SKÝRSLAN: Mosfellskir yfirburðir
Hvað réði úrslitum?
Þetta var frekar kaflaskipt. Afturelding átti algjörlega fyrri hálfleik og manni fannst Grindavíkurliðið spila fyrri hálfleikinn með hálfum huga. Síðan í seinni hálfleik var miklu meiri ákefð í Grindavíkurliðinu sem skilar þeim marki eftir 10 mínútur og þeir hefðu hæglega getað bætt einu eða tveimur mörkum við.
Bestu leikmenn
1. Aron Elí Sævarsson
Aron Elí var frábær í bakverðinum, náði að leggja upp mark og nálægt því að leggja annað upp.
2. Bjartur Bjarmi Barkarson
Bjartur var heiðraður fyrir 100 leiki sem hann hafði spilað fyrir þennan leik og hann sýndi algjörlega af hverju hann er einn af lykilleikmönnum Aftureldingar.
Atvikið
Ætli það sé ekki fyrsta korterið. Skoruðu tvö úr hornspyrnum og það lak allt inn virtist vera. Maður vissi strax að þetta yrði mjög brött brekka fyrir Grindavík sem þeir svo náðu ekki að klífa.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding er þá komið í efsta sæti Lengjudeildarinnar eins og er, en Þróttur sem sat í efsta sæti í byrjun umferðarinnar á leik til góða gegn Gróttu á morgun. Grindavík situr enn í 10. sæti, sex stigum fyrir ofan Völsung í 11. sæti.
Vondur dagur
Vörn Grindavíkur í fyrri hálfleik var alls ekki góð sem kemur á óvart, þar sem þeir eru í 3. sæti yfir fæst mörk fengin á sig í þessari deild, með 24 mörk. Aðeins Njarðvík og Þróttur eru fyrir ofan þar. Þetta korter var þeim dýrkeypt og munu varnarmenn Grindavíkur vilja helst gleyma því strax þegar þeir fara á koddann í kvöld
Dómarinn - 8
Max var bara flottur í dag. Stóð fast á sínu og mér fannst ekki neitt að dómgæslunni, nema kannski 1-2 köll.



