Fyrir leik
Rosalegur leikur fyrr á tímabilinu
Liðin mættust í 3. umferð deildarinnar á Hásteinsvellinum þar sem leiknum lauk með 2-6 útisigri KR-inga. KR var komið í 0-6 eftir rúmar 60 mínútur en Eyjamenn potuðu inn tveimur mörkum og löguðu aðeins stöðuna. Eins og áður sagði byrjuðu Eyjamenn tímabilið hrikalega illa en spurning hvernig þeir mæta til leiks í dag.

Fyrir leik
Dómarateymið
Ívar Orri Kristjánsson er dómari leiksins en honum til aðstoðar eru þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson. Fjórði dómari er Arnar Þór Stefánsson og dómaraeftirlitsmaður er Einar Örn Daníelsson.

Fyrir leik
ÍBV
ÍBV kemur á fljúgandi siglingu inn í þennan leik en liðið er í 8. sæti með 15 stig eftir 13 leiki. Það sem er merkilegt að athuga er að eftir fyrstu sjö umferðir Bestu deildarinnar var ÍBV með eitt stig en í síðustu sex leikjum hefur liðið náð í 14 stig. Í síðustu umferð vann liðið 1-0 sigur á Val þar sem Valsliðið var án Hermanns Hreiðarsonar í fyrsta sinn á tímabilinu.

Fyrir leik
KR
Eins og flestir vita fóru KR-ingar ansi vel af stað í Bestu deildinni í ár en hefur aðeins fatast flugið í síðustu leikjum. Liðið er enn í 2. sæti, Fram er tveimur stigum á eftir þeim með leik til góða, en liðið er núna 11 stigum á eftir toppliði Víkings. KR er með 29 stig eftir 14 leiki en liðið hefur aðeins sótt fjögur stig í síðustu fjórum leikjum. Í síðustu umferð gerði liðið ótrúlegt 3-3 jafntefli gegn Þór á Akureyri þar sem Þór komst í 3-0 eftir 14 mínútur.

Fyrir leik
Meistaravellir!
Sæl öll og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik KR og ÍBV sem fer fram í Vesturbænum. 14. umferðin hefst í dag en þrír leikir fara fram núna klukkan 18:00.




