:05.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.