Fyrir leik
Grindavík
Fyrir leik
Afturelding
Seinasti leikur Aftureldingar var á AVIS-vellinum, en þar tók Þróttur heldur betur á móti þeim með 4-1 sigri! Eina mark Aftureldingar var skorað af Trausta Þráinssyni, en hann hefur fengið takmarkaðar mínútur í sumar.
Afturelding situr í 3. sæti með 31 stig, aðeins tveimur eftir Fylki og Þrótti sem sitja í 2. og 3. sæti. Afturelding hefur sigrað fjóra af sínum seinustu fimm leikjum í deildinni og vilja auðvitað halda þeirri göngu áfram þrátt fyrir þennan tapleik í Laugardalnum.
Markakóngurinn þeirra hefur verið Óðinn Bjarkason og spurning hvort hann reimi á sig skotskónna í kvöld!
Afturelding fékk Kristin Frey Sigurðsson frá Val í félagsskiptaglugganum, en hann hefur ekki spilað á tímabilinu vegna erfiðra meiðsla

Lengjudeildin heilsar
Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin á Malbikstöðina að Varmá í Mosó, en hér tekur Afturelding á móti Grindavík í 17. umferð Lengjudeildarinnar! 

Grindavík situr í 9. sæti með 17 stig, en þeir hafa sigrað tvo af seinustu fimm leikjum sínum, tapað tveimur, og gert eitt jafntefli.
Einnig nældu þeir sér í þrjá leikmenn í lok félagsskiptagluggans, þá Aron Skúla Brynjarsson úr Leikni, Arnar Breka Gunnarsson frá ÍBV, en hann hefur spilað 15 leiki í Bestu deildinni í sumar. Einnig nældu þeir líka í Ibrahima Camara, fyrrverandi leikmanns Njarðvíkur frá 2023-24.