Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna í sumar
Þróttarar heimsóttu Völsung til Húsavíkur í 3. umferð í leik sem fór 0-3. Þróttarar voru ekki lengi að komast í forystu í þeim leik en Aron Snær Ingason kom þeim yfir strax á 2. mínútu. Örn Bragi Hinriksson tvöfaldaði forystuna á 28. mínútu áður en Magnús Ingi Þórðarson setti þriðja markið á 31. mínútu.
Fyrir leik
Tríóið
Flautan er í öruggum höndum í dag en Elías Ingi Árnason dæmir þennan leik. AD1 er Mikael Ívan Axelsson og AD2 er Breki Sigurðsson.


Fyrir leik
Völsungur
Völsungsmenn eru í fallsæti eins og er, fjórum stigum frá öruggu sæti. Þeir hafa aðeeins unnið einn leik í sumar en hafa þó bara tapað einum af síðustu fimm sem hlýtur að vera eitthvað sem þeir horfa í, verst að jafntefli gefur bara eitt stig. Þeir fengu Aftureldingu í heimsókn í síðustu umferð í leik sem tapaðist 1-6.


Fyrir leik
Þróttur
Frammistaða Þróttara hefur aðeins dalað undanfarið og spurning hvort það sé beintengt meiðslum Sigurðs Egils Lárussonar. Í síðustu þrem leikjum hafa þeir gert tvö jafntefli og tapað einum. Þrátt fyrir það eru þeir enn í toppbaráttunni en þessi leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir þá ef þeir ætla ekki að missa af lestinni. Í síðustu umferð heimsóttu þeir ÍR í Breiðholtið í leik sem endaði 1-1.


Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur
Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá AVIS vellinum þar sem leikur Þróttar og Völsungs í fer fram.




