Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta karla
VÍS völlurinn
Þór
Þór
0 - 2
Keflavík
Keflavík
0 - 132' Eiður Orri Ragnarsson0 - 287' Eiður Orri Ragnarsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Eiður Orri skein skært

Hvað réði úrslitum?

Eiður Orri Ragnarsson. Það voru lítil gæði á VÍS vellinum í dag. Eiður Orri skoraði stórkostlegt mark sem kom Keflvíkingum yfir og innsiglaði svo sigurinn.

Bestu leikmenn

1. Eiður Orri Ragnarsson

Langbesti maður vallarins. Kom Keflvíkingum yfir með stórkostlegu marki og innsiglaði sigurinn.

2. Ásgeir Páll Magnússon

Ásgeir og Marin Brigic sterkir aftast og Muhamed Alghoul einnig mjög flottur frammi. Ásgeir frábær í varnarleiknum, Þórsarar komust lítt áleiðis.

Atvikið

Enn og aftur minnist maður á fyrsta markið. Glæsilegt skot sem gerði gæfumuninn.

Hvað þýða úrslitin?

Þórsarar eru áfram á botninum með 15 stig þegar liðið á þrjá leiki eftir fyrir tvískiptinguna. Keflvíkingar eru hins vegar í 5. sæti og ætla sér að vera með í efri hlutanum eftir tvískiptinguna.

Vondur dagur

Algjört andleysi í Þórsurum. Victor Bertomeu hefur verið í miklu brasi síðan hann gekk til liðs við félagið. Sóknarleikurinn ekki til staðar hjá liðinu.

Dómarinn - 7

Flottur leikur í dag. Lét leikinn fljóta vel. Lítið hægt að setja út á teymið. Keflvíkingar eru ekki vissir með mark sem var dæmt af þeim, ég hef ekki séð það aftur almennilega.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.