Leik lokið!
Þrjú stig til Ólafsvíkur
90. mín
Gult spjald
Ellert Gauti Heiðarsson
90. mín
Fyrirgjöf af kantinum sem Þröstur Mikael skallar að marki en Jón Kristinn grípur.
90. mín
InnKristófer Áki Hlinason
ÚtLuis Romero Jorge
90. mín
Asmer Begic með skot sem fer rétt yfir mark heimamanna.
90. mín
Atli Þór vinnur aukaspyrnu.
Jón Kristinn kemur út í teiginn og grípur boltann.
Jón Kristinn kemur út í teiginn og grípur boltann.
90. mín
Komið í uppbótartíma, veit ekki hversu mikið er eftir.
88. mín
Þjálfarar liðanna kalla sín á milli, báðir ósáttir.
Smá læti á bekkjunum
Viktor Smári Sveinsson
Viktor brýtur af sér og Josua liggur eftir utan vallar.Þjálfarar liðanna kalla sín á milli, báðir ósáttir.
87. mín
Daði gerir mjög vel og skallar boltann úr teig Ólsara.
85. mín
Fyrirgjöf frá Viktori Smára sem fer ofan á þaknetið á marki gestanna.
82. mín
InnViktor Smári Sveinsson
ÚtSindri Sigurðarson
Sindri meiddur af velli.
81. mín
Ellert strax í fínni stöðu en heimamenn fljótir að koma sér til baka og ekkert kemur úr þessari sókn.
81. mín
InnEllert Gauti Heiðarsson
ÚtBjörn Henry Kristjánsson
80. mín
Atli með fyrirgjöf sem Hektor kemst í en skallinn fer framhjá.
79. mín
Luis Romero Jorge reynir skot af eigin vallarhelmingi, Auðunn mjög framarlega en skotið er alltof laust og Auðunn tekur boltann á kassann.
78. mín
Þversláin!!
Frábær aukaspyrna frá Áka en þversláin bjargar gestunum.
77. mín
Heimamenn vinna aukaspyrnu svona þremur metrum fyrir utan D-bogann.
76. mín
Miguel reynir algjört bjartsýnisskot fyrir utan teig en þessi bolti flýgur hátt yfir mark gestanna.
74. mín
InnAsmer Begic
ÚtGuðmundur Magnússon
71. mín
InnHektor Bergmann Garðarsson
ÚtGabriel Lukas Freitas Meira
69. mín
Flott sókn hjá heimamönnum, Sindri Sigurðarson á skot úr vítateignum sem fer í utanvert hliðarnetið og D/R fær horn. Ekkert kom upp úr því.
66. mín
InnAlmar Örn Róbertsson
ÚtBjarmi Fannar Óskarsson
63. mín
Gestirnir manni færri en marki yfir!
Refsað fyrir skelfileg mistök
Ismael Salmi Yagoub (stoðsending: Luis Romero Jorge)
Dalvíkingar missa boltann á eigin vallarhelmingi, Luis rennir boltanum á Ismael sem kemur sér framhjá Miguel og setur boltann í netið.Gestirnir manni færri en marki yfir!
57. mín
Þröstur með sendingu inn fyrir á Atla Þór sem á skot úr þröngri stöðu en það er alltof þægilegt fyrir Jón Kristin sem þarf ekki að hafa neitt fyrir þessari vörslu.
53. mín
Jón Kristinn!
Sindri Sigurðarson með fast skot í nærhornið vinstra megin úr teignum. Jón Kristinn er vel á verði, skutlar sér og ver í horn.
Jón Kristinn handsamar svo boltann eftir hornspyrnuna.
Jón Kristinn handsamar svo boltann eftir hornspyrnuna.
50. mín
Tilraun frá Dalvíkingum fyrir utan teig en skotið er talsvert frá því að fara á rammann.
49. mín
Sýndist þetta vera klárt gult.
Rautt spjald
Naim Aaras EL Hmaidi
Seinna gula spjaldið.Sýndist þetta vera klárt gult.
46. mín
Freyr Jónsson með tilraun sem fer í varnarmann, fín fyrsta sókn hálfleiksins hjá heimamönnum.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Áki Sölvason sparkar þessu af stað.
Engar breytingar sýnist mér.
Engar breytingar sýnist mér.
45. mín
Markalaust í hálfleik.
42. mín
Gult spjald
Atli Þór Sindrason
Laus bolti inn á teig Víkings, Atli rennir sér en Jón Kristinn er á undan og Atli fer aðeins í Jón.40. mín
Færi!
Naim Aaras EL Hmaidi með fyrirgjöf sem Guðmundur Magnússon skallar aftur fyrir sig og Auðunn slær boltann aftur fyrir sig.
Ingvar Freyr Þorsteinsson fær svo dauðafæri eftir hornið, boltinn dettur fyrir hann á fjær en hann finnur ekki markið.
Ingvar Freyr Þorsteinsson fær svo dauðafæri eftir hornið, boltinn dettur fyrir hann á fjær en hann finnur ekki markið.
37. mín
Jón Kristinn kærulaus, kemur út úr teignum og á slaka sendingu sem Elvar Máni kemst í. Markvörðurinn er hins vegar heppinn að boltinn skýst fast af Elvari sem nær ekki að halda honum inn á.
35. mín
Slakur skalli út í teiginn og Naim Aaras EL Hmaidi er í fínu færi en skotið fer beint á Auðun.
34. mín
Helber Josua Catano Catano keyrir upp eftir að hann hendir Elvari Mána í grasið en ekkert var dæmt. Josua á skot vinstra megin úr teignum sem Auðunn slær yfir.
Ekkert kom svo úr hornspyrnunni.
Ekkert kom svo úr hornspyrnunni.
32. mín
Dalvíkingar vilja víti þegar Daði stígur út Frey en Gunnar Freyr segir að ekkert sé á þetta.
31. mín
Skot fyrir utan teig frá Naim Aaras EL Hmaidi sem skoppar fyrir framan Auðun í markinu en hann handsamar boltann í annarri tilraun.
29. mín
Gummi Magg!!!
Hittir ekki markið í dauðafæri!
Sleppur í gegn og reynir að leggja boltann með vinstri fæti í markið en setur boltann framhjá.
Sleppur í gegn og reynir að leggja boltann með vinstri fæti í markið en setur boltann framhjá.
27. mín
Gult spjald
Daði Kárason
Rennir sér og tekur Elvar Mána niður. Aukaspyrna á fínum stað fyrir fyrirgjöf fyrir heimamenn.23. mín
Heimamenn fá sína fyrstu hornspyrnu.
Aukaspyrna dæmd á Dalvíkinga.
Brotið á Jóni Kristni í markinu sem bregst illa við og fer í Þröst sem fellur til jarðar. Ekkert meira en aukaspyrna segir Gunnar. Jón Kristinn heppinn.
Aukaspyrna dæmd á Dalvíkinga.
Brotið á Jóni Kristni í markinu sem bregst illa við og fer í Þröst sem fellur til jarðar. Ekkert meira en aukaspyrna segir Gunnar. Jón Kristinn heppinn.
22. mín
Gult spjald
Naim Aaras EL Hmaidi
Fer harkalega í návígi og fær gult. Pínu harður dómur, en takmörkuð mótmæli.21. mín
Gestirnir fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
Bjarmi Fannar Óskarsson skallar frá og í innkast.
Bjarmi Fannar Óskarsson skallar frá og í innkast.
18. mín
Luis Romero Jorge kemst í boltann við D-bogann á teig Dalvíkinga, reynir utanfótar-slæs en það er laust og Auðunn grípur.
16. mín
Naim Aaras EL Hmaidi tekur spyrnuna, setur boltann undir vegginn en skotið er ekki nógu fast og hnitmiðað. Auðunn Ingi Valtýsson með þetta á hreinu í markinu.
15. mín
Gult spjald
Miguel Joao De Freitas Goncalves
Aukaspyrna rétt við vítateigslínuna. Miguel er með þessu spjaldi kominn í bann.10. mín
Fyrsta tilraun heimamanna
Boltinn fellur fyrir Áka á vallarhelmingi Víkings, hann sér markið og lætur vaða en Jón Kristinn Elíasson ver þægilega.
4. mín
Helber Josua Catano Catano vinnur aukaspyrnu á góðum stað fyrir gestina.
Hann á svo sjálfur skot í kjölfar aukaspyrnunnar en skotið fer framhjá.
Hann á svo sjálfur skot í kjölfar aukaspyrnunnar en skotið fer framhjá.
1. mín
Víkingar, sem spila í gulum treyjum, byrja með boltann. Guðmundur Magnússon á upphafssparkið.
Heimamenn spila með smá golu í fyrri hálfleiknum.
Heimamenn spila með smá golu í fyrri hálfleiknum.
Fyrir leik
Velkomin á Dalvíkurvöll
Klukkan 16:00 hefst leikur Dalvíkur/Reynis og Víkings Ólafsvíkur í 2. deild karla.
Það er sól og blíða á Dalvík.
Fyrir leikinn eru liðin í 6. og 7. sæti deildarinnar, Dalvíkingar með tveimur stigum meira fyrir þennan leik í 14. umferð.
Það er sól og blíða á Dalvík.
Fyrir leikinn eru liðin í 6. og 7. sæti deildarinnar, Dalvíkingar með tveimur stigum meira fyrir þennan leik í 14. umferð.





Ólsarar vinna þennan leik og fara upp fyrir Dalvík/Reyni í töflunni.