Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Léttur vindur en bongó
Selfoss
Selfoss
6 - 2
Fjölnir
Fjölnir
0 - 14' Árni Steinn Sigursteinsson0 - 224' Viktor Andri Hafþórsson Viðar Örn Kjartansson 30'1 - 2Viðar Örn Kjartansson 32'2 - 2Viðar Örn Kjartansson 41'3 - 2Viðar Örn Kjartansson 58'4 - 2Ívan Breki Sigurðsson 65'5 - 2Viðar Örn Kjartansson 74'6 - 2
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
Selfoss 6-2 sigur!!!
Gestur átti rétt í lokinn sendingu á Auðunn sem fór einhvern veginn að því að setja boltann LENGST yfir en hann var einn á fjærstönginni.
Hrikalegt klúður en skiptir ekki neinu. Þvílikur leikur og ég þakka fyrir mig!
92. mín
Fjölnir að fá hornspyrnu sem er eflaust það síðasta sem við sjáum hér.
90. mín
Venjulegur leiktími búinn, eflaust litlu bætt við.
Selfoss
87. mín
Gult spjald

Dagur Jósefsson

86. mín
Fjölnir með innkast ofarlega á vellinum, það hefur ekki mikið verið að frétta síðustu mínútur.

Fjölnir vildu hendi víti á Selfoss, en held það hafi ekki verið mikið í því.
79. mín
Árni Steinn með slakt skot utan teig sem Sabatti tekur.
Selfoss
76. mín
InnMaksymilian Luba
ÚtIvan Paponja
Selfoss
76. mín
InnAuðunn Logi Valdimarsson
ÚtViðar Örn Kjartansson
Einn, tveir, þrír, fjórir, FIMM!!! Dimmalim! Ætli þetta sé ekki verðskulduð hvíld.
Selfoss
74. mín
Jájá en ekki hvað!

Viðar Örn Kjartansson (stoðsending: Gestur Helgi Snorrason)

Gestur gerði mjög vel að vinna boltann ofarlega og losnaði síðan einn aftur fyrir vörnina. Sendir hann á Viðar Örn sem er í einhverju svakalegum gír!
Fjölnir
72. mín
InnAron Fannar Hreinsson
ÚtÝmir Hjálmsson
Fjölnir
72. mín
InnEinar Örn Harðarson
ÚtPatryk Hryniewicki
68. mín
Dagur Jósefsson gerir vel í að koma sér fyrir hættulegt skot frá Degi Inga.
Selfoss
67. mín
InnGestur Helgi Snorrason
ÚtFrosti Brynjólfsson
Selfoss
65. mín
5-2 fyrir Selfoss!

Ívan Breki Sigurðsson (stoðsending: Viðar Örn Kjartansson)

Viðar Örn sloppinn einn í gegn. Kominn greinilega með nóg og losar hann til hliðar þar sem Ívan Breki mætir á fleygi ferð og hamrar honum í nánast tómt netið.
Fjölnir
63. mín
InnEgill Otti Vilhjálmsson
ÚtViktor Andri Hafþórsson
Selfoss
58. mín
Ferna takk fyrir!

Viðar Örn Kjartansson

Fjölnismenn gripnir bara sofandi í seinna horninu á stuttum tíma.
Boltinn á nær stöngina þar sem Viðar Örn er að sjálfsögðu mættur og flikkar honum snyrtilega í fjær.
Selfoss
55. mín
InnBrynjar Bergsson
ÚtAron Fannar Birgisson
55. mín
Ivan Paponja hreinsar vippu frá Viktori Andra sem var búið að sigra Sabatti í markinu
53. mín
Aftur færi hjá Selfoss!
Snögg sókn aftur, Aron Fannar á hægri kantinum reynir að koma boltanum á Frosti í teignum en aðeins of krefjandi sending og Frosti nær ekki snertingu.
52. mín
Einn á móti markmanni!!!
Einar Bjarki með flugbrautina fyrir framan sig, kominn í teiginn en reynir að kloppa Snorra Þór í markinu og fær það ekki í gegn.
50. mín
Frábær fyrirgjöf frá Degi Inga í hægri bakverðinum. Beint fyrir markið en Birgir Þór kemur ekki góðri snertingu á boltanum og eiginlega hné-ar hann framhjá og yfir.
49. mín
Bæði lið með skiptingu í hálfleik, Selfoss að fá fyrsta hornið í seinni.

Það er hreinsa frá.
Fjölnir
46. mín
InnMikael Trausti Viðarsson
ÚtOrri Þórhallsson
Selfoss
46. mín
InnEinar Bjarki Einarsson
ÚtReynir Freyr Sveinsson
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað!
Það var heldur betur treatað okkur vel hér í fyrri og verðum við ekki bara að biðja um áfram haldandi veislu? eða er það frekja?

Sjáum til hvað seinni býður okkur uppá, Fjölnir á upphafsspark.
45. mín
Hálfleikur
3-2 Selfoss í hálfleik
Þvílíkar fyrstu 45mín hér á Selfossi. Fimm mörk, endurkoma og Viðar Örn þrenna.
Tökum okkur smá pásu, ekki veitir af.
Áfram blíða og skemmtun í seinni takk fyrir.
45. mín
Komnar 45 á klukkuna en Fjölnir á horn.
Selfoss
41. mín
WOWOOWOW!!!!

Viðar Örn Kjartansson (stoðsending: Frosti Brynjólfsson)

Ekkert eðlilega vel spilað eftir að Patryk dettur og missir boltann í vörninni.
Frosti með frábæra sendingu og Viðar Örn setur í fimmta gír, tekur boltann síðan framhjá markmanninum og setur hann í netið.
39. mín
Fjölnismenn búnir að ná að færa sig ofar eftir þetta jöfnunarmark en án einhverja færa.
35. mín
Frosti Brynjólfsson hefði viljað gera betur þarna með sitt skot, en það endar þægilega í fanginu á Snorra Þór.
Selfoss
32. mín
ALLT JAFNT!!!!

Viðar Örn Kjartansson

Hamra járnið meðan það er heitt! Líkt og seinna mark Fjölnis þá er alskonar bras í teignum en Viðar Örn með sitt tryllta markanef mætir á fjær og treður boltanum í netið.
2-2 og allt orðið jafnt allt í einu!
Selfoss
30. mín
SÆLAAAARRR!!!!

Viðar Örn Kjartansson

Ekkert eðlilega snyrtileg aukaspyrna!!!

Viðar Örn tekur stutt tilhlaup og rétt potar í boltann, yfir veginn og sláinn inn.
Það sást nokkuð vel að ef þessi kæmist yfir háa vegg Fjölnis færi þessi inn.
29. mín
Aukaspyrna á STÓRHÆTTULEGUM stað fyrir Selfoss.
26. mín
Mikael Breki með alvöru snúning til að losa sig frá varnarmanni og síðan skot utan teigs en það fór rétt framhjá.
Fjölnir
24. mín
2-0 fyrir Fjölni!

Viktor Andri Hafþórsson

Hornspyrna sem dansar darraða dansinn góða og alvöru kaós í teignum. Viktor Andri nær góðri snertingu á boltann í tómt markið.
Selfoss
23. mín
Gult spjald

Ivan Paponja

22. mín
Góð þræðing frá Aroni Fannar til að reyna finna Viðar Örn í teignum en hann nær ekki alveg nógu góðum skalla og boltinn endar í markspyrnu.
21. mín
Önnur hornspyrna sem Selfoss sækir.
Fjölnir
19. mín
Gult spjald

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson

Slök tækling og verðskuldað spjald.
Fjölnir
17. mín
InnPatryk Hryniewicki
ÚtLuka Heinrich Emiel Geishauser
Nokkuð viss að hann var fyrir einhverju hnjaski eftir hornspyrnuna hjá Fjölni.
16. mín
Sláinn!
Selfoss líflegir og spila vel saman í sókinni, endar með hörkuskoti frá Aroni Fannar en það fer beint í slána.
14. mín
Selfoss að fá sína fyrstu hornspyrnu núna.

Taka stutt og endar með fínu skoti frá Bjarka Flóvent, en það fer beint í fangið á Snorra Þór.
11. mín
Fjölnir sækja fyrstu hornspyrnu leiksins.

Mjög góð spyrna sem einhvern veginn skoppar gegnum allan pakkann.
9. mín
Gott færi!!!
Vel gert hjá Eysteinn að losa sig við varnarmanninn á vinstri kantinum, kemur boltanum fyrir þar sem Viðar Örn á flikk sem endar á fjær en Ívan Breki sem er þar mættur hittir boltann illa og setur hann hátt yfir.
8. mín
Snorri Þór með gott inngrip í fyrirgjöf, tók boltann yfir Aron Fannari sem var tilbúin í alvöru skallafæri
Fjölnir
4. mín
1-0 Fjölnir!

Árni Steinn Sigursteinsson

Ekki lengi að þessu og ekki flókið.
Einn bolti sem Fjölnismenn senda í gegnum vörnina og Árni ágætlega staðsettur á hægra horni teigsins klárar virkilega vel í fjærhornið.
3. mín
Bæði lið búnir að fá sínar fyrstu sóknir, ekki endað með neinni hættu svo sem.
Fyrirgjöf Fjölnis skoppaði gegnum allan teiginn.
1. mín
Leikur hafinn
Startað á Suðurlandinu!
Selfoss sparka okkur af stað hér á JÁVERK-vellinum á Selfossi í dag.

Mikilvæg þrjú stig í boði einsog svo oft áður, góða skemmtun og "Let's play football".
Fyrir leik
Fyrri leikurinn
Fjölnir fékk Selfoss í Egilshöllinna í 6.umferð.
Þar fór Selfoss með 3-2 sigur. Frosti Brynjólfsson skoraði fyrsta markið síðan bætti Viðar Örn Kjartansson í fyrir Selfoss. Á 60.mín skoraði síðan Frosti aftur og staðan 3-0 fyrir Selfoss en Fjölnir náði að klóra í bakkann með mörkum frá Mikeal Breka Jörgensson og Patryk Hryniewicki.Fyrir þá alla hörðustu er hægt að horfa á leikinn hér að ofan, mörkin eru á leikmínútum 32-50-60-71 og 74.
Fyrir leik
Fjölnir
Taplausir í síðustu þremur. Þannig mætir Fjölnir til leiks á Selfoss í dag. Hafa verið sérstaklega öflugir á heimavelli og nú reynir á. Liðið er í 4.sæti með 25stig sem er fjórum stigum minna en Selfoss sem situr í 2.sæti. Það er því til mikils að keppa í leik dagsins.
Viktor Andri og Bjarni Þór eru markahæstir hjá Fjölni með 8mörk báðir. Þar á eftir kemur Egill Otti með 6mörk. Þessir þrír sáu einmitt um markaskorunina í síðasta leik Fjölnis sem var 4-1 sigur gegn KFG.
Tvenna frá Viktori Andra, en leiknum fyrir KFG var það tvenna frá Bjarna Þór sem skilaði jafntefli gegn Víking Ó.
Á myndinni er Viktor Andri Hafþórsson
Mynd: Fjölnir

Fyrir leik
Selfoss
Það virðist ekkert ætla að stoppa Hauka í að taka 1.sætið en heimamenn í Selfossi eru í 2.sæti og það er gott sæti til að vera í.
Þeir koma til leiks eftir erfitt 2-0 tap fyrir Víking Ólafsvík, en liðið fyrir þann leik var á mjög góðu skriði.
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Það er hingsvegar nóg eftir að 2.deild en 29stig hingað sem er þremur stigum meira en 3.sætið sem Selfoss vill eflaust alls ekki enda í.

Fótbolti.net ræddi við Aron Lucas Vokes sem ÍBV keypti um daginn frá Selfoss.
Aron Lucas Vokes skoraði 7mörk í 14 leikjum í deild fyrir Selfoss liðið og það er alvöru blóðtaka að missa hann á miðju tímabili en hann hefur trú á að sitt félag fari upp.
Fyrir leik
Dómarar
Sveinn Arnarsson er á flautunni.
Honum til aðstoðar eru Rögnvaldur Þ Höskuldsson og Nour Natan Ninir
Dómaraeftirlitsmaður er Bergur Þór Steingrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Laugardagur er leikdagur!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu frá JÁVERK-vellinum á Selfossi. Það eru alvöru hörkuleikur sem við erum með hér, Selfoss fær Fjölnir í heimsókn. 17.umferð 2.deildar og við hefjum leik strax kl.14:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.