Leik lokið!
Flautað af um leið og Skagamenn taka miðjuna
95. mín
Hallgrímur svo gott sem tryggir KA sigurinn
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Hann fylgir á eftir og skorar!95. mín
Víti misnotað
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Jón Sölvi VER frá Grímsa95. mín
KA FÆR VÍTI!
Danijel og Jón Gísli faðmast inn á teig og Danijel dettur
91. mín
InnBreki Hólm Baldursson
ÚtBirgir Baldvinsson
91. mín
Danijel reynir bakfallsspyrnu en hittir ekki markið.
90. mín
fimm mínútur í uppbótatíma
89. mín
Gult spjald
Jakob Snær Árnason
87. mín
Gísli Eyjólfs í dauðafæri en Hans Viktor réttur maður á réttum stað og bjargar áa síðustu stundu
85. mín
Verið nokkuð rólegt undanfarnar mínútur
78. mín
Skalli rétt yfir markið hjá Viktori Jóns
78. mín
InnBaldvin Þór Berndsen
ÚtRúnar Már S Sigurjónsson
77. mín
InnDiego Montiel
ÚtJeppe Pedersen
73. mín
MAAARK
Sveinn Margeir Hauksson
KA menn jafna metin! Danije Djuric með fyrirgjöf beint á kollinn á Sveini sem skorar annað mark KA og annað mark sitt71. mín
Viktor Jónsson kemst í gegn en Stubbur sér við honum
68. mín
InnGísli Laxdal Unnarsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
68. mín
InnViktor Jónsson
ÚtMarkús Páll Ellertsson
68. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtJakob Héðinn Róbertsson
67. mín
Gísli Eyjólfs með skot rétt framhjá
62. mín
Þvílíkt mark
Sveinn Margeir Hauksson (stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson)
Hallgrímur Mar leggur boltann á Svein Margeir sem tekur skotið langt fyrir utan teig og boltinn syngur í netinu59. mín
Tvöfaldar forystu Skagamanna
Rúnar Már S Sigurjónsson
Setur boltann beint á markið57. mín
Víti!
Stubbur og Gísli Eyjólfs stökkva upp í bolta. Gísli á undan og Stubbur kýlir hann.
56. mín
DAUÐAFÆRI
Sveinn Margeir sleppur einn í gegn en hann kemur boltanum ekki framhjá Jóni Sölva. Illa farið með gott færi þarna!
52. mín
Gísli Eyjólfsson með fína tilraun en Stubbur ver í horn
51. mín
Færi
Ómar Björn Stefánsson kemst í gegn en Stubbur kemur út á móti og ver vel.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Gestirnir hefja leik í seinni
45. mín
Gestirnir marki yfir í hálfleik. Komum aftur með seinni hálfleikinn eftir andartak.
45. mín
DAUÐAFÆRI
Danijel Dejan og Hans Viktor í dauðafæri. Sýnist það vera Hans sem nær skoti en Jón Sölvi fleygir sér á boltann og bjargar.
43. mín
Jakob Snær Árnason með skot en boltinn yfir markið
41. mín
Hættuleg fyrirgjöf frá Hallgrím Mar og boltinn fer af Gísl Eyjólfs og í horn. Ekkert kom út úr því.
38. mín
MAARK
Gísli Eyjólfsson (stoðsending: Rúnar Már S Sigurjónsson)
Rúnar Már með hornspyrnu á nærstöngina og Gísli skallar boltann í netið.34. mín
Markús Páll með slaka tilraun. Aðeins að flýta sér og á erfitt skot sem fer vel framhjá.
27. mín
Sýndist það vera Markús Páll sem komst í boltann eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu. Boltinn beint á Steinþór Má en sem betur fer fyrir Markús var rangstaða dæmd.
23. mín
Fyrsta færi Skagamanna
Jón Gísli Eyland Gíslason með skot en boltinn fer af varnarmanni og í horn
20. mín
Danijel Dejan Djuric í fínu skotfæri. Hann nær ekki að setja boltann á markið og vindurinn hjálpar boltanum að svífa vel yfir.
13. mín
FÆRI
Hallgrímur Mar er inn á teig og sendir boltann fyrir. Hvorki Jakob Héðinn né Sveinn Margeir ná til boltans og Sveinn Margeir dæmdur brotlegur.
12. mín
KA menn eru líklegri. Jakob Héðinn var nálægt því að sleppa í gegn en Erik Sandberg sá við honum. Strax í kjölfarið átti Hallgrímur Mar frábæra stungusendingu á Guðjón Erni en honum tókst ekki að setja boltann fyrir.
7. mín
Hornspyrna frá Hallgrím Mar sem Skagamenn koma frá, en ekki langt. Boltinn berst til Jeppe Pedersen sem á skot í D-boganum en boltinn beint á Jón Sölva.
1. mín
Guðjón Ernir Hrafnkelsson með fyrstu tilraunina. KA-menn vildu horn en markspyrna dæmd.
1. mín
Heimamenn koma þessu af stað
Fyrir leik
Þetta er að bresta á
Liðin eru að ganga út á völl
Fyrir leik
Gæti orðið skrautlegt
Það eru vægast sagt skrautlegar aðstæður á Akureyri í dag. Asskoti hvasst.
Fyrir leik
Kristalkúlan
KA leka inn endalaust af mörkum en geta vel skorað líka, “bæði lið skora 2+ mörk” : Já er 3.15 á Epic og því miður fyrir fyrrum varnarmennina Lárus og Hallgrím þá dettur það. pic.twitter.com/k96naSRzrG
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 12, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það er ein breyting á liði KA sem tapaði 3-2 gegn Víkingi í síðustu umferð. Oliver Heiðarsson fótbrotnaði gegn Víkingi. Sveinn Margeir Hauksson kemur inn í liðið í hans stað.
Jón Gísli Eyland Gíslason kemur inn í liðið fyrir Guðmund Þórarinsson sem er ekki í hópnum.

Fyrir leik
Viðar Örn spáir sínum gömlu félögum sigri
Viðar Örn Kjartansson, fyrrum leikmaður KA og núverandi leikmaður Selfoss, spáir sínum gömlu félögum sigri í markaleik.
KA 4 - 3 ÍA
Mikill markaleikur, KA fara oft að taka við sér þegar líður á og ég held að það 'run' byrji núna. Kári Gauta leggur upp tvö.
Viðar Örn í leik með KA

Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í kvöld. Eðvarð Þór Eðvarðsson og Antoníus Bjarki Halldórsson verða honum til aðstoðar. Sveinn Arnarsson er fjórði dómari og Valdimar Pálsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Gunnar Freyr Róbertsson

Fyrir leik
Fyrri leikurinn
Liðin mættust á Akranesi í 3. umferð þann 22. apríl. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Markús Páll Ellertsson sá til þess að ÍA var með forystuna í hálfleik en Diego Montiel jafnaði metin á 70. mínútu.

Fyrir leik
ÍA
Það var búist við miklu af ÍA fyrir tímabilið. Liðið hefur hins vegar alls ekki staðið undir væntingum og er í 9. sæti, fimm stigum á undan KA. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð gegn þremur af fjórum efstu liðum deildarinnar.
Lárus Orri Sigurðsson þjálfari ÍA

Fyrir leik
KA
KA hefur verið í miklu brasi á þessu tímabili. Liðið er í 10. sæti með tíu stig eftir þrettán umferðir. KA hefur tapað sex leikjum í röð.
Hallgrímur Jónasson þjálfari KA

Fyrir leik
Góða kvöldið
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og ÍA í Bestu deildinni. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.




