Leik lokið!
Framarar sigra Valsmenn!
96. mín
Valsmenn fá horn!
Schramarinn inn í!
91. mín
Gult spjald
Rúnar Kristinsson
Rúnar fær gult spjald fyrir lætin, það sýður á honum!91. mín
ÞAÐ ER ALLT BRJÁLAÐ!
Fram vilja fá aukaspyrnu áðu en Stefan Tufegdszic tekur skotið í varnarmann og rétt framhjá markinu. Þeir fá hana ekki og allt sýður upp úr!
90. mín
+5 í uppbót
90. mín
Í aðdragandanum keyrir Patrick Pedersen í Kennie Chopart. Þetta var mjög augljóst fannst mér, reynir ekkert við boltann. Dómarinn dæmir ekkert og beytir engum hagnaði. Varamannabekkur Fram varð brjálaður út í þriðja liðið sem ég skil.
88. mín
Þvílíkar senur!
Valsmenn með langa sókn sem ætlaði engan enda að taka. Endar með skoti frá Myles inni á teig Fram sem Viktor ver frábærlega.
Viktor varð því miður fyrir einhverju höggi í aðdragandanum og liggur niðri og þarf aðhlynningu.
Viktor varð því miður fyrir einhverju höggi í aðdragandanum og liggur niðri og þarf aðhlynningu.
86. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtFreyr Sigurðsson
86. mín
InnStefan Tufegdzic
ÚtJónatan Ingi Jónsson
86. mín
InnEmil Nönnu Sigurbjörnsson
ÚtAlbin Skoglund
83. mín
Framarar í góðri sókn
Boltinn dettur fyrir Jakub Byström inn á teig Valsmanna, hann reynir skotið í fyrsta sem fer yfir markið.
79. mín
Sókndjarft Valslið inn á
Valsliðið sem er inn á er afar sókndjarft. Aftasta línan er: Birkir - Samúel - Myles
Restin er meira og minna sóknarmenn, Fáum við einhverja dramatík hérna í lokin?
Restin er meira og minna sóknarmenn, Fáum við einhverja dramatík hérna í lokin?
78. mín
InnJakob Byström
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
78. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtFrederico Bello Saraiva
76. mín
Weak segja einhverjir.
Gult spjald
Albin Skoglund
Valsmenn kvarta.Weak segja einhverjir.
73. mín
Rólegt
Leikurinn hefur róast og ekkert mikið um færi þessa stundina. Það er engu að síður bara eitt mark í þessu sem skilur liðin að.
68. mín
Hann var engu að síður hissa á þessu sem ég skildi ekki alveg en kannski eru það bara náttúruleg viðbrögð við að fá rautt spjald. Hvað veit ég.
En vont verður verra fyrri Val.
Vont verður verra fyrir Val
Bjarni Mark Antonsson
Bjarni rífheldur í Frey sem er að komast framhjá honum. Hann heldur lengi í hann og þetta er eins augljóst og hægt verður. Annað gula og þar með rautt.Hann var engu að síður hissa á þessu sem ég skildi ekki alveg en kannski eru það bara náttúruleg viðbrögð við að fá rautt spjald. Hvað veit ég.
En vont verður verra fyrri Val.
65. mín
Gult spjald
Sigurjón Rúnarsson
Stoppar hraða skyndisókn, mjög gott brot.64. mín
Og við förum í skjáinn
Eftir nánari skoðun er það augljóst að boltinn fer ekki í hendina á leikmanni fram heldur í hnéð.
Röng ákvörðun hjá Ívari sem gæti reynst dýr, sjáum til.
Röng ákvörðun hjá Ívari sem gæti reynst dýr, sjáum til.
63. mín
MAAAARRRR...... hendi
Framarar fá hornspyrnu sem Fred tekur á fjærsvæðið. Þar fer boltinn af Framara og til Þorra Stefáns sem skorar og heldur að hann hafi komið Fram í 4-2 en þá dæmir Ívar Orri hendi á Fram sem gestirnir eru ekki ánægðir með.
63. mín
Pedersen er mættur inn á!
Frábærar fréttir fyrir Valsmenn og gaman að sjá að Patrick Pedersen er kominn aftur á völlinn.
61. mín
InnDagur Orri Garðarsson
ÚtShkelzen Veseli
61. mín
InnPatrick Pedersen
ÚtNovak Tufegdzic
60. mín
InnMár Ægisson
ÚtSimon Tibbling
60. mín
InnRóbert Hauksson
ÚtKristófer Konráðsson
58. mín
Vi har Pedersen!
Valsarar syngja og tralla "Vi har Pedersen" þegar Patrick Pedersen er að gera sig tilbúinn á beknum fyrir það að koma inn á sýnist mér ásamt Degi Orra.


56. mín
Gult spjald
Bjarni Mark Antonsson
Fer of seint í Simon Tibbling og fær réttilega spjald.53. mín
Valsarar ætla ekki að gefast upp!
Lúkas Logi Heimisson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)
Tryggvi fær boltann úti vinstra meginn og kemur boltanum inn á teiginn þar sem Lúkas Logi er mættur og skorar. Ég verð að setja spurningamerki við Viktor Frey. Fær skotið beint á sig og virðist eins og hann hafi getað gert betur þarna.47. mín
Fred tekur spyrnuna sem endar með skoti frá Kristófer Konráðssyni fyrir utan teiginn sem fer yfir markið.
47. mín
Framarar sækja hornspyrnu
46. mín
Seinni hafinn!
Framarar koma okkur aftur í gang. Vonandi verður seinni hálfleikurinn markamikill og skemmtilegur.
45. mín
Hálfleikur
Framarar leiða í hálfleik
Eftir að hafa byrjað vel og náð forystunni fengu Valsmenn svo á sig þrjú mörk á 5 mínútum sem gerir það að verkum að Fram leiðir hér í hálfleik 3-1.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka með síðari hálfleikinn að vörmu spori.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka með síðari hálfleikinn að vörmu spori.
45. mín
+1 í uppbót
44. mín
Valsarar verjast þessari spyrnu vel.
44. mín
Framarar að fá hornspyrnu
38. mín
Dauðafæri!
Vuk gerir vel og kemur með sendingu inn fyrir á Frey Sigurðsson. Hann reynir að senda boltann fyrir markið á Fred í stað þess að skjóta á markið en Fred nær ekki til boltans og sóknin fjarar út.
Gott að vera vitur eftir á en þarna hefði Freyr átt að skjóta bara.
Gott að vera vitur eftir á en þarna hefði Freyr átt að skjóta bara.
37. mín
Fred tekur spyrnuna inn á teiginn sem Valsarar verjast vel. Hann fær hins vegar boltann aftur og kemur með frábæra fyrirgjöf sem Frederik slær aftur fyrir í aðra hornspyrnu.
36. mín
Horn sem Fram á
34. mín
Framarar halda áfram að sækja
Fred með glæsilegan bolta á fjærsvæðið þar sem Ægir Jarl er mættur einn á auðum sjó en setur boltann rétt yfir markið.
28. mín
Það er orka í Frömurum þessa stundina!
Framarar gefa í!
Frederico Bello Saraiva
Langur bolti upp völlinn sem Bjarni Mark reynir að hreinsa yfir sig en mistekst það. Fred gerir vel og sýnir klókindi að ná til boltans og sleppur einn í gegn þar sem hann rúllar boltanum fram hjá Frederik Schram og kemur Fram í 3-1.Það er orka í Frömurum þessa stundina!
26. mín
Fred kemur með glæsilega hornspyrnu inn á teiginn þar sem Ægir Jarl kassar hann í átt að markinu. Þar stendur Haraldur Einar, eiginlega við stöngina, og potar honum í netið.
Framarar ekki lengi að snúa þessu við.
Gestirnir komnir yfir!
Haraldur Einar Ásgrímsson (stoðsending: Ægir Jarl Jónasson)
Halli réttur maður á réttum stað!Fred kemur með glæsilega hornspyrnu inn á teiginn þar sem Ægir Jarl kassar hann í átt að markinu. Þar stendur Haraldur Einar, eiginlega við stöngina, og potar honum í netið.
Framarar ekki lengi að snúa þessu við.
24. mín
Framarar halda áfram að sækja!
Freyr fær boltann úti hægra meginn og rúllar honum fyrir á Simon Tibbling. Hann reynir að stýra honum í netið en boltinn fer rétt framhjá.
23. mín
Allt jafnt!
Hornfirðingurinn jafnar þetta fyrir gestina!
Freyr Sigurðsson
Ægir Jarl gerir frábærlega vel á miðjum vallarhelming Vals og kemur með glæsilega sendingu inn fyrir á Frey Sigurðsson. Hann er hundeltur af öftustu mönnum Vals en nær að taka skotið sem fer fram hjá Frederik og í netið.Allt jafnt!
22. mín
Næsta spyrna er einnig tekinn stutt og aftur fær Birkir boltann aleinn fyrir utan teiginn en þá kemur hann með fyrirgjöf sem fer forgörðum.
21. mín
Horn
Valsmenn fá horn sem endar með skoti frá Birki Hemis fyrir utan teig í Framara og aftur fyrir í annað horn.
17. mín
Tíðindalítið
Leikurinn hefur róast eftir mark Valsmanna og lítið sem hefur gerst. Framarar eðlilega stigið ofar á völlinn og komist í góðar stöður sem þeir ná ekki að nýta.
10. mín
Einn hamar!
Lúkas Logi Heimisson
Lúkas Logi fær boltann fyrir utan teig, alveg vel fyrir utan teig, og lætur vaða á markið sem syngur í netinu. Frábært skot hjá Lúkasi sem kemur Valsmönnum hér yfir eftir líflegar upphafsmínútur.6. mín
Framarar sækja
Fred kemst í góða stöðu úti vinstra meginn og rúllar honum út til hliðar á Simon Tibbling. Hann reynir skotið í fyrsta sem fer rétt yfir markið.
Góð orka þessar upphafsmínútur hjá báðum liðum.
Góð orka þessar upphafsmínútur hjá báðum liðum.
5. mín
Valsmenn byrja vel
Tryggvi kemst í álitlega stöðu inni á teignum eftir gott upphlaup og reynir skotið sem Þorri Stefán kemst fyrir.
Það er fínasti kraftur í Valsliðinu þessar upphafsmínútur.
Það er fínasti kraftur í Valsliðinu þessar upphafsmínútur.
3. mín
Hörkuskot!
Spyrnan er tekin stutt og síðan fær Birkir Heimisson boltann fyrir utan teiginn. Hann lætur vaða en skotið fer rétt framhjá markinu. Ég held að einhverjir Framarar og Valsarar hafi séð þennan inni.
3. mín
Tryggvi vinnur boltann ofarlega á vellinum og keyrir áfram sem endar í því að hann sækir hér fyrstu hornspyrnu leiksins sem heimamenn fá.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru Valsmenn sem sparka þessu í gang. Novak á fyrstu snertingu leiksins.
Góða skemmtun!
Góða skemmtun!
Fyrir leik
Stúkan hristist
Framarar mættir í góðum gír á Hlíðarenda. Þeir halda á fána sem er með mynd og nafn Rúnars Kristinssonar á. Allir í góðum gír.


Fyrir leik
Patrick Pedersen er í hóp!
Gífurlega gaman að sjá danska framherjann í hóp hjá Valsmönnum í dag.


Fyrir leik
Mun einnig rigna mörkum á Hlíðarenda í kvöld?
Ég fer aftur á markalínuna, Valsmenn stilla upp mjög sóknarsinnuðu liði og Framarar hafa verið öflugir fram á við í sumar, Yfir 3,5 mörk á Epic er 1,76. Mæli með.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 18, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Veseli og Novak Tufegdzic byrja!
Fyrir leik
Spáin
Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, tók að sér að spá í leikina sem framundan eru.
Valur 1 - 3 Fram
Rúnar er að gera frábæra hluti með Fram og ætli Kennie skori ekki bara þrjú mörk í þessum leik. Sennilega besta tímabilið hans hingað til. Valsmenn hafa verið slakir undanfarið, öruggur sigur Fram.
Valur 1 - 3 Fram
Rúnar er að gera frábæra hluti með Fram og ætli Kennie skori ekki bara þrjú mörk í þessum leik. Sennilega besta tímabilið hans hingað til. Valsmenn hafa verið slakir undanfarið, öruggur sigur Fram.
Fyrir leik
Dómarinn
Ívar Orri Kristjánsson verður með flautuna í kvöld, en honum til aðstoðar verða Gylfi Már Sigurðsson og Ragnar Þór Bender. Fjórði dómari er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og eftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.

Fyrir leik
Framarar halda áfram góðu gengi
Fram kemur inn í leikinn í tölvert betra formi. Liðið er í 3. sæti í deildinni, en þeir hafa aðeins tapað tveimur leikjum allt tímabilið. Í síðustu umferð fengu þeir Þór í heimsókn þar sem þeir unnu leikinn 6-1. 

Fyrir leik
Brazell enn ekki unnið
Valsarar létu þjálfara sinn Hermann Hreiðarsson fara og aðstoðarþjálfarinn Chris Brazell tók við út tímabilið, en Halldór Árnason mun þá taka við liðinu. Brazell hefur stýrt tveimur leikjum núna sem aðalþjálfari en Valur tapaði báðum leikjunum. 

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og Fram í 15. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á N1-vellinum.








Frábærar lokamínútur sem við fengum.
Skýrsla og viðtöl væntanleg í kvöld.
Takk kærlega fyrir samfylgdina í dag, þangað til næst veriði sæl.