SKÝRSLAN: Lærisveinar Magga mæta Breiðablik í úrslitum
Hvað réði úrslitum?
Mjög kaflaskiptur leikur, Afturelding byrjar vel í fyrri svo tók Fylkir yfir leikinn. Fylkir byrja seinni mjög vel og skora, strax eftir það tekur Fylkir ekki þátt og Ólafur Kristófer er mættur í aukavinnutaxtann, er að bjarga þeim þangað til að Hlynur Sævar skoraði sjálfsmarkið. Afturelding var alltaf líklegri til þess að vinna. Eftir það var þessi leikur alltaf að fara í framlengingu og vító.
Bestu leikmenn
1. Arnar Daði Jóhannesson
Báðir markmenn voru ótrúlegir í dag en Arnar tekur þetta því að vörslurnar í vítaspyrnukepninni voru mjög góðar, Fylkir fékk nokkur góð færi en Arnar var sterkur og varði allt. Erfitt að setja markið á hann.
2. Ólafur Kristófer Helgason
Án Ólafs hefði Afturelding unnið þennan leik í venjulegum leiktíma, hann bjargaði Fylki oft á tíðum og var með nokkar ótrúlegar vörslur.
Atvikið
Eftir að Hlynur Sævar skoraði sjálfsmarkið þá var leikurinn alltaf að fara í framlengingu eða vító, leikurinn virkaði þannig og stundum er þetta tilfinning sem maður finnur.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding er komið í úrslit bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins, Breiðablik er mótherjinn á Laugardalsvelli þann 11. september. Ég held að Afturelding gæti alveg tekið Breiðablik. En því miður þá er Fylkir dottnir úr leik.
Vondur dagur
Afturelding stjórnaði leiknum í dag, miðsvæðið hjá Fylki var í veseni þar sem Afturelding var oft að komast í gegnum þá. Þetta var oft of þægilegt fyrir Aftureldingu. Bakverðir Fylkis voru oft að leyfa leikmönnum Aftureldingar að komast í gegn og svo var Bjarki Steinsen hársbreidd frá því að skora kómískt sjálfsmark. Birkir Már er 41 ára og spilaði 120 mínútur, það er skiljanlegt að hann var þreyttur en hann slapp við gult spjald í dag og það má segja að þetta var ekki besti leikurinn á ferlinum.
Dómarinn - 2
Þetta var ekki gott, mjög skrýtin lína. Stundum vildi dómarinn láta leikinn flæða og stundum var hann að flauta á allt. Hann var kaflaskiptur eins og leikurinn. Andi Hoti hrindir Aroni Snæ inn í teignum á 102 mínútu, mér fannst þetta vera víti, báðar hendur á bakið og ýtir.



