Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Sól og logn!
ÍBV
ÍBV
1 - 3
ÍA
ÍA
0 - 139' Haukur Andri Haraldsson0 - 248' Markús Páll EllertssonOmar Sowe 67'1 - 21 - 372' Viktor Jónsson
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Skagamenn áttu góða ferð til Eyja

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn nýttu færin sín mjög vel en Eyjamenn alls ekki. Fannst Skagamenn beittari í sínum aðgerðum, þetta var svolítið mikið dól hjá ÍBV, mikið til hliðar og til baka. Eyjamenn minnkuðu muninn í seinni hálfleik en Skagamenn voru fljótir að slökkva í einhverjum vonum hjá þeim með því að svara strax.

Bestu leikmenn

1. Viktor Jónsson

Var mjög öflugur í sókninni hjá Skagamönnum. Skorar þetta mikilvæga þriðja mark og leggur upp annað markið fyrir Markús Pál.

2. Haukur Andri Haraldsson og Gísli Laxdal Unnarsson

Verð að setja Hauk Andra hérna fyrir að hafa skorað þetta frábæra mark sem kom Skagamönnum í 0-1. Gísli Laxdal var svo mjög áberandi í sókninni hjá Skagamönnum. Kom með hættulegar fyrirgjafir frá hægri vængnum og leggur upp þriðja markið fyrir Viktor.

Atvikið

Þriðja mark Skagamanna sem gerði út um leikinn nánast. Eyjamenn minnkuðu muninn stuttu áður og voru að reyna að sækja jöfnunarmarkið. Varnarlína ÍBV var svo ofarlega að Viktor Jónsson var kominn einn í gegn frá miðlínunni nánast eftir sendingu frá gísla Laxdal og kláraði fram hjá Ara Petersen í markinu.

Hvað þýða úrslitin?

Eyjamenn eru áfram í 9. sæti með 17 stig og hafa einungis fengið 2 stig í síðustu sex leikjum. Skagamenn eru komnir upp í 5. sæti með 25 stig og eru komnir í baráttu í efri hlutanum.

Vondur dagur

Hermann Þór Ragnarsson kemur inn á 60. mínútu leiksins og þarf að fara aftur út af á 90. mínútu vegna meiðsla. Búinn að vera mikið meiddur í sumar. Verð líka að nefna Róbert Elís Hlynsson sem fékk frábært færi til að minnka muninn í 2-3 fyrir Eyjamenn, á 82. mínútu leiksins, en skotið hans beint á Árna Marinó. Eftir það fjaraði leikurinn svolítið út.

Dómarinn - 6

Arnar Ingi var ágætur í dag. Fannst sumar ákvarðanir hjá honum skrýtnar. Er alveg talsmaður þess að láta leikinn fljóta en mér fannst mikið um bakhrindingar og önnur brot en hann dæmir ekki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.