Leik lokið!
+5
Stefán flautar til leiksloka! Jafn leikur þangað til fyrsta markið kom. Þá gengu Stjarnan á lagið og stálu stigunum þremur. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+4
Hornspyrnan kemur inn á teiginn en Bridgette grípur boltann.
90. mín
+3
Katelyn með skot langt yfir markið.
90. mín
+1
303 áhorfendur
90. mín
Stoppar skyndisókn
Þóra María Hjaltadóttir
90. mín
fimm í uppbót
90. mín
InnSandra Hauksdóttir
ÚtHulda Hrund Arnarsdóttir
90. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtSydney Anne Parker
90. mín
Breiðablik fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn og Katelyn skallar framhjá.
88. mín
Blikar fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
86. mín
Góð tilraun!
Líf finnur Bryndísi inni á teignum, hún nær að snúa en skotið er framhjá.
85. mín
InnHildur Þóra Hákonardóttir
ÚtÞórdís Elva Ágústsdóttir
85. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtElísa Viðarsdóttir
85. mín
Bridgette liggur eftir
Hún fékk boltann fast í magann og fær aðhlynningu.
82. mín
ANNAR VARAMAÐUR AÐ SKORA!
Snædís María Jörundsdóttir
Hulda Hrund er með boltann úti hægra megin, hún kemur með frábæra fyrirgjöf sem Fanney nær að komast rétt svo í. Boltinn berst þá til Snædísar sem setur boltann á milli fóta Taylor í markinu.81. mín
Blikar fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn og Líf nær fínum skalla sem Bridgette handsamar í markinu.
80. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
79. mín
Stjarnan leiða!
VARAMENNIRNIR BREYTA LEIKNUM!
Vigdís Edda Friðriksdóttir (stoðsending: Andrea Mist Pálsdóttir)
Hornspyrnan er góð, Taylor hleypur af línunni en nær ekki til boltans. Vigdís Edda er ein og óvölduð og stangar boltann í autt markið.Stjarnan leiða!
78. mín
Stjarnan fá horn
76. mín
InnAndrea Mist Pálsdóttir
ÚtMargrét Lea Gísladóttir
75. mín
Blikar fá aukaspyrnu á hættulegum stað
Agla María spyrnir boltanum inn á teiginn en það er skallað frá.
74. mín
Besta færi leiksins!
Líf fær boltann eftir innkast, hún kemur honum inn fyrir á Hrafnhildi Ásu en skotið hennar er langt yfir markið. Þarna átti hún að gera miklu betur.
73. mín
Bridgette liggur eftir. Hún ætlar að halda leik áfram.
72. mín
Blikar fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en Bridgette kýlir frá.
70. mín
Skot
Fanney Lísa reynir skot en það er laust og siglir framhjá markinu.
70. mín
Taylor ver meistaralega!
Vigdís Edda keyrir að marki Blika, hún lætur vaða rétt fyrir utan teig en Taylor ver frábærlega.
67. mín
Rétt framhjá!
Snædís María kemur með góða fyrirgjöf sem ratar beint á Huldu Hrund en hún stangar boltann rétt framhjá.
66. mín
InnLíf Joostdóttir van Bemmel
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
62. mín
Taylor ver!
Fanney Lísa kemst í fínt en þröngt færi, Taylor kemur út á móti og ver með fætinum.
60. mín
Blikar að banka fast um þessar mundir
Blikar líklegri til að skora fyrsta mark leiksins þessa stundina.
60. mín
InnVigdís Edda Friðriksdóttir
ÚtIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
56. mín
Skot og horn!
Elísa kemur með góða fyrirgjöf á Hrafnhildi Ásu en hún skýtur í varnarmann og framhjá. Ekkert kom úr fyrra horninu en þær fá annað. Bridgette handsamar seinna hornið.
54. mín
Breiðablik að fá sitt þriðja horn á stuttu millibili
Boltinn kemur inn á teiginn en Sydney skallar frá.
53. mín
Hrafnhildur Ása vinnur horn fyrir Blika
Þær taka þetta stutt, svo kemur fyrirgjöf sem er skölluð frá.
51. mín
Blikar fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá. Boltinn rataði á Hrafnhildi Ásu sem skaut framhjá.
49. mín
Blikar fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað
Agla María spyrnir boltanum fyrir en sendingin nær ekki framhjá fyrstu konu.
46. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtMurielle Tiernan
Óskar Smári gerði eina breytingu í hálfleik
46. mín
Gestirnir hefja leik á ný
Hrafnhildur Ása sparkar þessu í gang.
45. mín
Hálfleikur
Stefán flautar til hálfleiks
Þetta hefur verið virkilega jafn leikur hingað til, bæði lið að skapa svipað mikið af færum. Hornspyrnurnar eru að rigna inn og það kæmi ekki á óvart ef það kæmi mark úr horni í seinni hálfleik.
45. mín
Frír Skalli
Agla María kemur með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn sem ratar beint á pönnuna á Úlf Dís en hún skallar yfir.
42. mín
Úlfa Dís vinnur horn fyrir Breiðablik
Boltinn kemur inn á teiginn en Bridgette handsamar boltann.
40. mín
Blikar fá aukaspyrnu á ágætis stað
Agla tekur spyrnuna inn á teiginn og Úlfa Dís nær skoti á lofti sem fer langt framhjá. Heiðarleg tilraun engu að síður!
38. mín
Hornspyrnurnar rigna inn í Miðgarði
Agla tekur spyrnuna og Karitas nær frábærum skalla sem Bridgette ver í horn. Seinni spyrnan kemur inn á teiginn en í þetta sinn er skallað frá.
35. mín
Horn fyrir Blika
Þær taka þetta stutt en Stjarnan verjast vel.
32. mín
Frábær varsla!
Murielle fær boltann inni á teignum, hún nær að snúa og tekur gott skot en Taylor gerði sig stóra og varði vel.
30. mín
Fyrirgjöf og horn fyrir Blika
Boltinn kemur inn á teiginn en Bridgette grípur boltann og róar leikinn.
28. mín
Fyrirgjöf
Edith reynir fyrirgjöf en Bridgette handsamar þennan bolta þægilega.
25. mín
Hulda vinnur horn fyrir Stjörnuna
Boltinn kemur inn á teiginn en brot dæmt á sóknarmann Stjörnunnar.
24. mín
Breiðablik fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá í innkast sem Blikar eiga.
23. mín
Góð fyrirgjöf
Birna kemur með flotta fyrirgjöf inn á teiginn en þarna vantar bláar treyjur.
21. mín
Rangstaða
Hrafnhildur Ása að komast í góða stöðu en rangstaða dæmd.
19. mín
Blikar vilja víti!
Bridgette keyrir út úr markinu og fer í Hrafnhildi Ásu en ekkert dæmt. Stór ákvörðun hjá Stefáni dómara. Blikar fá horn sem er síðan skallað frá.
18. mín
Skot!
Fanney Lísa nær að koma sér á hægri fótinn og tekur hættulegt skot sem fer rétt framhjá fjærhorninu.
Bæði lið að ógna fyrsta markinu!
Bæði lið að ógna fyrsta markinu!
16. mín
Hættuleg fyrirgjöf og skalli!
Edith kemst upp að endamörkum, hún kemur með góðan bolta fyrir sem Hrafnhildur Ása stangar framhjá.
15. mín
Góð tilraun!
Úlfa Dís fer inn á völlinn og tekur fínt skot sem fer rétt framhjá fjærhorninu.
13. mín
Kraftur í heimakonum
Stjarnan hafi byrjað þennan leik að miklum krafti.
7. mín
Stjarnan fá horn
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað aftur fyrir og önnur hornspyrna niðurstaðan. Boltinn kemur inn á teiginn en Elín skallar frá.
3. mín
Stjarnan fá sitt annað horn
Boltinn kemur inn á teiginn og þær ná skalla sem fer yfir.
1. mín
Stjarnan fá fyrsta horn kvöldsins
Boltinn kemur inn á teiginn en það er hreinsað frá.
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur byrja leik í Miðgarði!
Murielle sparkar þessu í gang.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi!
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, gerir tvær breytingar á liði sínu eftir tap gegn Eyjakonum. Andrea Mist Pálsdóttir og Erika Ýr Björnsdóttir koma út úr liðinu og inn koma Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir og Margrét Lea Gísladóttir.
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á liði sínu eftir sigurinn gegn FH. Inn kemur Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir og út kemur Líf Joostdóttir van Bemmel.
Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á liði sínu eftir sigurinn gegn FH. Inn kemur Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir og út kemur Líf Joostdóttir van Bemmel.
Fyrir leik
Dómarateymið
Stefán Ragnar Guðlaugsson er aðaldómari í kvöld. Honum til aðstoðar eru Patryk Emanuel Jurczak og Daníel Örn Arnarson.
Fjórði dómari er Atli Haukur Arnarsson og eftirlitsmaður er Ásgrímur Helgi Einarsson.

Fjórði dómari er Atli Haukur Arnarsson og eftirlitsmaður er Ásgrímur Helgi Einarsson.

Fyrir leik
Valgerður Ósk spáir Breiðablik sigri í Miðgarði
Valgerður Ósk, leikmaður Hauka, fékk það verkefni að spá fyrir Bestu deild kvenna.
Stjarnan 1 - 2 Breiðablik
Breiðablik með bullandi sjálfstraust eftir sigurinn á FH um helgina og kemst í 2-0 í fyrri hálfleik. Þórdís Elva skorar með þrumufleyg og Líf setur hitt. Vigdís Edda nýkomin á láni frá FH til Stjörnunar minnkar muninn með alvöru skallamarki úr föstu leikatriði í seinni hálfleik. Spennandi lokamínútur og mikill hiti eftir gluggalokin, jafnvel rautt spjald á loft, en leikur endar 1-2 fyrir Breiðablik.
Stjarnan 1 - 2 Breiðablik
Breiðablik með bullandi sjálfstraust eftir sigurinn á FH um helgina og kemst í 2-0 í fyrri hálfleik. Þórdís Elva skorar með þrumufleyg og Líf setur hitt. Vigdís Edda nýkomin á láni frá FH til Stjörnunar minnkar muninn með alvöru skallamarki úr föstu leikatriði í seinni hálfleik. Spennandi lokamínútur og mikill hiti eftir gluggalokin, jafnvel rautt spjald á loft, en leikur endar 1-2 fyrir Breiðablik.
Fyrir leik
Breiðablik unnu toppslaginn!
Breiðablik unnu sannfærandi 3-0 sigur. Edith Kristín Kristjánsdóttir kom Breiðabliki yfir, Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir bætti við öðru marki og Agla María Albertsdóttir innsiglaði sigurinn.


Fyrir leik
Fyrri viðureign
Fyrri viðureign liðanna á tímabilinu fór fram á Kópavogsvelli í júní þar sem Stjarnan vann óvæntan 3-1 sigur. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir eitt, en Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði eina mark Breiðabliks.


Fyrir leik
Gestirnir í Breiðablik
Breiðablik hefur átt gott tímabil og er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Liðið er á toppi Bestu deildarinnar með 36 stig eftir 15 leiki, þremur stigum á undan FH. Blikar hafa unnið 12 leiki og tapað þremur, skorað 44 mörk en aðeins fengið á sig 16. Meðal eftirminnilegustu úrslitanna eru 7-1 sigur gegn Val, 4-1 sigur á Víkingi og sannfærandi 3-0 sigur á FH í toppslag. Liðið féll þó snemma úr Mjólkurbikarnum eftir 3-2 tap gegn Þrótti og komst ekki áfram úr forkeppni Meistaradeildarinnar. Í heildina hefur deildartímabilið verið sterkt og Breiðablik er í góðri stöðu fyrir lokasprettinn.


Fyrir leik
Heimakonur í Stjörnunni
Stjarnan hefur átt fínt tímabil í Bestu deild kvenna og verið í baráttunni í efri hluta deildarinnar í sumar. Garðbæingar hafa sýnt á köflum hversu öflugt liðið getur verið og náð í góð úrslit gegn sterkum liðum, en inn á milli hafa stig fallið niður sem liðið hefði viljað taka með sér. Stjarnan er þó enn í góðri stöðu þegar líður að lokakafla deildarinnar og stefnir á að enda tímabilið af krafti.


Fyrir leik
Af hverju er spilað í Miðgarði?
Það eru framkvæmdir á Samsungvellinum, heimavelli Stjörnunnar, það er verið að skipta um gervigras og því þarf að spila í Miðgarði.
Fyrir leik
Miðgarður heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá Miðgarði. Í kvöld eigast Stjarnan og Breiðablik við í 17. umferð Bestu deildar kvenna.







