Fotbolti.net
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
ÍR
ÍR
2 - 0
Fylkir
Fylkir
Emil Nói Sigurhjartarson 30'1 - 0Orri Bjarkason 49'2 - 0
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson

SKÝRSLAN: ÍR heldur hreinu annan leikinn í röð

Hvað réði úrslitum?

ÍR mættu í leikinn á meðan Fylkismenn gerðu það bara ekki. ÍR voru fyrstir á alla 50/50 bolta, unnu skallaeinvígin í báðum teigum og sinntu grunngildum fótboltans en gestirnir höfðu lítinn áhuga á því. Heimamenn skoruðu tvö góð mörk sem tryggðu sanngjarnan sigur.

Bestu leikmenn

1. Óliver Elís Hlynsson (ÍR)

Ég hefði í raun getað sett þessa báða í mann leiksins og þeir í raun deila þessu. ÍR hefur verið að leka inn mörkum í allt sumar en hafa stoppað í götin í síðustu tveimur leikjum og haldið hreinu í þeim báðum.

2. Jón Arnar Sigurðsson (ÍR)

Báðir ofboðslega traustir í hjarta varnarinnar og skölluðu allt frá. Það var sama hver fór upp á topp hjá Fylki, þeir voru með þá alla í gjörgæslu allan leikinn og hoppuðu fyrir allt sem fór í átt að markinu.

Atvikið

Annað mark ÍR gerði gjörsamlega út um leikinn. Eins og Heimir kom inn á í viðtali eftir leikinn, fleygðu hans menn endanlega inn hvíta handklæðinu eftir seinna markið og þá var þetta aldrei spurning.

Hvað þýða úrslitin?

ÍR koma sér lengra frá fallsætunum og fara upp í 16 stig, fimm stigum frá Völsungi sem er í 11. sætinu eins og er. Fylkir hefðu getað komist á topp deildarinnar með sigri en sitja enn þá í 3. sæti, jafnir Þrótturum á stigum en með verri markatölu.

Vondur dagur

Sóknarleikur Fylkis var með eindæmum bitlaus. Fremstu menn gerðu lítið að viti í leiknum og man ég ekki eftir því að Vilhelm í markinu hjá ÍR hafi átt margar vörslur. Klisjan, „Þú spilar ekki betur en andstæðingurinn leyfir,“ á þó vel við hér þar sem varnarlína ÍR spilaði frábæran leik og stökk fyrir allt áður en Vilhelm gat varið.

Dómarinn - 7

Mér fannst Brynjar Þór og hans teymi bara komast ágætlega frá þessu í dag. ÍR bekkurinn tók tryllinginn nokkrum sinnum í leiknum vegna þess að þeim fannst línan óskýr en heilt yfir var leikurinn bara nokkuð vel dæmdur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.