SKÝRSLAN: Réðu ekkert við marksækna miðvörðinn
Hvað réði úrslitum?
Það var hálftíma kafli í fyrri hálfleik sem gerði út um þennan leik. Grindavík/Njarðvík sýndi þar magnaða frammistöðu og ÍBV átti engin svör. Emma Nicole Phillips var eins og gammur í teignum og skoraði fernu.
Bestu leikmenn
1. Emma Nicole Phillips (Grindavík/Njarðvík)
Mögnuð frammistaða. Miðvörður sem byrjaði fremst og skoraði fernu. Alvöru handrit. Eigum við ekki að segja að hún geri sterkt tilkall til að vera leikmaður umferðarinnar.
2. Ellie Coffield (Grindavík/Njarðvík)
Barðist eins og ljón, vann alla seinni bolta og skilaði boltanum yfirleitt vel frá sér. Setti tóninn fyrir sitt lið í pressunni.
Atvikið
Það er bara fjórða markið sem Emma Nicole Phillips skorar. Hún hætti ekki að koma boltanum í netið.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík/Njarðvík er núna tveimur stigum frá ÍBV en bæði þessi lið eru að gera sterkt tilkall til að komast í efri hlutann þegar deildinni verður skipt, eru bara í góðum málum hvað það varðar.
Vondur dagur
ÍBV treystir rosalega mikið á Allison Lowrey, Allison Clark og Olgu Sevcovu en þær komust lítið í takt í dag. Allison Clark skorar en annars sást hún voðalega lítið í leiknum. Það fóru fjórir leikmenn út af eftir 41 mínútu en þær hefðu líklega allar viljað eiga betri dag.
Dómarinn - 5
Allt í lagi frammistaða, smá upp og niður. Engir stórar dómar í leiknum en það voru nokkrir litlir dómar í seinni hálfleiknum sérstaklega sem hefðu mátt fara betur.




