Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 19' Edith Kristín Kristjánsdóttir0 - 242' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 372' Agla María Albertsdóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Blikarnir slökktu á FH-vélinni í Kaplakrika

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag var að Breiðablik mætti einfaldlega betur til leiks. Blikar settu FH undir pressu frá fyrstu mínútum, voru grimmari í einvígunum, sterkari að ná á öðrum bolta og náðu að gera það sem fáum liðum hefur tekist í sumar að taka sóknarleik FH nánast alveg úr sambandi. Ætli reynslan hjá Blikum að spila svona stórleiki hafi ekki líka eitthvað að segja, spennustigið var allavega hárrétt hjá þeim annað en hjá FH.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir

Átti frábæra fyrirgjöf í fyrsta markinu og skoraði sjálf þriðja markið. Hún fór fyrir sínum konum í dag, setti tóninn í föstum leikatriðum, mikil barátta í henni og á alltaf stórhættulegar sendingar.

2. Karitas Tómasdóttir

Kannski ekki alltaf sú sem stelur fyrirsögnunum, en frammistaðan hennar lýsti Blikaliðinu fullkomlega. Hún barðist fyrir öllu, henti sér fyrir alla bolta og átti stóran þátt í því að loka á sóknarleik FH kvenna í dag.

Atvikið

Annað mark Breiðabliks rétt fyrir hálfleik. FH var enn inni í leiknum í stöðunni 0-1 en Hrafnhildur Ása slapp í gegn á 42. mínútu og kláraði snyrtilega framhjá Aldísi. Að fara 0-2 inn í hálfleik breytti verkefninu algjörlega fyrir FH og gaf Blikum fullkomna stöðu til að stjórna leiknum eftir hlé.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik tekur risastór þrjú stig í toppbaráttunni og fer upp fyrir FH og á toppinn! Í fyrsta sinn í sumar náði FH ekki að skora mark. FH er þó enn í bullandi baráttu við Blika og þetta var ekki leikur sem kláraði neitt, en liðið fékk harða lexíu í því hvernig svona toppleikir geta spilast.

Vondur dagur

Vondur dagur hjá FH liðinu sérstaklega í fyrri hálfleik. Heimakonur voru ólíkar sjálfum sér, lentu í vandræðum með pressu Blika og náðu ekki að spila sinn leik. Einfaldar sendingar klikkuðu, Blikar unnu of marga bolta og FH fór í fyrsta sinn í sumar af velli án þess að skora.

Dómarinn - 7

Guðmundur Páll Friðbertsson komst vel frá leiknum. Það var mikil barátta og toppslagstempó í Kaplakrika, en engin stór úrslitaákvörðun skyggði á leikinn. Blikar voru einfaldlega betra liðið og dómarinn var ekki aðalpersónan.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.