Fyrir leik
Fyrri leikur liðana í sumar
Fyrir leik
Innbyrðis
Fyrir leik
FH
FH hafa verið á flottu róli síðustu vikur og eru taplausir í síðustu 9 leikjum sínum í deildinni eða hafa ekki tapað frá því í lok maí þegar þeir lutu í lægra hald gegn ÍA.
FH tókst í síðustu umferð að lyfta sér upp úr fallsæti með góðum sigri fyrir norðan þegar þeir unnu KA 1-0.
Formtaflan í síðustu fimm leikjum segir okkur að FH hefur sótt 9 stig af síðustu 15 mögulegum.

Víkingur R.
Víkingar unnu gríðarlega öflugan 3-2 sigur á Thun frá Sviss á fimmtudaginn sl. í forkeppni Evrópudeildarinnar en féllu þó úr leik gegn þeim 5-3 samanlagt og fara í umspil fyrir sæti í Sambandsdeildinni.
Í deildinni hafa Víkingar aðeins verið að hiksta og aðeins sótt 8 stig af síðustu 15 stigum mögulegum. Víkingar hafa gert jafntefli í síðustu tveim leikjum sínum gegn ÍBV 2-2 og gegn ÍA 2-2.
Skildi þó ekki vera að við séum að fá spennu í Íslandsmótið?

Þriðja liðið
Jóhann Ingi Jónsson er á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða Ragnar Þór Bender og Eðvarð Þór Eðvarðsson.
Hreinn Magnússon er á skiltinu góða og til taks ef eitthvað fer úrskeiðis hjá teyminu.
Gylfi Þór Orrason er svo eftirlitsmaður KSÍ.

Hreinn Magnússon er á skiltinu góða og til taks ef eitthvað fer úrskeiðis hjá teyminu.
Gylfi Þór Orrason er svo eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Velkomin í Kaplakrika
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik FH og Víkings í Bestu deild karla sem fram fer á Kaplakrikavelli.

FH hefur 28 sinnum hrósað sigri og gerðu það síðast í Pepsi Max deildinni 2020 þegar þeir höfðu betur 1-0 hér á Kaplakrikavelli.
Víkingur hafa 32 sinnum hrósað sigri og gerðu það síðast í fyrri umferðinni í Bestu deild karla í ár með 5-0 sigri.
Liðin hafa þá 22 sinnum skilið jöfn og gerðist það síðast á síðasta tímabili þegar þau skildu jöfn 2-2 á þessum velli.