Fotbolti.net
Besta deildin
Andri Stefánsson
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
0 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Fyrir leik
Spákonan
Sædís Rún fékk það verkefni að spá fyrir 12. umferð Bestu deildar kvenna. Hún var að ganga til liðs við þýska liðið Köln.

Valur 1 - 3 Breiðablik (19:15 á þriðjudag)
Stórleikur umferðarinnar þar sem Breiðablik hefur betur. Agla María og Olla skora svo kemur Þórdís Elva með sitt fyrsta mark fyrir Blix. Mark Vals kemur úr föstu leikatriði þar sem Málfríður gerir sárabótamark.

Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin áttust við í 4. umferð í æsispennandi leik, þar sem Breiðablik fagnaði 3-2 sigri. 1-0 Líf Joostdóttir van Bemmel ('3 ), 1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('10 ), 1-2 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('17 ), 2-2 Sunna Rún Sigurðardóttir ('91 ), 3-2 Málfríður Anna Eiríksdóttir ('95, sjálfsmark) Við megum búast við spennandi og skemmtilegum leik í dag!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik hefur átt öflugt tímabil og eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Þær eru í 2. sæti, tveimur stigum á eftir toppliði FH sem hafa verið mjög sterkar á tímabilinu. Þeim var spáð 1. sæti fyrir tímabilið og eiga sterkan möguleika á að ná því. Þær byrjuðu gríðarlega vel en hafa tapað tveimur af síðustu fimm. Í síðustu umferð fengu þær Víking í heimsókn og unnu þar þægilega 4-1 sem var mikilvægt eftir svekkjandi 3-2 tap gegn Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Valur
Valur unnu síðast leik 25. maí. Eftir það gerðu þær 4 jafntefli og 1 tap. Þær sitja í 9. sæti eftir 12 umferðir. Þeim var spáð 6. sæti fyrir tímabilið og Það er því óhætt að segja að tímabilið hefur ekki verið nógu gott. Í síðustu umferð héldu þær til Vestmannaeyja en töpuðu þar 2-1 gegn ÍBV. Með sigri í dag geta þær komið sér upp úr fallsæti en þær þurfa einnig að vonast eftir því að Þróttarar taki stig frá Grindavík/Njarðvík. Sá leikur hefst líka kl 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Hlíðarenda þar sem Valur og Breiðablik eigast við. Þetta er 13. umferð Bestu deildar kvenna og leikið verður á slaginu 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.