Leik lokið!
+4
Blikar sigra! Ekki var það fallegt, en Breiðablik taka stigin þrjú. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+3
Santa liggur eftir.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót
90. mín
+1
Blikar fá horn. Þær taka þetta stutt og eyða tíma við hornfánann.
90. mín
192 áhorfendur í kvöld
89. mín
InnOlga Ingibjörg Einarsdóttir
ÚtSunna Rún Sigurðardóttir
85. mín
Þröngt en gott færi!
Hrafnhildur Ása fær boltann á lofti í þröngu færi og nær lúmsku skoti sem fer rétt yfir markið.
83. mín
Breiðablik vilja rautt!
Þær vilja meina að Emma Nicole hafi togað í hárið á Elísu. Ásbjörn Þór dæmir aukaspyrnu, en ekkert spjald fer á loft.
81. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
79. mín
Hrafnhildur Ása að vinna hornspyrnu fyrir Blika
Þær taka þetta stutt, síðan kemur fyrirgjöf. Það er mikið klafs inni á teignum og Hrafnhildur Ása nær skoti sem fer framhjá.
78. mín
Rígheldur í stuttbuxur leikmanns Blika
Santa Sanija Vuskane
76. mín
InnSanta Sanija Vuskane
ÚtSigríður Emma F. Jónsdóttir
75. mín
InnEdith Kristín Kristjánsdóttir
ÚtLíf Joostdóttir van Bemmel
71. mín
Elísa Birta að vinna hornspyrnu
Boltinn kemur inn á teiginn, þar nær Emma Nicole skalla, en að lokum bægja Blikar hættunni frá.
69. mín
Skot
Þórdís Elva í fínu skotfæri, en skotið hennar er langt framhjá.
68. mín
Enn og aftur ver hún!
Karitas með gott skot sem Taylor ver í horn. Boltinn kemur inn á teiginn og Blikakonur ná skalla sem fer rétt yfir markið.
64. mín
Fyrirliðinn fær gult fyrir tuð
Sigríður Emma F. Jónsdóttir
64. mín
Horn fyrir Breiðablik
Þær taka þetta stutt, en ekkert verður úr þessu og Grindavík/Njarðvík fá markspyrnu.
63. mín
Blikar fá aukaspyrnu á góðum stað
Agla María kemur með boltann inn á teiginn og Kristín Dís stangar boltann yfir markið úr ágætis stöðu.
61. mín
Breiðablik fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn, en Emma skallar frá.
60. mín
Lítið að gerast þessa stundina
Bæði lið eru að skiptast á að halda í boltann.
57. mín
InnÁsa Björg Einarsdóttir
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
Gylfi gerir tvöfalda breytingu
57. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtKatrín Lilja Ármannsdóttir
50. mín
Sunna Rún fær höfuðhögg
Hún fær aðhlynningu, en hún er staðin á lappir og uppsker lófaklapp frá stuðningsmönnum Breiðabliks.
48. mín
Skalli í slána!
Elísa Birta með frábæra fyrirgjöf sem ratar beint á pönnuna á Ellie Coffield, en skallinn hennar fer í slána og Blikar hreinsa frá.
47. mín
Tilþrif og Skot
Hrafnhildur Ása fer illa með Emmu Nicole og á svo fínt skot sem Taylor Fox handsamar í markinu.
46. mín
Heimakonur byrja seinni hálfleikinn
Hrafnhildur Ása sparkar þessu í gang á ný.
45. mín
Hálfleikur
Ásmundur flautar til hálfleiks
Þetta hefur verið algjör einstefna hingað til. Eina skiptið sem það skapaðist hætta sóknarlega fyrir Grindavík/Njarðvík var þegar Elísa Birta átti góða fyrirgjöf sem enginn komst í. Annars hafa Blikar skapað fullt af góðum stöðum, það er með ólíkindum að þær séu ekki búnar að bæta við öðru markinu.
39. mín
Hættuleg fyrirgjöf!
Elísa Birta kemur með hættulega fyrirgjöf sem Júlía Rut er hársbreidd frá að koma kollinum í. Boltinn flýgur því yfir allan pakkann.
35. mín
Frábær varsla!
Agla María með lúmskt og fast skot inn í teig sem Taylor ver út í teiginn. Hrafnhildur Ása var við það að komast í boltann, en þær ná að bægja hættunni frá.
31. mín
Frábær sprettur!
Karitas klobbar eina, fer svo sjálf upp að endamörkum og kemur með fullkomna fyrirgjöf á Hrafnhildi Ásu sem er ein og óvölduð. Skot hennar er laust og Taylor Fox handsamar boltann í markinu.
Blikar að banka fast þessa stundina.
Blikar að banka fast þessa stundina.
30. mín
Tvöföld varsla!
Fyrst á Þórdís Elva gott og fast skot fyrir utan teig sem Taylor Fox ver út í teiginn. Líf fylgir á eftir en Taylor ver aftur.
26. mín
Breiðablik fá fyrsta horn leiksins
Agla María kemur með boltann inn á teiginn, en það er hreinsað frá.
24. mín
DAUÐAFÆRI!
Þórdís Elva vinnur boltann á hættulegum stað. Hún kemur boltanum á Hrafnhildi Ásu sem er ein á móti Taylor í markinu, en skotið er ekki nógu gott og Taylor sér við henni.
23. mín
Hrafnhildur Ása í góðri stöðu
Hún fær boltann úti hægra megin, keyrir í átt að marki Grindavíkur/Njarðvíkur, en fyrirgjöfin ekki upp á marga fiska.
20. mín
Blikar með öll tök á leiknum
Blikar að stjórna þessum leik fyrstu 20.
16. mín
Fyrirgjöf og skot
Sunna Rún keyrir á vörn Grindavíkur/Njarðvíkur og sker síðan boltann út á Katelyn. Hún tekur eina snertingu og tekur síðan skot sem Taylor Fox grípur í markinu.
9. mín
Blikar leiða!
Frábær fyrirgjöf og mark!
Katelyn Duong (stoðsending: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir)
Hrafnhildur Ása er með boltann úti hægra megin. Hún kemur síðan með frábæra fyrirgjöf meðfram jörðinni sem ratar beint á Katelyn Duong. Hún tekur hnitmiðað skot upp í hægra hornið sem er óverjandi.Blikar leiða!
5. mín
Rólegar fyrstu fimm
Bæði lið eru að skiptast á að halda í boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
10 mínútur í leik
Það er allt að verða klárt á Eikarvellinum og liðin halda til búningsherbergja.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á liði sínu eftir 2-0 sigur gegn Þór/KA í síðasta leik. Sunna Rún Sigurðardóttir kemur inn í liðið í stað Ólafar Sigríðar Kristinsdóttur, hún er farin til Bandaríkjanna.
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, gerir fimm breytingar á liði sínu eftir 4-2 sigur á ÍBV. Úr liðinu fara Eva Ýr Helgadóttir, Natasha Moraa Anasi, Birta Birgisdóttir, Sophia Faith Romine og Ása Björg Einarsdóttir. Inn í liðið koma markmaðurinn Taylor Fox, Katrín Lilja Ármannsdóttir, Elísa Birta Káradóttir, Júlía Ruth Thasaphong og Hrafnhildur Salka Pálmadóttir.
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, gerir fimm breytingar á liði sínu eftir 4-2 sigur á ÍBV. Úr liðinu fara Eva Ýr Helgadóttir, Natasha Moraa Anasi, Birta Birgisdóttir, Sophia Faith Romine og Ása Björg Einarsdóttir. Inn í liðið koma markmaðurinn Taylor Fox, Katrín Lilja Ármannsdóttir, Elísa Birta Káradóttir, Júlía Ruth Thasaphong og Hrafnhildur Salka Pálmadóttir.
Fyrir leik
Blikar í Evrópu
Breiðablik voru í forkeppni Meistaradeildar kvenna og mættu Aktobe frá Kasakstan. Blikar lentu snemma undir en Katelyn Duong svaraði um hæl stuttu síðar. Það reyndist vera eina mark Breiðabliks í leiknum og þær töpuðu í vítaspyrnukeppni þar sem ekki ein einasta spyrna fór í netið.
Breiðablik unnu þó Dinamo-BSUPC sem tryggði þeim sæti í 1. umferð Evrópubikarsins. Anna Pilipenko kom Dinamo yfir eftir 14 mínútur, en Hanna Siniauskaya fékk að líta rauða spjaldið tveimur mínútum síðar. Karitas Tómasdóttir jafnaði fyrir Blika eftir 53 mínútur. Anna Pilipenko var þó aftur á skotskónum og kom Dinamo aftur yfir. Agla María Albertsdóttir jafnaði metin á ný eftir 90 mínútna leik. Þá reyndist Agla María vera hetjan þar sem hún skoraði sigurmarkið í framlengingu. Það kom á óvart í leiknum þegar markvörðurinn Taylor Kane kom inn á sem útileikmaður eftir 82 mínútur, en hún stóð sig með prýði.
Breiðablik unnu þó Dinamo-BSUPC sem tryggði þeim sæti í 1. umferð Evrópubikarsins. Anna Pilipenko kom Dinamo yfir eftir 14 mínútur, en Hanna Siniauskaya fékk að líta rauða spjaldið tveimur mínútum síðar. Karitas Tómasdóttir jafnaði fyrir Blika eftir 53 mínútur. Anna Pilipenko var þó aftur á skotskónum og kom Dinamo aftur yfir. Agla María Albertsdóttir jafnaði metin á ný eftir 90 mínútna leik. Þá reyndist Agla María vera hetjan þar sem hún skoraði sigurmarkið í framlengingu. Það kom á óvart í leiknum þegar markvörðurinn Taylor Kane kom inn á sem útileikmaður eftir 82 mínútur, en hún stóð sig með prýði.
Fyrir leik
Félagaskiptaglugginn
Breiðablik hafa sótt tvo leikmenn í liðið í glugganum. Það eru þær Þórdís Elva Ágústsdóttir sem hefur nú þegar spilað tvo leiki fyrir félagið og Hildur Þóra Hákonardóttir sem kom inn á í sínum fyrsta leik gegn Þór/KA.
Grindavík/Njarðvík hafa verið mjög virkar í glugganum og sótt helling af leikmönnum. Í gær nældu sér þær í markmanninn Taylor Fox sem kemur frá Minnesota Aurora og sóknarmanninn Emersen Jennings sem kemur frá Louisville háskólanum. Þær fengu einnig Júlíu Rut Thasaphong, Birtu Birgisdóttur, Hrafnhildi Sölku Pálmadóttur, Evu Ýr Helgadóttur, Hayden Colson, Söntu Saniju Vuškäne og Elísu Birtu Káradóttur.
Grindavík/Njarðvík hafa verið mjög virkar í glugganum og sótt helling af leikmönnum. Í gær nældu sér þær í markmanninn Taylor Fox sem kemur frá Minnesota Aurora og sóknarmanninn Emersen Jennings sem kemur frá Louisville háskólanum. Þær fengu einnig Júlíu Rut Thasaphong, Birtu Birgisdóttur, Hrafnhildi Sölku Pálmadóttur, Evu Ýr Helgadóttur, Hayden Colson, Söntu Saniju Vuškäne og Elísu Birtu Káradóttur.
Fyrir leik
Blikar fóru illa með Grindavík/Njarðvík í fyrri viðureigninni
Liðin áttust við í 7. umferð og þá voru Breiðablik með sannkallaða flugeldasýningu á JBÓ vellinum. Leikar enduðu með þægilegum 5-0 útisigri Breiðabliks. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir kom Blikum yfir strax eftir eina mínútu og óhætt að segja að Grindavík/Njarðvík hafi ekki séð til sólar eftir það. Katelyn Duong tvöfaldaði forystuna eftir 15 mínútna leik. Þá var Agla María Albertsdóttir tvívegis á skotskónum og LÍf Joostdóttir van Bemmel fullkomnaði frábæra frammistöðu Breiðabliks.
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn
Fyrir leik
Uppbótartíminn fór yfir síðustu umferð
Fyrir leik
Ásmundur Þór er á flautunni
Ásmundur Þór Sveinsson er aðaldómari í kvöld. Honum til aðstoðar eru Tijana Krstic og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem.
Elmar Svavarsson er varadómari og Jóhann Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Elmar Svavarsson er varadómari og Jóhann Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Miðvörðurinn setti fernu!
Grindavík/Njarðvík fékk ÍBV í heimsókn í síðasta leik liðsins. Emma Nicole Phillips, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, fékk að spreyta sig upp á topp og olli svo sannarlega ekki vonbrigðum. Hún gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fjögur mörk liðsins sem voru öll í fyrri hálfleik. Hægt er að sjá viðtal við hana eftir leikinn hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Gestirnir í Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík hefur átt sterkt frumraunartímabil í Bestu deild kvenna. Liðið hefur komið mörgum á óvart með öflugum frammistöðum og situr í 5. sæti deildarinnar með 19 stig eftir 14 leiki. Í síðasta leik fengu þær ÍBV í heimsókn og unnu sterkt 4-2.


Fyrir leik
Heimakonur í Breiðablik
Blikar hafa svo sannarlega verið á fljúgandi siglingu í síðustu leikjum. Þær hafa skorað 13 mörk í síðustu þremur leikjum. Þar má nefna 7-1 útisigur gegn Val. Þær eru í harðri baráttu við FH um titilinn og bæði lið með 30 stig. Þær fengu Þór/KA síðast í heimsókn og unnu fagmannlega 2-0.


Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Heil og sæl lesendur góðir og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Eikarvellinum í Kópavogi. Í kvöld eigast Breiðablik og Grindavík/Njarðvík við í 16. umferð Bestu deildar kvenna.

16. umferð Bestu deildar kvenna
Miðvikudagur
19:15 Þróttur R. - Valur
19:15 Breiðablik - Grindavík/Njarðvík
19:15 Fram - FH
Fimmtudagur
18:00 ÍBV - Stjarnan
Föstudagur
18:00 Víkingur R. - Þór/KA

16. umferð Bestu deildar kvenna
Miðvikudagur
19:15 Þróttur R. - Valur
19:15 Breiðablik - Grindavík/Njarðvík
19:15 Fram - FH
Fimmtudagur
18:00 ÍBV - Stjarnan
Föstudagur
18:00 Víkingur R. - Þór/KA













