Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
1 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Emma Hawkins 5'1 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Víkingur gaf Val snemmbúna jólagjöf

Hvað réði úrslitum?

Þetta var líklega leiðinlegasti leikur sem ég hef séð í sumar, það gerðist ekki neitt. Víkingur gerir mistök á 5. mínútu og Valur refsar, fyrir utan það var það eitt skot í slána á 88. mínútu, annars var ekki neitt annað, ekki einu sinni eitt dauðafæri. Bæði lið spiluðu ekki vel að mínu mati, maður tekur eftir því að bæði lið eru með mjög lítið sjálfstraust. Bæði lið voru hrædd við það að gera mistök, mikið af feilsendingum hjá báðum liðum samt. Erfitt að segja að Valur eigi þetta skilið, þetta var alltaf 0-0 leikur en Víkingur gaf Val snemmbúna jólagjöf á 5. mínútu.

Bestu leikmenn

1. Emma Hawkins

Skoraði eina mark leiksins, fyrir utan það var hún mjög góð með boltann og án boltans, kom með nokkar hættulegar fyrirgjafir.

2. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir

Hún var mjög góð í dag, var nálægt því að skora annað. Var næst hættulegasti leikmaður Vals og þess vegna er hún í þessum dálk.

Atvikið

Eftir að Valur skoraði sitt eina mark snemma þá var sjálfstraustið hjá Víkingi enn verra. Víkingur þurfti að eltast við leikinn, en gátu því miður mjög lítið gert.

Hvað þýða úrslitin?

Valur er í 9. sæti með 13 stig en Víkingur er núna í 10. sæti með 11 stig, bæði sæti eru fallsæti.

Vondur dagur

Þetta byrjar ekki vel hjá Tuomala, sem missti boltann til Arnfríðar sem lagði upp markið hennar Hawkins sem var eina mark leiksins. Þetta er fyrsti leikurinn hennar fyrir Víking og hann byrjaði ekki vel. Vera Varis í markinu hjá Val var í svaka brasi þegar Víkingur fékk horn eða kom með erfiðar fyrirgjafir. Varis átti í erfiðleikum að lemja boltann burt og það va reitt atvik þegar hún átti að grípa boltann en lemur hann á hættulegan stað en Víkingar gátu samt ekki nýtt sér það.

Dómarinn - 7

Tíðindalítið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.