Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 19' Edith Kristín Kristjánsdóttir0 - 242' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 372' Agla María Albertsdóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Leik lokið!
Blikarnir taka þennan toppslag 0-3!
Ótrúlega mikilvægur sigur hjá Blikunum hér og þær tilla sér á toppinn í deildinni!

Þær höfðu algjört tak á FH liðinu í dag og sigurinn var í raun aldrei í hættu!

Fyrsta skiptið í sumar sem FH nær ekki að skora eitthvað segir það okkur um spennustigið

Takk annars fyrir samfylgdina í dag!
Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld
91. mín
1.017 áhorfendur hér í kvöld! Það eru alvöru tölur sem ég vil sjá oftar í kvennaboltanum takk fyrir takk!
90. mín
A.m.k. 3 mínútur í uppbótartíma
Breiðablik
88. mín
InnKristín Vala Stefánsdóttir
ÚtLíf Joostdóttir van Bemmel
Breiðablik
88. mín
InnHildur Þóra Hákonardóttir
ÚtHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Breiðablik
88. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
87. mín
Thelma Lóa í baráttunni við Taylor en er dæmd rangstæð
85. mín
Thelma Lóa virðist hafa meitt sig en FH er búið með allar skiptingarnar og hún þarf að harka þetta
84. mín
Thelma Lóa kemst framhjá Karitas að harðfylgi er alein en setur boltann langt framhjá á fjær, hún hefði skorað ef hún hefði lagt hann í nærhornið
82. mín
Ída Marín við það að sleppa í gegn en Taylor er á undan í boltann
FH
81. mín
InnMackenzie Elyze Smith
ÚtAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
80. mín
Hafrún Birna reynir skot af löngu færi en Taylor Kane grípur það örugglega í marki FH
79. mín
Thelma Lóa með frábæra sendingu upp á Ídu Marín en fyrsta snertingin ekki alveg nógu góð, í 9/10 skiptum hefði hún tekið hann og lagt í netið, það er bara ekkert að ganga upp hjá FH í dag
FH
73. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtÁsdís Karen Halldórsdóttir
Breiðablik
72. mín
MAAAARK!

Agla María Albertsdóttir

Agla María með frábæra aukaspyrnu á nærsvæðið þar sem Sunna Rún er lang fyrst af stað, boltinn frá Öglu María skoppar fyrir framan Sunnu en fer svo bara beint inn! Frábærlega gert hjá Öglu Maríu!

Þær eru svo gott sem að gera útum vonir FH kvenna!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
72. mín
Dæmt á Birnu fyrir að brjóta á Karitas, Agla María tekur þetta
70. mín
FH konur liggja á Blikunum þessa stundina
Ída Marín með hörkufyrirgjöf en rétt yfir höfuðið á Hafrúnu Birnu sem koma þarna askvaðandi
69. mín
ÚFFF
Thelma Lóa gerir aftur vel út við endalínu setur boltann fyrir en engin FH konar er mætt
69. mín
Thelma Lóa gerir frábæra vel, finnur Helenu út í teignum, hún reynir skotið en í varnarmann
68. mín
Karitas reynir skot af löngu færi en framhjá
Breiðablik
65. mín
InnÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
Úlfa Dís að koma inn í sínum fyrsta leik fyrir Blika
62. mín
ÚFFF
Edith með frábæra sendingu fyrir en Líf skóflar boltanum í varnarmann og yfir markið! horn sem ekkert kemur úr
FH
60. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtHildur Katrín Snorradóttir
FH
60. mín
InnThelma Lóa Hermannsdóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
FH
60. mín
InnBirna Kristín Björnsdóttir
ÚtJónína Linnet
60. mín
Andrea Rán með hornspyrnu fyrir FH, Ásdís Karen nær skallanum áfram en boltinn rúllar svo útaf
58. mín
Hafliði Breiðfjörð mættur með myndavélina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik
57. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir

55. mín
OJJJJJJJJ
Helena Maree kemst ein í gegn en setur boltann rétt framhjá markinu!
53. mín
Agla María með horn fyrir Blika en FH konur koma þessu frá
51. mín
Ása nálægt því að komast ein í gegn en Jónína bjargar á síðustu stundu, boltinn berst svo á fjærstöngina en Edith nær ekki að setja skrokkinn í þetta, dauðafæriiiii
49. mín
Ingibjörg setur Jónínu í vandræði en þær redda sér fyrir horn
48. mín
Brotið á Ingibjörgu á miðjum vallarhelmingi Blika, Andrea Rán tekur spyrnuna, setur hana stutt á Ásdísi Karen
46. mín
Við erum farin aftur af stað
Ída Marín og Andrea Rán taka þetta saman
45. mín
Hálfleikur
Blikarnir leiða 0-2 í hálfleik!
Breiðablik mættu klárar frá fyrstu mínútu og settu FH liðið undir pressu, þær hafa ítrekað testað varnarlínuna hjá FH en hafa að sama skapi gefið lítið færi á sér.

FH konur eru ekki í sama takti og við höfum séð þær í sumar og einfaldar sendingar hafa verið að feila hjá þeim, líklega eru taugarnar vel þandar og þær hafa átt í brasi bæði varnarlega og sóknarlega á móti feykisterku Blikaliðinu

Við tökum okkur annars smá pásu og snúum svo aftur í vonandi ennþá fjörugri leik
45. mín
Agla María tekur horn fyrir Blika, snýr hann á nærsvæðið en FH konur koma þessu frá og þar með flautar dómarinn til hálfleiks!
45. mín
A.m.k. 1 mínúta í uppbótartíma
Breiðablik
42. mín
Þær TVÖFALDA!

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Hrafnhildur Ása sleppur í gegn og setur hann snyrtilega framhjá Aldísi í markinu!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
42. mín
Líf brýtur á Deju við miðjulínuna, Anna Heiða reynir að spila úr þessu en það er einhver taugatitringur enn í FH liðinu og þær hafa átt í erfiðleikum með að tengja sendingar
40. mín
Hættuleeeegt
Líf kemur boltanum framhjá Aldísi en hann hins vegar rúllar fyrir tómt markið án þess að Blikarnir nái að pikka honum inn! Blikarnir hafa átt mun hættulegri færi hér í fyrri hálfleik
37. mín
Ída Marín komin á fleygiferð, missir hins vegar boltan aðeins of langt frá sér og Helena brýtur svo á Kristínu Dís í kjölfarið
35. mín
ÚFFFF
Ásdís Karen með frábæra tilraun en rétt framhjá markinu!
34. mín
DEJA!
Ása keyrir inn á teiginn alein ætlar að finna Edith í daaaauðafæri en Deja líklega með björgun ársins og kemur í veg fyrir að Edith skori sitt annað mark í dag!
33. mín
Líf kemur sér í góða stöðu en fyrirgjöf hennar ekki nógu nákvæm og rúllar út fyrir endalínuna
30. mín
Hæættttuleeegt
Einhver misskilningur hjá Aldísi og Deju sem endar með því að Blikarni komast í boltann inn í teignum, Edith nær svo skotinu en það er framhjá
29. mín
Andrea Rán tekur spyrnuna á fjær, darraðardans þarna en Hildur Katrín kemst á boltann, nær skotinu en Taylor ver vel
29. mín
Enn brjóta Blikarnir á hættulegum stöðum. nú brjóta þær á Ásdísi við vinstra vítateigshornið
27. mín
Brotið á Helenu, þær taka þetta stutt
27. mín
Úfff
Andrea Rán með spyrnuna, ætlar að setja hann á markið en rétt framhjá!
26. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað!
Kristín Dís brýtur á Ídu Marín á stórhættulegum stað, rétt fyrir utan teiginn
23. mín
Líf fær sendingu innfyrir en flaggið góða fer réttilega á loft
Breiðablik
21. mín
Gult spjald

Þórdís Elva Ágústsdóttir

Fyrsta spjaldið
Þórdís rífur í Ásdísi
20. mín
Agla María með horn fyrir Blika sem ekkert kemur úr
19. mín
Hættta!
Agla María með frábæran bolta inn á teiginn þar sem Katelyn Duong er tilbúin en FH konur rétt ná að komast í boltan á undan
17. mín
Karitas með háan bolta inn á teiginn, þar er Elísa mætt en þrumar boltanum hátt yfir
14. mín
Það hefur aðeins dregið úr hraðanum og liðin eru að reyna að skipuleggja sig betur
Breiðablik
9. mín
MAAAARK!

Edith Kristín Kristjánsdóttir (stoðsending: Agla María Albertsdóttir )

BLIKARNIR með fyrsta mark leiksins!

Agla María með frábæra fyrirgjöf af vinstri kantinum, Ása lætur boltann fara í gegnum sig og Edith er mætt á fjær og skrúfar hann í fjærhornið!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
7. mín
Deja og Edith í baráttunni, Edith pirruð og brýtur óþarflega harkalega á Deju sem náði af henni boltanum og fær tiltal frá dómaranum
5. mín
Þórdís Elva reynir skotið en það er yfir markið
4. mín
Það er mikið tempó hérna í byrjuin leiks, Ásdís Karen eltir og pressan boltann alla leið til Taylor í markinu, og hinum megin sleppa svo Blikarnir í skyndisókn
2. mín
Horn sem ekkert kemur úr fyrir Blikana
2. mín
Byrjar vel!
Blikarnir koma sér í frábær færi! Ása fær boltann í frábærri stöðu nær ekki skotinu, Edith fær svo boltann en setur hann í varnarmann og útaf... Hættttuleeeeegt
1. mín
Leikur hafinn
Líf sparkar þessum stórleik af stað fyrir okkur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin ganga hér inn á völlinn og veislan er rétt að byrja!

Heimakonur spila í einstöku treyjunum sínum þær eru því blágrænar-svartar-blágrænar.

Breiðablik eru hins vegar hvítar-hvítar-hvítar

Let's GO!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
FH
Bræðurnir Guðni og Hlynur gera þrjár breytingar á sínu liði frá 4-6 sigrinum á Fram í síðasta leik. Aldís kemur aftur í markið og þá spila Ásdís Karen og Hildur Katrín sína fyrstu leiki fyrir FH í sumar. Ásdís Karen kom til FH á dögunum frá Braga í Portúgal og þá var Hildur Katrín kölluð aftur úr láni frá Grindavík/Njarðvík og mætir þar með Breiðabliksliðinu í annað sinn á 3 dögum!

Breiðablik
Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks gerir einnig eina breytingu á sínu liði frá 1-0 sigri á Grindavík/Njarðvík en inn í liðið fyrir Sunnu Rún kemur Edith. Þá er Úlfa Dís tilbúin í grænu treyjunni á bekknum.
Fyrir leik
FH með afþreyingu fyrir leik!
Það er Bongó og FHingar opna Kaplakrika snemma!
Ís, börgers, drykkir og hoppukastali hvað meira er hægt að biðja um?!?

Bombið ykkur á völlinn!


Fyrir leik
Spáð í leikinn!
Fjórir álitsgjafar spáðu í stórleikinn,
Þrír af fjórum álitsgjöfum spá sigri FH, en einn spáir sigri Breiðabliks.

Magnús Haukur Harðarson
FH 3-2 Breiðablik

Snæbjört Pálsdóttir
FH 4-2 Breiðablik

Mist Rúnarsdóttir
FH 4-2 Breiðablik

Arnar Páll Garðarsson
FH 2-3 Breiðablik


Fyrir leik
Félagsskiptaglugginn
FH
Það var nú ekkert að frétta á markaðnum hjá FH framan af en Aldís Tinna var kölluð aftur úr láni frá Keflavík. Svo dró til tíðinda við lok gluggans en Ásdís Karen er komin í FH frá Braga í Portúgal og sögurnar segja að hún sé komin til að leysa Ídu Marín af hólmi sem sé á leið til Hammarby í Svíþjóð. Þá hafa þær einnig fengið markmanninn Sigurborgu Kötlu frá Víking. Eftir leikinn á miðvikudaginn var ljóst að Hildur Katrín var kölluð úr láni frá Grindavík/Njarðvíð og Vigdís Edda fór yfir til Stjörnunnar .






Breiðablik
Sóttu tvo leikmenn snemma í glugganum. Þær Þórdísi Elvu frá Þróttir og Hildi Þóru frá FH en hún hefur þó aðallega verið að spila með Harvard í háskólaboltanum. Eftir leikinn á miðvikudaginn kom síðan risa tilkynning þegar ljóst var að félagið hafði keypt Úlfu Dís frá Stjörnunni.



Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust 25. maí sl. á Eikarvellinum þar sem FH fór með 2-3 sigur af hólmi. Agla María skoraði fyrsta mark leiksins á 7. mínútu, Ingibjörg jafnaði metin á 39. mínútu og var 1-1 í hálfleik.

Ása kom Breiðablik svo aftur yfir í í seinni hálfleik áður en Deja og Ída Marín kláruðu leikinn fyrir FH á tíu mínútna kafla.

Fyrir leik
Breiðablik
Blikarnir sitja í 2. sætinu með 33 stig, jafnmörg stig og topplið FH en eru með 2 mörkum minna í markatölu!

Þær sóttu 1-0 sigur gegn Grindavík/Njarðvík í síðasta leik sem einnig var spilaður á miðvikudaginn. Var það Katelyn Duong sem skoraði eina mark leiksins á 9. mínútu leiksins.

Blikarnir eru heldur betur EKKI jafn vel hvíldar og FH konur en meðan FH hvíldi þá stóðu Blikarnir í ströngu í Kasakstan þar sem veikindi herjuðu á leikmenn og leikirnir tveir fóru báðir í framlengingu í miklum hita og sól! Virkilega erfiðar aðstæður og sérstaklega þegar bekkurinn var ansi þunnskipaður og Taylor varamarkmaður neyddist til að spila hálftíma sem útileikmaður.

Þær enduðu þetta evrópuævintýri þó á háu nótunum og tryggðu sigur í seinni leiknum og þar með áframhaldandi Evrópuævintýri í Evrópubikarnum.

Blikarnir eru því ekki jafn hvíldar en þær eru hundrað prósent í höööörkuformi og eru ekki bara allir leikir auðveldir eftir tvo framlengda leiki í 30+ stiga hita og sól?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH
FH situr í tppsætinu fyrir þennan leik með 33 stig líkt og Breiðablik en hafa 2 mörkum meira í markatölu en Blikarnir. Þetta er því sannkallaður RISA TOPPSLAGUR og hver einustu mistök geta reynst virkilega dýr í dag!

FH konur unnu góðan 4-6 sigur á Fram í fjörugum leik sem spilaður var núna á miðvikudag.
Fyrir það sátu þær hjá vegna evrópuleikja Blika og þess vegna erum við að fá þennan stórleik núna!

FH konur fengu því nokkuð góða hvíld fyrir þessa tvo leiki á stuttum tíma en fyrir leikinn á miðvikud. höfðu þær ekki spilað síðan fyrir versló þegar þær misstu sigur gegn ÍBV í 2-2 jafntefli þegar Allison Lowrey jafnaði fyrir eyjakonur á 90. mínútu.

Það er því spurning hvort hvíldin sé þetta extra sem færir FH sigurinn í dag? Það eitt sem víst er hins vegar að FH munu mæta veeeeel gíraðar og ég spái fullt af mörkum!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymi dagsins!
Á flautunni í dag verður Guðmundur Páll Friðbertsson og honum til halds og trausts verða Arnþór Helgi Gíslason og Jón Reynir Reynisson aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Ronnarong Wongmahadthai og eftirlitsmaður í dag er Þorsteinn Ólafs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Toppbaráttuslagur í Krikanum!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá þessum stórslag á Kaplakrikavelli þar sem topplið FH tekur á móti Breiðablik í 15. umferð Bestu deildarinnar. Leiknum var frestað vegna Evrópuleikja Breiðabliks og er því spilaður á eftir 16. umferðinni.

Leikurinn hefst á slaginu 17:00!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.