Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 2
Fram
Fram
0 - 115' Alda ÓlafsdóttirHarpa Helgadóttir (sjm) 51'1 - 11 - 278' Alda Ólafsdóttir
Dómari: Hallgrímur Viðar Arnarson

SKÝRSLAN: Lítil hamingja í Víkinni er Alda skoraði tvö

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag var grimmdin í Fram liðinu, frábær mörk hjá Öldu og léleg dómgæsla í Víkinni

Bestu leikmenn

1. Alda Ólafsdóttir

Tekur þetta skuldlaust í dag! Var frábær fyrir Framliðið og reyndist hetjan í dag. 2 frábær framherjamörk sem hún slúttaði bara upp á 12 af 10 mögulegum! Vonandi fyrir Framara er hún komin í gang og við fáum að sjá svona frammistöður það sem eftir er sumars

2. Ashley Brown Orkus

Gerði vel í marki Fram í dag, varði vel, las leikinn vel og vissi upp á hár hvenær átti að tefja og hvenær ekki. Átti síðan stoðsendinguna í fyrsta markinu! Taylor Marie var líka öflug í dag.

Atvikið

Ég held ég verði að setja þetta á þegar Þórdís Hrönn tekur skot á markið sem á einhvern óskiljanlega hátt fer í dómara leiksins, skil ekki ennþá hvernig hann var staðsettur!

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Fram er komið með 13 stig og spyrnir sér af botninum og við hlið Þróttar í 6. sætið! Víkingskonur hins vegar detta niður í 9. sætið enn með 10 stig.

Vondur dagur

Vondur dagur hjá Víkinsliðinu bara í heild, ekkert útaf frammistöðunni per se en það er vont að tapa 3 leikjum í röð!

Dómarinn - 4

Ég eiginlega bara get ekki gefið betri einkunn í dag, dómgæslan hallaði mikið á Víking á krítískum mómentum, ekki eitthvað vegna brota eða annað heldur bara staðsetning á dómurum trekk í trekk og skrítnar ákvarðanatökur. Bolti í dómara, auka bolti inn á, tæpir rangstöðudómar og alls konar bara.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.