SKÝRSLAN: Breiðablik valtaði yfir Val á N1-vellinum
Hvað réði úrslitum?
Leikmenn Blika voru allar góðar í dag en Agla María og Hrafnhildur Ása stjórnuðu þessum leik. Leikmenn Vals voru óákveðnar og var tapið heilt á litið sanngjörn úrslit. Hraðinn og kraftur Breiðabliks var upp á 10 í þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Þetta segir sig sjálft. Hrafnhildur Ása var frábær, hún sýndi mikil gæði fyrir framan markið og skoraði fjögur mörk. Hún var með tvær fallegar stoðsendingar og var langbesti leikmaður vallarins.
2. Agla María Albertsdóttir
Agla María var eins og drottning í ríki sínu. Hún skoraði tvö snyrtileg mörk og var allt í öllu í gegnum leikinn. Hún lagði einnig upp á Hrafnhildi Ásu.
Atvikið
Þriðja mark Breiðabliks gekk frá leiknum. Valskonur gáfust í rauninni upp eftir það, Blikar nýttu sér það og hömruðu járnið á meðan það var heitt.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Breiðablik er með 27 stig, ennþá tveimur stigum á eftir toppliði FH sem rústuðu Stjörnunni í dag. Valsarar eru enn í fallsæti með aðeins 10 stig.
Vondur dagur
Miðverðir Vals áttu alls ekki sinn besta dag. Það mynduðust gífurlega stór svæði á milli varnar og miðju allan leikinn. Breiðablik nýttu sér það svo sannarlega þar sem nokkur mörk komu eftir bolta í gegn.
Dómarinn - 7
Auðdæmdur leikur fyrir Brynjar og engin mistök hjá honum og hans aðstoðarmönnum.



