Fotbolti.net
Ívar Björgvinsson
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 1
Hapoel Be'er Sheva
Hapoel Be'er Sheva
Nikolaj Hansen 48'1 - 01 - 151' Kings KangwaNikolaj Hansen 86'2 - 1
Dómari: Filip Glova (Slóvakía)

SKÝRSLAN: Víkingar halda áfram að skrifa söguna

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru frábærir fyrstu 50 mínúturnar, óðu í færum í fyrri hálfleik og byrjun seinni en svo gerir Daníel slæm mistök og gestirnir jafna og taka völdin fram að seinna marki gestanna. Það var sem betur fer tekið af í VAR skoðun og Víkingar náðu að finna kraft og tóku aftur yfir leikinn og kláruðu hann með mikilli seiglu.

Bestu leikmenn

1. Nikolaj Hansen

Enginn annar sem kemur til greina, skorar bæði mörk Víkings í dag og var frábær í leiknum.

2. Oliver Ekroth

Víkingar pressuðu virkilega hátt á vellinum sem gekk vel en oft var Oliver nánast einn til baka og leysti allar stöður mjög vel. Fyrirliðinn flottur í kvöld eins og í flestum leikjum.

Atvikið

VAR. Myndbandsdómgæslan hjálpaði Víkingum heldur betur í dag og sneri leiknum algjörlega Víkingum í hag. Víkingar áttu sinn versta kafla frá jöfnunarmarki gestanna og að því síðara, sem VAR tók sem betur fer af. Eftir það tók Víkingur aftur yfir leikinn og tókst að finna sigurmarkið.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru í risa séns á að fara í 3. umferðina í undankeppni Meistaradeildarinnar en ekkert íslenskt lið hefur unnið tvö einvígi í undankeppni Meistaradeildarinnar, FH sat einu sinni hjá í 1. umferð og sigruðu í 2. umferð. Víkingar þurfa nú að ná í jafntefli eða sigur í Ungverjalandi og þá er ótrúlegu afreki náð.

Vondur dagur

Daníel Hafsteinsson var frábær í fyrri hálfleiknum, ásamt flestum í Víkingsliðinu, en hann gerir slæm mistök í jöfnunarmarki Hapoel. Aron Snær gerir honum svo sem engan greiða með því að gefa á hann í þessari stöðu en leikmaður eins og Daníel á að geta gert betur.

Dómarinn - 8

Frábær Slóvakinn sem var með allt á hreinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.