Leik lokið!
90+3
Leik lokið hér út á Seltjarnarnesi. Stórsigur heimamanna staðreynd. Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í dag, ég þakka fyrir mig.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
89. mín
InnSæmundur Hólm Gilbertsson
ÚtHarley Bryn Willard
85. mín
InnEinar Tómas Sveinbjarnarson
ÚtAndri Freyr Jónasson
Tvöföld skipting
85. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtBjörgvin Brimi Andrésson
81. mín
Nikola með fast skot fyrir utan teiginn en Guðmundur ver mjög vel á ný. Ægismenn hafa verið öflugir síðustu mínútur.
79. mín
Bjargað á línu
Gestirnir í færi eftir hornspyrnu en Dagur bjargar á línu.
74. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtHalldór Hilmir Thorsteinson
73. mín
InnBenedikt Þór Viðarsson
ÚtStefan Dabetic
Stefan getur ekki haldið leik áfram.
71. mín
Sjötta markið komið
Jónatan Ari Bragason
Grótta með horn á nærsvæðið, Jónatan rífur sig lausan og skallar boltanum í netið.68. mín
Mattías í færi en Stefan hendir sér fyrir skotið og liggur þjáður eftir. Myndi giska á uppsnúin ökkla. Leikurinn farinn af stað aftur og Ægismenn manni færri í bili.
67. mín
Ægir minnkar muninn
Daníel Karl Þrastarson
Daníel fær boltann inn í teignum og klárar vel framhjá Guðmundi.65. mín
InnJónatan Ari Bragason
ÚtNökkvi Már Nökkvason
63. mín
Dauðafæri inn í teig heimamanna en Guðmundur ver vel.
60. mín
InnHilmar Óli Viggósson
ÚtDajan Ponjevic
58. mín
Stefan Dabetic með hörkuskot fyrir utan teiginn en skotið rétt framhjá.
55. mín
Engu frá þrennunni
Mattías í dauðafæri en skotið rétt framhjá.
53. mín
Grótta kallar eftir víti
Viktor Orri fer niður í teignum og heimamenn heimta víti en ekkert dæmt. Þetta var á mörkunum.
50. mín
Björgvin Brimi kominn einn í gegn en skýtur rétt yfir markið. Þarna hefðu mörkin hæglega getað orðið 6.
47. mín
Ekki batnar það
Daníel Karl Þrastarson (sjm)
Gróttumenn komnir þrír á tvo og senda fyrir markið. Daníel reynir að hreinsa frá en setur boltann í eigið mark.46. mín
Farið af stað aftur
46. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtKristófer Dan Þórðarson
46. mín
InnNikola Kristinn Stojanovic
ÚtAlfredo Ivan Arguello Sanabria
46. mín
InnBjarki Rúnar Jónínuson
ÚtKristinn Ásgeir Þorbergsson
45. mín
Brynjar flautar til hálfleiks
Litlu bætt við þennan fyrri hálfleik. Tökum okkur korter og höldum svo áfram!
42. mín
Færi
Atli Rafn fær boltann inn í teig eftir fyrirgjöf og nær skotinu en Guðmundur ver vel.
41. mín
Hrannar Ingi með skotið frá D-boganum eftir góðan undirbúning Mattíasar en skotið rétt framhjá.
37. mín
Þetta er nú meira ruglið
Björgvin Brimi Andrésson
Góð uppbygging á sókn hjá Gróttu. Björgvin Brimi tekur svo hlaupið inn í teiginn og tekur skotið. Boltinn af Baptiste og skoppar þá óþægilega yfir Ómar sem kemur engum vörnum við.32. mín
Aftur er hann á ferðinni!
Mattías Kjeld
Mattías fær boltann inn á teignum og klárar snyrtilega niður í hægra hornið. Hann er ekki nema 16 ára gamall og þetta var áttunda markið hans á tímabilinu.31. mín
Jordan kominn í fína stöðu inn í teig en boltinn skoppar óheppilega í höndina á honum og aukaspyrna dæmd.
27. mín
Bolti í bíl á ferð!
Ægismenn í sókn en Grótta nær að tækla boltanum frá. Boltinn fer hátt upp í loftið og í bíl á ferð hér á Suðurströnd. Ekki miklar líkur á þessu.
20. mín
Kristófer Dan með lúmskt skot fyrir utan teiginn en skotið framhjá markinu.
16. mín
Já þetta var ekki lengi að gerast. Eftir fína byrjun gestanna hafa Gróttumenn snúið taflinu við.
14. mín
Forystan tvöfölduð
Mattías Kjeld
Mattías allt í einu kominn einn í gegn og klárar fagmannlega niður í hægra hornið framhjá Ómari í markinu.12. mín
Heimamenn ná forystunni!
Nökkvi Már Nökkvason
Hornspyrna inn í teiginn og Ægismenn í brasi með að hreinsa frá. Boltinn laus í teignum og Nökkvi ræðst á hann og klárar örugglega.8. mín
Alfredo með skemmtilegt volley á hinum enda vallarins en yfir fer knötturinn.
7. mín
Munaði mjóu
Fyrirgjöfin inn í teig og henni er flikkað lengra fyrir markið en Ægismenn ná ekki tánni í boltann sem hefði skilað honum í netið. Gestirnir hafa verið hættulegri þessar fyrstu mínútur.
6. mín
Gestirnir vinna annað horn.
5. mín
Flott spil hjá Ægismönnum. Paul Leonard gerir síðan mjög vel inn í teig en sendingin fyrir er hreinsuð í horn.
1. mín
Ægir sparkar þessu af stað!
Fyrir leik
Liðin gengin inn á og þau takast í hendur. Þetta fer að bresta á.
Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir
Gróttumenn gera þrjár breytingar á sínu byrjunarliði frá tapinu gegn Grindavík. Dagur Bjarkason, Nökkvi Már Nökkvason og Kristófer Dan Þórðarson sem er að stíga upp úr meiðslum koma inn í liðið í stað Axels Sigurðarsonar, Einar Tómasar Sveinbjörnssonar og Emils Skúla Einarssonar.
Gestirnir gera tvær breytingar eftir tapið gegn HK. Kristinn Ásberg Þorbergsson og Daníel Karl Þrastarson koma inn í liðið í stað Sigurðs Óla Guðjónssonar og Bjarka Rúnars Jónínusonar.
Gestirnir gera tvær breytingar eftir tapið gegn HK. Kristinn Ásberg Þorbergsson og Daníel Karl Þrastarson koma inn í liðið í stað Sigurðs Óla Guðjónssonar og Bjarka Rúnars Jónínusonar.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Grótta sótti 1-0 sigur til Þorlákshafnar í fyrri viðureign liðanna. Grímur Ingi Jakobsson skoraði þá sigurmarkið úr vítaspyrnu.


Fyrir leik
Ægir
Gestirnir sitja á botni deildarinnar með 8 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Þeir hafa sótt eitt stig í síðustu 7 deildarleikjum og hafa ekki unnið leik frá því í lok maí. Jordan Adeyemo hefur verið ljósi punktur liðsins en hann hefur skorað 8 mörk á tímabilinu.


Fyrir leik
Grótta
Heimamenn sitja í 8. sæti deildarinnar þar sem pakkinn er þéttur. Þeir eru með 19 stig og eru einungis 2 stigum frá umspilssæti. Þeir hafa sótt 7 stig í síðustu 5 leikjum en þeir töpuðu síðasta leik 2-1 gegn Grindavík hér á Vivaldi vellinum. Það er spurning hvort þeir nái að svara fyrir það hér í dag.
Fyrir leik
Dómaratríóið
Brynjar Þór Elvarsson verður með flautuna í dag og honum til aðstoðar verða Tryggvi Elías Hermannsson og Ásgeir Viktorsson. Dómaraeftirlitsmaður dagsins er Ólafur Ingi Guðmundsson.


Fyrir leik
14. umferðin hófst á fimmtudag
Leikurinn hér í dag er hluti af 14. umferð Lengjudeildarinnar. Svona lítur fjórtánda umferðin út:
16. júlí:
Afturelding 3-2 Leiknir (19:15).
17. júlí:
Fylkir 4-1 Njarðvík (19:15).
18. júlí:
Grótta - Ægir (14:00)
Grindavík - ÍR (14:00)
Þróttur - Völsungur (16:00)
20. júlí:
HK - Vestri (19:15)

16. júlí:
Afturelding 3-2 Leiknir (19:15).
17. júlí:
Fylkir 4-1 Njarðvík (19:15).
18. júlí:
Grótta - Ægir (14:00)
Grindavík - ÍR (14:00)
Þróttur - Völsungur (16:00)
20. júlí:
HK - Vestri (19:15)

Fyrir leik
Vivaldivöllurinn heilsar
Komiði sæl og blessuð og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu beint frá Vivaldi vellinum á Seltjarnarnesi þegar Grótta tekur á móti Ægi.





