Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta kvenna
VÍS völlurinn
Auðvitað er bongó
Þór/KA
Þór/KA
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Erin Flurey 7'1 - 0Bríet Jóhannsdóttir 47'2 - 02 - 157' Avery Mae Vanderven
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: 2-1 helgi á VÍS

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA mætti með mikla ákefð inn í leikinn og pressaði vel á gestina til að byrja með. Það skilaði marki og aftur skoraði Þór/KA svo snemma í seinni hálfleiknum. ÍBV getur alveg spilað fínasta fótbolta en það vantaði upp á ákvarðanatökur við vítateiginn og of fáar tilraunir reyndu á markvörð Þór/KA í dag. Það er allt annað að sjá Þór/KA í síðustu leikjum eftir vægast sagt erfiða byrjun á mótinu, meiri andi og meiri trú á hlutunum.

Bestu leikmenn

1. Erin Flurey

Mikil einstaklingsgæði í fyrra marki Þórs/KA og hún gerði vel í því að hjálpa liðinu fremst á vellinum í leiknum.

2. Hulda Ósk Jónsdóttir

Lék mjög vel þennan fyrsta klukkutíma sem hún spilaði, óhrædd að taka andstæðinginn á og lagði upp seinna mark Þórs/KA.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins, spretturinn hjá Erin og afgreiðslan. Mjög vel tekið.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA er komið upp úr fallsæti í bili, fer úr 10. sætinu og upp í það 7. en umferðinni er ekki lokið. ÍBV tapar eftir að hafa unnið tvo leiki í röð og missir af því að komast upp í 3. sætið. Næst á dagskrá hjá Eyjakonum er undanúrslitaleikur í bikar á föstudag og svo er spilað aftur í Bestu deildinni eftir rúma viku. Þessi úrslit þýða að bæði botnliðin í Bestu deildunum unnu 2-1 heimasigra á VÍS vellinum því á laugardag sigruðu Þórsarar Víkinga í Bestu deild karla.

Vondur dagur

Ákvarðanataka ÍBV í sóknum sínum var ekki nógu góð, of mikið af háum boltum sem Arna Sif er sérfræðingur í að eiga við. Hefðu þurft að komast oftar aftur fyrir línuna hjá Þór/KA og gera varnarlínunni erfiðara fyrir. Allison Clark fékk frábært færi á silfurfati í fyrri hálfleik en lét Augur í marki Þór/KA verja frá sér. Það var eitt besta færi leiksins og illa farið með þá gjöf.

Dómarinn - 8

Fannst Guðmundur dæma vel í dag, flautaði ekki of mikið og það er alltaf gott.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.