Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Sól og logn!
ÍBV
ÍBV
1 - 3
ÍA
ÍA
0 - 139' Haukur Andri Haraldsson0 - 248' Markús Páll EllertssonOmar Sowe 67'1 - 21 - 372' Viktor Jónsson
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
Skagamenn með sanngjarnan 1-3 sigur á Hásteinsvelli.

100. mín
Bjarki með hornspyrnuna og Sigurð Arnar en skallinn frá honum er fram hjá markinu.
99. mín
Viggó með skotið fyrir utan teig sem Árni Marinó rétt nær að blaka yfir markið og ÍBV fær hornspyrnu.
99. mín
Bjarki Björn fékk boltann hægra megin og leggur boltann fyrir Tomic í skotið sem fer fram hjá markinu.
98. mín
Ísak Máni við það að sleppa í gegn eftir sendingu frá Viktori en Tomic með frábæra vörn.
96. mín
Omar Sowe með fína takta inn á teignum, kemur sér fram hjá tveimur og í skotfæri en skotið er í varnarmann og í burtu.

Boltinn barst svo á Viggó fyrir utan teig en skotið frá honum hátt yfir markið.
ÍBV
93. mín
Gult spjald

Bjarki Björn Gunnarsson

91. mín
Uppbótartíminn er +9.
ÍBV
91. mín
InnAron Lucas Vokes
ÚtHermann Þór Ragnarsson
ÍBV
91. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
ÍA
90. mín
InnGuðmar Gauti Sævarsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
90. mín
Felix með aukaspyrnuna inn á teiginn. Milan tomic skallar boltann fram hjá.
89. mín
ÍBV fær aukaspyrnu, Hermann Þór liggur eftir.
ÍA
88. mín
Gult spjald

Gísli Eyjólfsson

87. mín
Viktor Jóns í þröngu færi inn á teignum og reynir að vippa yfir Ara en það tekst ekki og Ari grípur boltann.
85. mín
Gísli Laxdal með hættulega fyrirgjöf frá hægri inn á teig ÍBV og Viktor er nálægt því að ná skallanum en Sigurður Arnar nær að koma boltanum frá.
82. mín
RÓBERT ELÍS!!
Róbert í algjöru dauðafæri inn á markteig. Hann tekur skotið í fyrsta, skotið er fast en beint á Árna Marinó. Skagamenn vinna svo boltann.
82. mín
Færi hjá ÍBV!
Kom fyrirgjöf inn á teig Skagamanna og boltinn datt fyrir Tomic á vítapunktinum og tekur skotið sem fer af varnarmanni og rétt fram hjá!
79. mín
Bjarki Björn kom með fyrirgjöf frá hægri sem Skagamenn hreinsa frá.
ÍA
76. mín
Gult spjald

Ísak Máni Guðjónsson

ÍA
74. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtMarkús Páll Ellertsson
ÍA
72. mín
Viktor kemur Skagamönnum í 1-3!

Viktor Jónsson (stoðsending: Gísli Laxdal Unnarsson)

ÍBV var í sókn og boltinn barst á Gísla Laxdal rétt fyrir utan teig ÍBV. Hann setur boltann í fyrsta í gegn á Viktor Jóns sem er kominn einn á móti Ara og klárar í nærhornið!
ÍBV
67. mín
Eyjamenn minnka muninn!!

Omar Sowe (stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson)

Alex Freyr fékk boltann, nálægt teignum, eftir gott samspil Eyjamanna og stakk boltann inn á Omar Sowe sem kláraði af öryggi!

Spennandi lokamínútur framundan!

67. mín
Bjarki Björn með fyrirgjöf á fjær og Viggó ætlar að taka bakfallsspyrnu en hittir ekki boltann. Skagamenn hreinsa.
ÍA
65. mín
InnÍsak Máni Guðjónsson
ÚtHaukur Andri Haraldsson
64. mín
Leikurinn er stopp á meðan Haukur Andri liggur eftir.
ÍBV
60. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtSesar Örn Harðarson
Þreföld breyting hjá Eyjamönnum.
ÍBV
60. mín
InnHermann Þór Ragnarsson
ÚtEiður Atli Rúnarsson
Þreföld breyting hjá Eyjamönnum.
ÍBV
60. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtVitor Hugo Cruz Rocha
Þreföld breyting hjá Eyjamönnum.
59. mín
Fínt spil hjá Vicente á Omar nálægt teignum. Vicente kemur boltanum svo á Bjarka Björn sem kemur sér í skotið er skotið er af varnarmanni og aftur fyrir.

Eftir hornspyrnu datt boltinn fyrir Sesar fyrir utan teig og skot hans fór einnig af varnarmanni og aftur fyrir.
54. mín
Eiður Atli með fyrirgjöf frá hægri vængnum en Skagamenn skalla boltann í burtu.
50. mín
SKAGAMENN Í DAUÐAFÆRI!!
Markús Páll fékk boltann á fjær og lét vaða en Ari með frábæra vörslu og Skagamenn fá horn.
49. mín
Sesar í færi!
Stuttu eftir markið fengu Eyjamenn fínasta færi þegar Omar Sowe átti skot fyrir utan teig og Árni Marinó náði ekki að halda boltanum. Sesar var fyrstur á boltann en hreinlega hittir hann ekki.
ÍA
48. mín
0-2!!!

Markús Páll Ellertsson (stoðsending: Viktor Jónsson)

Skagamenn unnu boltann ofarlega á vellinum. Viktor Jóns kom kom boltanum svo á Markús Pál sem tók eina snertingu og tók skotið langt fyrir utan teig og það small í fjærhorninu!

Ari virtist þó vera í boltanum og hefði kannski átt að gera betur í markinu.
47. mín
Uppspilið hjá Eyjamönnum gengur heldur brösulega. Búnir að senda tvisvar sinnum beint út af.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
ÍA leiðir í hálfleik!
Frekar bragðdaufur fyrri hálfleikur að mínu mati.

Skagamenn leiða sanngjarnt með frábæru marki frá Hauki Andra.

Vonandi verður seinni hálfleikur skemmtilegri!
45. mín
Sesar fékk boltann vinstra megin og reynir að komast fram hjá Erik Tobias inn á teignum en boltinn fer aftur fyrir.
45. mín
+1 í uppbótartíma.
44. mín
Markús Páll kemur boltanum á Gísla Laxdal hægra megin og hann kemur með boltann fyrir en Tomic setur boltann aftur fyrir.
43. mín
ÍBV fékk tvær hornspyrnur í röð en það var engin hætta og Skagamenn vinna boltann.
ÍA
39. mín
ÍA LEIÐIR!! Haukur Andri með frábært mark!

Haukur Andri Haraldsson (stoðsending: Jón Gísli Eyland Gíslason)

Haukur Andri með algjörlega frábært mark. Fékk boltann frá Jóni Gísla rétt fyrir utan teig. Hann fer svo held ég fram hjá fjórum leikmönnum ÍBV inn á teignum áður en hann þrumar boltanum í nærhornið.

Skagamenn leiða 0-1!
38. mín
Gísli laxdal með enn eina fyrirgjöfina frá hægri en Milan Tomic er fyrstur á boltann og kemur honum frá.
35. mín
Eyjamenn fóru upp í sókn, unnu boltann við vítateiginn en virtist eins og það hafi verið brotið á Gísla Eyjólfs.

Bjarki kom svo boltanum á Omar en Skagamenn fljótir til baka og þeir náðu ekki að gera sér mat úr þessu.
33. mín
Bjarki með lúmska sendingu í gegn ætlaða Sesar en Árni Marinó kemur langt út úr markinu og skallar boltann í burtu.
32. mín
Vicente aftur með hættulega spyrnu inn á teiginn á hausinn á Pisco en hann skallinn hans fer fram hjá.
31. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á svipuðum stað og áðan nema núna hinum megin á vellinum, aftur Bjarki Björn tekinn niður.
28. mín
Skagamenn komast upp hægri vænginn og Gílsi Laxdal kemur með fyrirgjöf inn á teig á Steinar sem tekur skotið í fyrsta en það fer hátt yfir markið.
25. mín
Vicente tók spyrnuna inn á teiginn og á Sesar en skallinn frá honum beint á Árna.
25. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað, svolítið fyrir utan teig. Bjarki Björn tekinn niður.
23. mín
Skagamenn fóru strax upp í sókn þar sem Gísli Laxdal kom með fyrirgjöf á fjær á Viktor Jóns sem þurfti aðeins að teigja sig í boltann og náði ekki nógu góðum skalla sem fór fram hjá.
22. mín
Bjarki Björn með fínan bolta inn á teig æltaðan Omar Sowe en sendingin aðeins og löng og Árni Marinó er fyrstur á boltann.
19. mín
Mjög lítið að frétta akkurat núna. Hvorugt liðið að skapa sér eitthvað að ráði!
17. mín
Kom langur bolti fram á Vicente sem flikkar boltanum á Omar í hlaupinu en flaggið fer svo á loft.
14. mín
ÍA fær aukaspyrnu út við hornfána. Náðu ekki að gera sér mat úr henni.
14. mín
Eyjamenn liggja frekar lágt og Skagamenn reyna að finna einhverjar glufur.
10. mín
Skagamenn gerðu breytingu fyrir leik Jón Gísli Eyland kom inn fyrir Styrmi Jóhann Ellertsson, í hægri bakvörðinn.
9. mín
Eyjamenn bjarga á línu!
Gísli Laxdal komst upp hægra megin og eftir darraðadans dettur boltinn fyrir Viktor á markteignum sem nær skotinu en Sigurður Arnar bjargar fyrir Eyjamenn á línu!
7. mín
Sesar með fínan sprett upp vinstra megin og leitar svo inn völlinn og kemur sér í skotið sem fer af varnarmanni og ÍBV fær horn.
4. mín
Eyjamenn í fínni sókn. Bjarki kemur boltanum á Omar inn á teignum og hann ætlar að tía boltann aftur fyrir Bjarka en Skagamenn koma boltanum frá.
2. mín
Gísli Laxdal með misheppnaða fyrirgjöf frá hægri vængnum sem fer beint aftur fyrir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hérna í blíðunni á Hásteinsvelli!

Gestirnir sparka þessu í gang!
Fyrir leik
Fyrir leik
Gummi Tóta meiddur - Gísli kemur inn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjá ÍA er ein breyting frá 2-0 sigrinum gegn Þór í síðustu umferð. Guðmundur Þórarinsson er meiddur aftan í læri og Gísli Eyjólfsson snýr aftur úr leikbanni.

Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV gerði 2-2 jafntefli gegn Víkingi í síðustu umferð. Bjarki Björn Gunnarsson og Felix Örn Friðriksson snúa aftur úr leikbanni og koma inn í byrjunarlið Eyjamanna. Þá kemur Pisco inn í byrjunarliðið en Róbert Elís Hlynsson sest á bekkinn.
Fyrir leik
Liðin gerðu 2-2 jafntefli á Akranesi fyrr á tímabilinu
Fyrir leik
Tveir Eyjamenn í banni
Tveir Eyjamenn fengu sitt fjórða gula spjald í síðustu umferð og verða því í leikbanni gegn ÍA í dag. Það eru þeir Mattias Edeland og Arnór Ingi Kristinsson.
Fyrir leik
Staðan
ÍA er í sjöunda sæti með 22 stig en ÍBV er í níunda sæti með 17 stig, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Fyrir leik
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Kristján Már Ólafs og Kristófer Bergmann.
Fyrir leik
Velkomin á Hásteinsvöll
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Þorkelsson

sunnudagur 16. ágúst

Besta karla
18:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)

mánudagur 17. ágúst

Besta karla
18:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.