
FH
0
0
Breiðablik

20.07.2026 - 19:15
Kaplakrikavöllur
Besta karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Áhorfendur: 567
Maður leiksins: Anton Ari Einarsson (Breiðablik)
Kaplakrikavöllur
Besta karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Áhorfendur: 567
Maður leiksins: Anton Ari Einarsson (Breiðablik)
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
('93)
('93)
5. Oliver Stefánsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
14. Adolf Daði Birgisson
('78)
('78)
17. Jóhannes Kristinn Bjarnason
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
('78)
('78)
32. Gils Gíslason
('74)
('74)
33. Úlfur Ágúst Björnsson
('74)
('74)
37. Baldur Kári Helgason
- Meðalaldur 23 ár
Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
3. Kristján Snær Frostason
('93)
('93)
6. Grétar Snær Gunnarsson
('78)
('78)
9. Kristján Flóki Finnbogason
('74)
('74)
10. Sverrir Páll Hjaltested
('74)
('74)
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
39. Benjamín Bæring Þórsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
90. Arnór Borg Guðjohnsen
('78)
- Meðalaldur 24 ár
('78)
Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Gestur Pálmason (Forráðam.)
Benjamin Gordon Mackenzie (Styrktarþj.)
Númi Már Atlason (Sjúkraþj.)
Kjartan Sturluson (MÞ)
Guðmundur Jón Viggósson (Liðsstj.)
Árni Freyr Guðnason (AÞ)
Gul spjöld:
Tómas Orri Róbertsson ('71)
Rauð spjöld:
Skýrslan: Löglegt mark dæmt af í markalausu jafntefli
|
Hvað réði úrslitum?
Maður vill aldrei kenna dómaranum um heilan leik, en í markalausu jafntefli með þetta mikið af stórum atvikum verður maður að segja að dómarateymið hafi ráðið úrslitum. Annars var gangur leiksins þannig að FH-ingar byrjuðu betur án þess að skapa sér mikið, en um miðbik fyrri hálfleiks taka Blikar yfir leikinn og áttu nokkur góð færi. Seinni hálfleikurinn varð síðan mikill barningur þar sem FH-ingar voru ofan á í baráttunni, sköpuðu sér nokkur mjög góð færi en stöngin þvældist mikið fyrir þeim auk sem Anton Ari markvörður Blika.
Bestu leikmenn
1. Anton Ari Einarsson (Breiðablik)
Anton átti eina stórkostlega markvörslu þegar Kjartan Kári skaut fyrir utan teig. Fyrir utan það tók hann allt sem átti að taka og var sami trausti maðurinn sem hann er yfirleitt í rammanum.
2. Ívar Örn Árnason (Breiðablik)
Margir sem koma til greina hér en þar sem Ívar skoraði, þó það fékk ekki að standa þá fær hann að vera hér. Ívar var einnig mjög öflugur í vörninni, skallaði bolta frá og stoppaði FH-inga í góðum stöðum. Kjartan Kári gerði stórt tilkall í að vera valinn.
Atvikið
Nóg af atvikum í þessum leik, en farið verður yfir allar dómara ákvarðirnar í Dómara dálkinum. Þess utan má nefna skot Kjartans Kára fyrir utan teig sem Anton varði stórkostlega, og tvö afbragðs skallafæri sem Kristján Flóki fékk seint í leiknum en hitti stöngina í bæði skipti.
|
Hvað þýða úrslitin?
FH er áfram í 11. sæti núna með 12 stig og aðeins tveimur stigum á eftir næsta liði sem er KA. Breiðablik haggast ekki úr fjórða sæti enda eru sjö stig í næsta lið fyrir neðan og sjö stig í næsta lið fyrir ofan.
Vondur dagur
Kristján Flóki Finnbogason bæði fyrir það að fá þessi tvö frábæru skallafæri en ná ekki að koma boltanum í netið. En aðallega fyrir að traðka ofan á bringunni á Ívari Erni meðan hann lá í grasinu. Fautabragð sem á ekki að sjást inn á vellinum.
Dómarinn - 3
Gunnar Freyr Róbertsson og hans teymi fá þrjú mjög stór atvik í hendurnar í þessum leik og klúðra þeim öllum. Fyrst má nefna að stjórn leiksins og línan í gegnum leikin var nokkuð fín, en það er ástæðan fyrir því að einkuninn er ekki verri. Fyrst skorar Breiðablik mark úr aukaspyrnu þar sem Dagur Örn lyftir boltanum inn á teig og Ívar Örn skallar boltann í markið. Gunnar dæmir hins vegar á eitthvað brot sem á að eiga sér stað bakvið hann, en það er ekki hægt að sjá að það hafi verið neitt. Í mesta lagi einhver smá barátta sem á sér stað í öllum föstum leikatriðum. Svo var það aukaspyrna sem Breiðablik fær inn í D-boganum. Hlynur Freyr tekur skotið, og boltinn fer í hendina á Jóhannesi Kristni. Hendin er lengst út frá líkama og svakalega augljós hendi víti þarna. Þá er það loka atvikið, FH-ingar eru í sókn og Kristján Flóki á skalla í stöng. Ívar Örn er í baráttunni inn á teig og fellur í grasið eftir það. Þegar Flóki er svo að fara til baka stígur hann ofan á bringuna á Ívari mjög greinilega. Enginn í dómarateyminu virtist sjá þetta því ekkert var dæmt. Oft auðvelt að afsaka ein mistök, en þegar öll stóru atvikin eru svona illa dæmd, þá er þetta niðurstaðan.
|
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
6. Arnór Gauti Jónsson
11. Aron Bjarnason (f)
('57)
('57)
14. Hlynur Freyr Karlsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
16. Dagur Örn Fjeldsted
('65)
('65)
18. Davíð Ingvarsson
('65)
('65)
29. Gabríel Snær Hallsson
('78)
('78)
45. Þór Andersen Willumsson
('57)
- Meðalaldur 24 ár
('57)
Varamenn:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m)
8. Viktor Karl Einarsson
('57)
('57)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson
('78)
('78)
19. Kristinn Jónsson
('57)
('57)
22. Jónatan Guðni Arnarsson
('65)
('65)
30. Andri Rafn Yeoman
32. Kristinn Narfi Björgvinsson
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson
('65)
- Meðalaldur 25 ár
('65)
Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Gunnar Birgisson (AÞ)
Jóhanna Björk Gylfadóttir (Sjúkraþj.)
Jón Guðni Fjóluson (AÞ)
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.)
Haraldur Björnsson (MÞ)
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.)
Emil Pálsson (AÞ)
Gul spjöld:
Gabríel Snær Hallsson ('73)
Rauð spjöld: