Fotbolti.net
20.07.26 - 09:22
Kári Snorrason

Stones á blaði hjá Arsenal - Liverpool blandar sér í baráttuna um Kone

Falur á frjálsri sölu.

Falur á frjálsri sölu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Englandsmeistararnir hafa áhuga á samningslausum John Stones, Chelsea hefur átt í viðræðum við Crystal Palace um Lacroix og Liverpool hefur blandað sér í baráttuna um Manu Kone. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Arsenal íhugar að fá enska varnarmanninn John Stones (32) á frjálsri sölu ef meiðsli franska varnarmannsins William Saliba (25) reynast alvarleg. (The Sun)

Chelsea hefur átt formlegar viðræður við Crystal Palace um kaup á franska varnarmanninum Maxence Lacroix (26), en Palace metur hann á um 55 milljónir punda. (TalkSport)

Hull City er í viðræðum við Aston Villa um kaup á jamaíkamanninum Leon Bailey (28). (The Athletic)

Alvaro Arbeloa, nýr stjóri Fulham, vill fá tvo leikmenn frá sínum gömlu félögum í Real Madrid. Annars vegar vill hann fá argentínska kantmanninn Franco Mastantuono (18) og hins vegar spænska framherjann Gonzalo Garcia (22). (The Sun)

Enski kantmaðurinn Jonathan Rowe (23), leikmaður Bologna, er á óskalista Aston Villa og Chelsea. (Calciomercato)

Liverpool er tilbúið að blanda sér í baráttuna við Manchester United um franska miðjumanninn Manu Kone (25), leikmanni Roma. (Football Insider)

Aston Villa hefur rætt við Chelsea um möguleikann á að kaupa bæði Nicolas Jackson og Alejandro Garnacho í sumar. (TeamTalk)

Portúgalski sóknarmaðurinn Rafael Leao (27) er líklega á förum frá AC Milan. Hann vill frekar fara í ensku úrvalsdeildina en til Tyrklands og er Aston Villa mögulegur áfangastaður. (Gazzetta dello Sport)

Lazio hefur áhuga á Aaron Wan-Bissaka (28), leikmanni West Ham, sem er jafnframt á blaði hjá Arsenal. (Daily Mail)

Emiliano Martínez (33), markvörður Argentínu og Aston Villa, er efstur á óskalista Juventus en félagið er í markvarðarleit. Félagið fylgist einnig með spænska markverðinum David de Gea (35) hjá Fiorentina. (Calciomercato)

Everton gæti veitt Inter samkeppni í baráttunni um enska varnarmanninn Djed Spence (25), leikmann Tottenham. (Football Insider)

Liverpool vill fá sænska vinstri bakvörðinn Daniel Svensson (24) frá Borussia Dortmund en Arsenal hefur sömuleiðis áhuga á þeim sænska. (CaughtOffside)
Manu Kone er eftirsóttur.

Manu Kone er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea hefur átt í viðræðum við Palace um Lacroix.

Chelsea hefur átt í viðræðum við Palace um Lacroix.

Canon

Mynd: EPA

Vill sækja tvo leikmenn frá Real.

Vill sækja tvo leikmenn frá Real.

Canon

Mynd: EPA

Silfurhafinn á HM á óskalista Juventus.

Silfurhafinn á HM á óskalista Juventus.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.