Fotbolti.net
Besta deildin
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta karla
Meistaravellir
Bongó blíða, vel vökvað gervigras. Gæti ekki verið betra
KR
KR
3 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 124' Kristófer Ingi Kristinsson27' Höskuldur Gunnlaugsson (misnotað víti)0 - 238' Kristófer Ingi KristinssonEiður Gauti Sæbjörnsson 41'1 - 21 - 343' Ágúst Orri ÞorsteinssonÁstbjörn Þórðarson 54'2 - 3Aron Sigurðarson 55'3 - 3
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Áhorfendur: 2887

SKÝRSLAN: Besti leikur Bestu deildarinnar í sumar?

Hvað réði úrslitum?

Þetta var ótrúleg skemmtun, og bæði lið fengu fullt af færum. Það sem ræður úrslitum er í raun bara það að bæði lið klára þrjú færi og klúðra rest. Það hefði ekki komið neinum á óvart miðað við færin að annað eða bæði lið hefðu skorað allaveg þrjú í viðbót.

Bestu leikmenn

1. Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)

Skorar tvö og það annað beint úr aukaspyrnu. Svo fékk hann fullt af öðrum færum þar sem hann hefði mögulega átt að gera betur eða það var vel varið frá honum.

2. Aron Sigurðarson (KR)

Rosalega margir sem koma til greina en eins og vanalega var Aron allt í öllu í sóknarleik KR. Skorar eitt gott mark og hefði líkast til getað bætt við.

Atvikið

54-55 mínúta er náttúrulega rosaleg. KR-ingar minnka muninn í 3-2 og 65 sekúndum seinna eru þeir búnir að jafna. Stúkan var um það bil að springa og trúin heldur betur komin á þeim tíma hjá Vesturbæingum.

Hvað þýða úrslitin?

KR er núna átta stigum á eftir Víkingum sem eru efstir og verkefnið orðið erfiðara að elta þá uppi. Blikar eru sem áður í 4. sæti, fimm stigum á undan Keflavík og sjö stigum á eftir Fram.

Vondur dagur

Halldór Snær gefur á sig vítið, en ver það svo. Hann ver síðan ekki aukaspyrnuna sem hann á líkast til að gera, en bætir upp fyrir það með því að verja eiginlega allt sem eftir er. Þannig hann endar á að vera skúrkur og hetja á sama tíma í kvöld. Arnór Ingvi fékk urmul færa en var alls ekki á skotskónum í dag. Þorleifur Úlfarsson, á mjög góðan leik heilt yfir en hefði líkast til átt að klára eitthvað af sínum færum.

Dómarinn - 6

Þórður vill almennt láta leiki fljóta og ekki dæma á eitthvað sem honum þykir lítið. Það getur hins vegar orðið til þess að hann sleppi mjög augljósum hlutum sem mér fannst hann gera smá í dag. Ívar Örn brýtur mjög oft af sér og með öðrum dómara hefði hann líkast til fengið tvö gul í kvöld. Svo eru fleiri dæmi af hlutum sem Þórður sleppti. Aftur á móti var leikurinn frábær skemmtun þannig hans stjórnun á leiknum verður að fá að vera hluti af því hrósi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.