Leik lokið!
Fyrsti heimasigur FH er staðreynd, takk fyrir mig, skýrsla og viðtöl á leiðinn.
94. mín
Gult spjald
Jakob Franz Pálsson
93. mín
FH er komið í hornið og ætla að eyða tíma.
91. mín
Hann vill þrennu
Valur er í brasi að koam boltanum burt, Gils snýr og curlar honum í átt að markinu en skotið rétt framhjá.
90. mín
Dómarinn bætir við fjórum mín.
88. mín
MAAAARK!
Gils Gíslason (stoðsending: Kristján Flóki Finnbogason)
Innkast beint á Kristján Flóka sem skallar beint á Gils sem keyrir upp vinstri kantinn, Ólafur Flóki reynir að tækla Gils en getur það ekki og Gils er þá kominn í 1v1 og hann slúttar framhjá Schram.88. mín
FH vill fá hendi, ég er sammála þeim en þeir fá innkastið.
87. mín
Aukaspyrna sem Valur fær, hún er skölluð burt.
87. mín
Gult spjald
Tómas Orri Róbertsson
85. mín
Orðið smá rólegt núna.
80. mín
Gult spjald
Lúkas Logi Heimisson
Brazell tekur liðsfund á meðan leikmaður FH er niðri.79. mín
MAAAARK!
Gils Gíslason
Jæja jæja Valur. FH reynir að komast í skyndisókn en sendingin er léleg og Stöle stoppar sóknina. En hvað gera menn þá? Stöle kemur með mjög lélega sendingu til baka sem er of stutt, Gils kemst í boltann og vippar yfir Schram. Þetta er sárt fyrir Valsmenn að sjá.78. mín
Lúkas Logi í skyndisókn, sendir á Jónatan sem sendir til baka og Lúkas skýtur, en tveir varnarmenn slæda fyrir skotið.
76. mín
Brazell með engar breytingar, ekkert traust á unga bekkinn?
74. mín
Hár bolti inn í teiginn, Ísak fær hann og tekur svo volley sem er langt yfir.
73. mín
Dauða
Gils á vinstri kant kemur boltanum inn í teig, boltinn fer beint á Kjartan sem er við vítapunktinn sem neglir honum yfir.
72. mín
Skot á markið frá horninu en varnarmaður Vals kemur honum burt.
72. mín
Horn fyrir FH.
71. mín
Gils byrjar með látum og kemur með fyrirgjöf sem er of há.
70. mín
InnKristján Flóki Finnbogason
ÚtÚlfur Ágúst Björnsson
70. mín
InnGils Gíslason
ÚtAdolf Daði Birgisson
69. mín
Veldman hoppar yfir einn og ætlar að skjóta þangað til að hann er tæklaður.
68. mín
Hérna kemur skot frá FH, en það var lélegt og framhjá.
67. mín
Adolf tekinn niður í boxinu og fær ekki víti.
66. mín
FH er í sókn og gera ekki neitt, þeir senda bara á milli sín og enda svo að senda boltann til baka.
63. mín
Valur er búin að vera miklu betri í seinni hálfleik, ég man ekki eftir skoti frá FH í seinni.
62. mín
Dauðafæri aftur!
Jónatan kemur með utanfótarsendingu og setur Stöle í gegn, hann sendir á Tryggva sem er við vítapunktinn, Tryggvi neglir beint í Jökull.
60. mín
Lúkas Logi með skot fyrir utan teiginn, en Jökull ver þægilega.
58. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtSverrir Páll Hjaltested
58. mín
InnÍsak Óli Ólafsson
ÚtRóbert Hugi Sævarsson
57. mín
Enn eitt annað dauða
Hár bolti inn í teig á Jónatan sem er á fjær sem skýtur yfir markið.
57. mín
Dauðafæri
Skoglund kemst í svaka færi en skotið er beint á Jökul sem ver.
56. mín
Jónatan sendir inn í teiginn á Tryggva sem endar svo að missa boltann.
54. mín
Færi!
Jónatan Ingi kemst framhjá fjórum leikmönnum FH, sendir á Tryggva sem sendir á Skoglund, en sendingin er fyrir aftan Skoglund og hittir hann ekki boltann nægilega vel.
52. mín
Rennilás á skóna takk
Jóhann Ingi stoppar leikinn, hann þarf að reima skóna. Þegar hann er búin þá er klappað fyrir honum.
51. mín
Lúkas Logi lætur vaða fyrir utan teig, langt yfir.
50. mín
Lúkas Logi klárlega tekinn niður, dómarinn er ekki að dæma á augljós brot.
47. mín
Gult spjald
Jóhannes Karl Guðjónsson
Þjálfari FH fær að sjá það gula, veit nú ekki fyrir hvað.47. mín
Dauðafæri
Aukaspyrna inn í teig FH, Skoglund nær í hann og skýtur beint á Jökul sem ver boltann, boltinn dettur á Ólaf Flóka sem er með galopið markið en skýtur yfir.
46. mín
Nokkrir frægir einstaklingar hér í dag, Óli Jó, Túfa og Birkir Már meðal annars.
46. mín
Seinni hálfleikur
Gestirnir byrja.
45. mín
Engin mörk, en samt voru menn nálægt því að skora. Sjáumst eftir korter.
44. mín
Jói Kalli ekki kátur
Valsleikmaður sparkar boltanum burt og Jói Kalli er brjálaður og lætur fjórða heyra það.
43. mín
!
Boltinn dettur á Tómas inn í teig sem neglir honum í átt að markinu en Schram kemur boltanum yfir markið.
43. mín
Kjartan Kári fær boltann á vinstri kantinum, lætur vaða og Schram nær að verja.
42. mín
Valur fær horn, smá bras hjá FH en þeir koma boltanum burt.
41. mín
Gult spjald
Arngrímur Bjartur Guðmundsson
41. mín
Áhugavert
FHingar taka trikk aukaspyru, Tómas tekur hana stutt og Kjartan sem er á kantinum, sendir boltann inn í teig á Grétar sem skallar framhjá markinu. Ólafur Flóki stoppar boltann samt og kemur boltanum burt úr teignum.
39. mín
Tómas Orri og Adolf Daði teknir niður rétt fyrir framan teiginn.
37. mín
Gott færi
Hár bolti inn í teig á Kjartan sem kemst ekki framhjá sínum manni og lætur svo vaða beint í varnarmann.
37. mín
Tómas með lélegar bolta til baka, Stöle nær honum en er svo með lélega snertingu og missir boltann.
35. mín
Dauðafæri aftur, hvernig skorar hann ekki?
Veldman vippar boltanum inn í teig beint á Skoglund sem er fyrir framan marklínuna nánast, neglir beint í slána. Þetta átti að vera fyrsta markið.
32. mín
Dauðafæri
Adolf tekur innkast á Tómas Orra sem er kominn framhjá Veldman og kemst inn í teiginn, fer framhjá Ólaf Flóka og neglir svo beint á markið. Schram ver svakalega, boltinn dettur á Kjartan sem skýtur svo yfir markið.
30. mín
Úlfur skýtur framhjá markinu.
29. mín
Aukaspyrna langt frá, Kjartan Kári sendir ekki inn í teig heldur lætur vaða, Schram grípur skotið þægilega.
27. mín
Skoglund lætur vaða fyrir utan teiginn, skotið er lengt yfir markið.
25. mín
Dauðafæri
FH fær horn, Úlfur rís manna hæst og skallar beint á markið, en Schram ver skallann.
25. mín
Færiii
Hár bolti inn í teig beint á Úlf sem þarf að koma boltanum yfir slána, mjög nálægt því að skora. Leikurinn er að lifna við.
23. mín
Rangstaða
Lúkas Logi með boltann inn í teiginn beint á Tryggva sem skýtur beint í gegnum Jökul en Tryggvi er rangur og markið stendur ekki.
23. mín
Veldman dettur niður frekar auðveldlega.
22. mín
Klárt hendi á Stephensen en FH heldur boltanum.
19. mín
Þsð heyrist vel í Brazell, fær til sín fjóra leikmenn og segir þeim hvað þeir eiga að gera á meðan leikmaður Vals er niðri. Stúkan er ekki ánægð og einhver öskrar ,,áfram með leikinn". Jói Kalli virðist ekki vera kátur með þetta.
17. mín
Kannski er það rétt hjá Viðari að þessi leikur sé ekki mikið fyrir augað.
15. mín
Valur mætt í fimm manna varnarlínu þegar þeir verjast.
13. mín
Enn og aftur er Valur í erfiðleikum að hitta ekki boltann. FH hefur verið líka í brasi.
11. mín
Enn ein önnur skyndisóknin
Valur missir boltann aftur klaufalega, Úlfur fær hann í góðri fyrirgjafastöðu en sendir beint í leikmann Vals og út fyrir horn. Hornið fer svo ekki neitt. Þeir eiga að nýta þessar stöður betur.
10. mín
Þegar FH er í sókn þá eru þeir í þriggja manna vörn, Birkir Valur, Arngrímur og Grétar.
8. mín
Grétar er í brasi og hittir ekki boltann, Lúkas Logi keyrir inn í teiginn en missir svo boltann.
7. mín
Færiiii
Valur missir boltann klaufalega og allt í einu er FH komin í 5 á 2. Tómas Orri sendir ekki og lætur vaða en Schram ver.
6. mín
Tryggvi Hrafn sleppur í gegn en hann er rangur.
4. mín
Fyrsta skotið
Úlfur rennir boltanum inn í teig Vals, beint á Róbert Huga sem skýtur yfir markið.
3. mín
Innkast inn í teig í átt að Tómasi Orra en hann hittur ekki boltann og Valur sparkar boltanum burt.
3. mín
Birkir Valur með fyrigjöf inn í teig sem er skölluð burt.
2. mín
Föst sending á Tómas Orra sem missir boltann í innkast.
2. mín
Brazell labbar alla hliðarlínuna frá horninu inn í göngin og svo til baka.
1. mín
Áhugavert að minnast á það að Adam Páls er ekki í byrjunarliðunu né á bekknum, samt sá ég hann hér í dag í mannvirkinu fyrir leik.
1. mín
Heimamenn byrja.
Fyrir leik
Leikmenn eru mættir inn á völlinn, veislan er að byrja.
Fyrir leik
Áhugaverður bekkur hjá Val, meðalaldurinn er 17 ára og elsti á bekknum er Dagur Orri Garðarsson sem er 20 ára. 14 ára Novak Tufegdzic er á bekknum líka.
Fyrir leik
Þessi vörn hjá FH er á lengjudeildar standard að mínu mati, Tryggvi og Jónatan nýta sér það. Valur yfir 1,5 mörk á Epic.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 12, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt í hús
Jói Kalli með tvær og Brazell með fjórar. Báðir fyrirliðar annaðhvort á bekknum eða ekki með vegna leikbanns.
Fyrir leik
Spámaðurinn segir FH 1 - 1 Valur
,,Þessi verður ekki mikið fyrir augað."
Við auðvitað vonum að hann hafi rangt fyrir sér!
Fyrir leik
Nýr þjálfari í boðvanginum
Valur er komin með nýjan þjálfara hann Chris Brazell, hann var aðstoðarþjálfari Hemma á þessu tímabili. Sumir vilja segja samt að Brazell hafi verið aðalþjálfari Vals og að hann væri að stýra öllu. Brazell hefur stýrt Valsliðinu í einum leik sem aðalþjálfari, það var gegn ÍBV í síðasta leik. Þar tapaði Valur 1-0 og fyrirliðinn Hólmar Örn fékk rautt, Hólmar spilar ekki í dag og ekki heldur í næsta leik þar sem hann fékk tveggja leikja bann.
Mikið hefur verið rætt og ritað um hann Chris Brazell. Talað hefur verið um það að hegðun hans gagnvart dómurum og fréttamönnum hefur ekki verið góð. Rifjað hefur verið upp atvik fyrir fjórum árum þegar Brazell var þá þjálfari Gróttu, liðið hans var að spila gegn HK í Kórnum. Brazell var ósáttur út í dómarann að hann beið eftir Erlendi Eiríkssyni dómara í um klukkustund eftir leik fyrir utan dómaraklefana.

Fyrir leik
Taplausir í síðustu fjórum leikjum
Heimamenn í FH hafa ekki tapað leik í síðustu fjórum leikjum. Einn sigur gegn Keflavík á úti velli og svo hafa þeir gert þrjú jafntefli, allt á heimavelli. Í síðasta leik spiluðu FHingar gegn Stjörnunni og fór leikurinn 2-2, Ísak Óli og Adolf Daði með mörkin.
Þrátt fyrir að vera taplausir í fjórum leikjum er FH samt enn þá í fallsæti, þeir sitja í 11. sæti. En það munar bara 2 stigum á milli 11. sæti og 10. sæti. KA situr í 10.sæti, þeir fá ÍA í heimsókn og ef allt fer vel þá getur FH loksins komið sér úr fallsætinu.
Kjartan Kári er búin að stíga upp í síðustu leikjum, sigurmarkið gegn Keflavík og 3 stoðsendingar í síðustu tveimur leikjum. 3 mörk og 5 stoðsendingar á þessu tímabili.


Fyrir leik
Dómarakvartett
Jóhann Ingi Jónsson verður með flautuna, Ragnar þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason verða með flöggin. Pétur Guðmundsson verður með skiltið góða.

Fyrir leik
Besta Deildin heilsar
Það er komið að 14. umferð Bestu deildarinnar, FH tekur á móti Val í Kaplakrika.
Leikurinn byrjar kl 20:05.
sunnudagur 12. júlí
18:00 Fram-Þór (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-ÍBV (Meistaravellir)
18:00 KA-ÍA (Greifavöllurinn)
20:05 FH-Valur (Kaplakrikavöllur)
mánudagur 13. júlí
19:15 Breiðablik-Keflavík (Eikarvöllurinn)

sunnudagur 12. júlí
18:00 Fram-Þór (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-ÍBV (Meistaravellir)
18:00 KA-ÍA (Greifavöllurinn)
20:05 FH-Valur (Kaplakrikavöllur)
mánudagur 13. júlí
19:15 Breiðablik-Keflavík (Eikarvöllurinn)







