Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Mjólkurbikar kvenna
Lambhagavöllurinn
Sól og blíða!
Fram
Fram
0 - 3
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
0 - 119' Hannah McLaughlin0 - 251' Ellie Coffield0 - 376' Natasha Moraa Anasi
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Nýliðarnir ruddu sér leið í úrslit í dal draumanna

Hvað réði úrslitum?

Þetta var hörkuleikur en það sem réði úrslitum í dag var hreinlega bara baráttan og betri gæði í liði Grindavíkur/Njarðvíkur. Þær settu þrjú mörk í dag og það er það sem skilur á milli í fótbolta!

Bestu leikmenn

1. Hildur Katrín Snorradóttir

Átti virkilega góðan leik í dag, aggressívur leikmaður sem komst í frábær hlaup trekk í trekk og olli miklum usla í öftustu varnarlínu Fram. Átti síðan frábært horn á kollinn á Natöshu sem gulltryggði sigurinn og þar með sætið í úrslitunum.

2. Natasha Anasi

Gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir Grindavík/Njarðvík, leiddi sínar konur áfram í dag, frábær leiðtogi inn á vellinum. Var ógnandi sóknarlega og frábær varnarlega. Gulltryggði svo sigurinn með þriðja markinu! Ása björg fær einnig kudos frá mér!

Atvikið

Set atvikið núna á spurninguna hvort Fram hefði í tvígang átt að fá víti? Natasha fékk boltann vissulega í höndina en höndin ekki í óeðlilegri stöðu og svo var klárlega brotið á Söru Svanhildi inn í teig en hagnaður dæmdur sem mér fannst ekki mikill hagnaður. Þetta hefði getað breytt stöðunni töluvert ef Fram hefði fengið víti

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að Grindavík/Njarðvík eru komnar í úrslit Mjólkurbikarsins þar sem þær mæta Þrótti á Laugardalsvellinum en Fram situr eftir með sárt ennið.

Vondur dagur

Ég get ekki sagt að neinn hafi átt slakann leik. Allir leikmenn inn á vellinum börðust vel en það er alltaf vont að tapa og extra vont að tapa í bikarleik og rétt missa af sæti í úrslitunum.

Dómarinn - 5

Mér fannst dómarateymið ekki hafa alltof mikla stjórn á leiknum mér fannst mismikið dæmt á sömu brotin og stundum fannst mér halla á annað hvort liðið í dómgæslu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.