Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sambandsdeildin - Umspil
Víkingsvöllur
Frábærar, sólskin.
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 3
FK Borac
FK Borac
0 - 121' Luka Juricic0 - 223' Milos JojicGylfi Þór Sigurðsson (víti) 75'1 - 21 - 386' Luka Juricic
Dómari: Enea Jorgji (Albanía)
Leik lokið!
Borac fer með tveggja marka forystu inn í seinni leikinn
Víkingar náðu að minnka muninn í seinni hálfleik en Borac náði inn síðasta markinu og fer með góða forystu heim.
93. mín
Gylfi með skot fyrir utan teig sem fer hátt yfir mark gestanna.
Víkingur R.
92. mín
Gult spjald

Valdimar Þór Ingimundarson

Tekur leikmann Borac niður á sprettinum.
FK Borac
91. mín
InnSinisa Sanicanin
ÚtLuka Juricic
Juricic verið erfiður viðureignar, góður og duglgur framherji.
91. mín
Þremur mínútum bætt við
88. mín
Hvernig fór þetta ekki inn??
Gylfi með skot sem fer einhvern veginn ekki inn, laus bolti sem hrekkur aftur fyrir.

Brot svo dæmt á Víkinga eftir hornspyrnuna.
FK Borac
86. mín
Úfff

Luka Juricic (stoðsending: Pavle Dajic)

Skot frá Pavle Dajic eftir hornspyrnu, skotið í magann á Juricic, breytir um stefnu og fer í mark Víkinga. Óverjandi fyrir Aron.

Gestirnir leiða með tveimur mörkum, hafa ekkert ógnað í seinni hálfleik.
85. mín
Aron Snær!
Alvöru varsla frá Aroni Snæ!

Gott skot frá varamanninum Ante Roguljic, skotið út í bláhornið en Aron eins og köttur í markinu.
84. mín
Luka Juricic fær í fyrsta sinn ódýra aukaspyrnu í kvöld. Þetta var lítið, Ekroth fór aðeins í hann.
FK Borac
83. mín
InnMatej Deket
ÚtAmer Hiros
FK Borac
83. mín
Inn Pavle Dajic
Út Stefan Savic
Víkingur R.
82. mín
InnRóbert Orri Þorkelsson
ÚtGunnar Vatnhamar
Lýkur leik í síðasta leik sínum á Víkingsvelli
Gunnar er á leið til Vejle í Danmörku. Hann á eftir að spila nokkra útileiki með Víkingi, allavega tvo, áður en hann heldur til Danmerkur. Gunnar var aðeins haltur reyndar.
82. mín
Ármann Ingi með álitlega fyrirgjöf sem Hrannar er nálægt því að komast í en Mladen Jurkas er á undan í boltann.
80. mín
Boltinn frá Gylfa inn á teiginn, skallað út fyrir teig og Viktor Örlygur lætur vaða. Boltinn af varnarmanni og aftur fyrir. Hornspyrna.

Ekkert kom upp úr henni.
FK Borac
79. mín
Gult spjald

Amer Hiros

Víkingur á aukaspyrnu úti á hægri kantinum.

Róbert Orri að fara koma inn á.
78. mín
Víkingar leita nú að jöfnunarmarkinu, svei mér þá ef stúkan nær ekki að hjálpa boltanum yfir línuna einu sinni enn. Alvöru kraftur í stúkunni núna og ákefð í Víkingum.
Víkingur R.
75. mín
Skorar af miklu öryggi

Gylfi Þór Sigurðsson

Mladen Jurkas fer of snemma af stað í markinu og Gylfi rennir boltanum í hitt hornið.

Gríðarlega mikilvægt mark fyrir Víkinga!

Gestirnir mjög lengi að taka miðjuna. Nú þarf dómarinn að vera enn strangari með leiktafir!
FK Borac
74. mín
InnAnte Roguljic
Út Damir Hrelja
FK Borac
73. mín
Gult spjald

Esiti Anderson

Brotlegur inn á teignum.

Gylfi er að fara á punktinn og Mladen Jurkas reynir að komast inn í hausinn á honum.
72. mín
Víti!
Víkingur fær víti!

Aron Elís Þrándarson tekinn niður í teignum eftir hornspyrnu.

Dómari leiksins bendir á vítapunktinn.
71. mín
Gestirnir vilja víti
Oliver Ekroth í návígi en er ekki brotlegur að mati dómarans.

Víkingur á núna hornspyrnu hinu megin.
69. mín
Mér fannst Karl Friðleifur klaufalegur þarna, fannst hann toga andstæðinginn niður, og hélt að mögulega myndi Jorgji flauta vítaspyrnu, en það var greinilega ekkert að þessu.
68. mín
Gunnar fékk aðhlynningu áðan en er kominn inn á aftur.
Víkingur R.
67. mín
InnHrannar Snær Magnússon
ÚtStígur Diljan Þórðarson
Aron og Valdimar spila sem fremstu tveir, Aron fyrir framan. Hrannar kemur inn á vinstri kantinn.

Fyrsti Evrópuleikur á ferli Hrannars.
Víkingur R.
67. mín
InnValdimar Þór Ingimundarson
ÚtNikolaj Andreas Hansen
66. mín
Víkingur heldur pressunni áfram. Gylfi tekur núna hornspyrnu.

Barátta inn á teignum og önnur hornspyrna.

Helgi Guðjóns með hornspyrnuna, finnur Gunnar Vatnhamar á fjærsvæðinu og hann á skalla sem fer framhjá.
63. mín
Ojjj
Viktor Örlygur og Nikolaj með smekklegt þríhyrningsspil og Viktor lætur vaða úr D-boganum. Skotið fer í Helga og Mladen í marki Borac er heppinn að boltinn breyti ekki meira um stefnu.

Víkingur á svo aukaspyrnu við vítateig Borac. Skiptingarnar bíða aðeins.
63. mín
Tvöföld breyting á leiðinni hjá Víkingi. Valdimar og Hrannar að koma inn. Tveir snöggir leikmenn.
60. mín
Víkingar dæmdir brotlegir inni á vítateig Borac eftir hornspyrnu, boltinn endar i netinu en búið að flauta.
58. mín
Víkingar klaufar aftast.

Fyrst er það Aron Snær með hræðilega sendingu fram völlinn og fylgir Gunnar Vatnhamar á efir rúmri mínútu seinna. Hvorug sendingin bítur þá í rassinn.
55. mín
Damir Hrelja og Esiti Anderson með tilraunir sem fara í Víkinga, ekki mikil hætta. Fyrsta sókn gestanna í seinni.
54. mín
Gott færi og kallað eftir vítaspyrnu
Helgi teiknar boltann á höfuðið á Niko Hansen sem er í mjög góðri stöðu inn á teignum, en skallinn talsvert framhjá.

Karl Friðleifur féll við á öðrum stað inni á teig Borac og Víkingar í stúkunni vilja víti.
53. mín
Stígur Diljan með fasta fyrirgjöf sem tæklið er aftur fyrir, hornspyrna.
52. mín
Gylfi vinnur boltann hátt á vellinum, kemst inn á teiginn og reynir að finna mann inn á teignum. Gylfi lyftir boltanum og Stígur nær ekki almennilegri stjórn á boltanum og þessi séns rennur út í sandinn.
51. mín
Ármann Ingi vinnur horn.

Aukaspyrna dæmd á Víking eftir hornspyrnu Gylfa. Leikmaður Borac féll við og eftir að boltinn fór inn í þvöguna var dæmt brot á Víking, mögulega hendi á Karl Friðleif.
49. mín
Varsla!
Flott fyrirgjöf frá Karli Friðliefi sem Aron Þrándar kemst í og skallar að marki en Mladen Jurkas ver vel.

Víkingar að byrja seinni hálfleikinn vel finnst mér, meiri ákefð í pressu og spili.

Ármann Ingi á svo tilraun sem fer í varnarmann.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Engin breyting í liðsskipan.
45. mín
Hálfleikur
Myndaveisla í boði Hafliða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Hálfleikur
Víkingar í holu
Þetta hefur ekki verið merkilegt hjá Íslandsmeisturunum. Komist upp að teig gestanna margoft, gerist fullhægt og lítið gerst eftir að þangað er kominn. Það vantar gæði í ákvarðanir og meiri hraða í spilið.

Gestirnir eru mjög vel skipulagðir, vita hvaða menn þeir eiga að elta og eru mjög meðvitaðir um hvaða leiðir á að fara þegar sótt er hratt.
45. mín
ARON SNÆR!!
45+1

Luka Juricic í dauðafæri en nær ekki að setja boltann í netið úr markteignum. Aron Snær sér við honum!

Var þetta samt ekki rangstaða?
42. mín
Gestirnir beinskeyttir, reyna að ná inn þriðja markinu en sendingin frá Juricic út til hægri er ekki góð og Amer Hiros lyftir boltanum svo yfir mark V?inga.
Víkingur R.
40. mín
Gult spjald

Nikolaj Andreas Hansen

Pínu óþarfa spjald fannst mér, brot en leikmaður Borac létt sig falla með tilþrifum.
38. mín
Ármann Ingi með fyrirgjöf á nærsvæðið, boltinn skoppar í teignum en Víkingar ná ekki til hans.
37. mín
Luka Juricic með bjartsýnistilraun á lofti eftir langa sendingu fram. Skotið himinhátt yfir mark Víkings. Góður bolti fram frá Sebastián Herera hins vegar.
34. mín
Bart Meijers þrumar boltanum í höfuðið á Helga sem þarf nokkrar sekúndur til að hrista þetta af sér.
33. mín
Aron Þrándar vinnur hornspyrnu.

Aron nær svo skalla að marki eftir hornspyrnuna en hann er dæmdur rangstæður.
31. mín
Víkingar falla við í þann mund sem Gylfi tekur hornspyrnuna. Köll eftir vítaspyrnu, en ekkert dæmt.
30. mín
Mladen ver frá Gylfa
Gylfi reynir skotið, boltinn yfir vegginn og niður í hornið en Mladen Jurkas er með þetta allt á hreinu, slær boltann í horn.
29. mín
Niko vinnur aukaspyrnu alveg svolítið fyrir utan vítateig Borac. Ef þetta er skotfæri, þá er þetta allavega langt færi. Gylfi og Helgi standa yfir boltanum.
27. mín
Gylfi með fyrirgjöfina og Niko rís hæst. Skallinn fer hins vegar yfir mark gestanna, aldrei hætta.
26. mín
Ármann Ingi vinnur aukaspyrnu fyrir Víking hægra megin við vítateig gestanna. Góð fyrirgjafarstaða.
FK Borac
23. mín
Hvað er að gerast hérna???

Milos Jojic (stoðsending: Luka Juricic)

Juricic með sendingu inn fyrir á Jojic, Aron Snær mætir út á móti og Jojic lyftir boltanum yfir markvörð Vikinga og í netið.

Tvisvar sinnum eru gestirnir fljótir að finna glufu og nýta sér þær.

0-2, tvö mörk með stuttu millibili.
FK Borac
21. mín
Drauma skyndisókn

Luka Juricic (stoðsending: Sebastián Herera)

Langur bolti upp vinstri kantinn eftir að gestirnir unnu boltann, boltinn yfir Ármann Inga, og Herera rennir boltanum fyrir í fyrsta og Juricic klárar virkilega vel í fyrstu snertingu.

Virkilega vel útfærð skyndisókn.
19. mín
Mjög léleg sending frá Gylfa sýnist mér sem Damir Hrelja kemst inn í og reynir skot fyrir utan teig. Hann finnur ekki markið, ekki merkilegt skot.
16. mín
Stefan Savic sparkar boltanum í burtu eftir að búið er að flauta. Víkingar vilja fá gult á hann en Savic sleppur.

Ég er annars búinn að vera hrifinn af albanska dómaranum til þessa. Vill ekki að það sé verið að hangsa við innköst og markspyrnur.
15. mín
Skalli framhjá
Eftir langa sókn á Karl Friðleifur fyrirgjöf inn á teig gestanna og Aron Þrándar á skalla sem fer framhjá. Góð sókn og fínt færi.
15. mín
Víkingar búnir að ná stjórn, eru að ná að þrýsta gestunum niður. Núna vantar bara að finna glufur.
12. mín
Hætta inn á teig gestanna
Stígur kemur með fyrirgjöf sem Mladen Jurkas er í veseni með, Aron Þrándar með smá snertingu, og boltinn er svo laus í teignum. Gestirnir ná að hreinsa og Ármann Ingi á svo fyrirgjöf sem fer yfir allan pakkann.
10. mín
Víkingar tvívegis komist að vítateig gestanna í sóknum sínum en ekki náð að gera neitt meira en það til þessa.
8. mín
Víkingur missir boltann
Helgi of lengi að taka innkast, enginn sem var að bjóða sig, Helgi svekktur með liðsfélagana.
3. mín
Fyrirgjöf frá vinstri sem Karl Friðleifur tekur á kassann og Aron Snær handsamar svo boltann. Gestirnir byrja betur.
2. mín
Fyrsta tilraun leiksins er gestanna, lélegt skot úr teignum sem fer í Helga og Oliver Ekroth hreinsar svo.
1. mín
Gestirnir fá fyrstu hornspyrnu leiksins.

Boltinn á fjær og Ármann Ingi nær svo að koma boltanum frá vítateig Víkings.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað
Gestirnir byrjar með boltann!
Fyrir leik
Flottar aðstæður
Það er gott eður í Reykjavík í dag, um 13°C, smá gola og bjart yfir. Davið Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari landsliðsins, er allavega með sólgleraugu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þrír markverðir á bekk og þrír nýir á bekk


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Stefánsson (2007) samdi við Víking í sumar eftir að hafa verið hjá AGF síðustu ár. Hann er uppalinn Víkingur, varnarmaður, sem er að snúa til baka eftir krossbandsslit. Þetta er í fyrsta sinn sem hann er í hóp í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Aron Guðjohnsen (1998) samdi við Víking undir lok gluggans. Hann er að koma sér af stað eftir að hafa síðast spilað á Ítalíu í vor. Framherjinn samdi við Víking út árið og er í fyrsta sinn í hóp í kvöld.

Markvörðurinn Pálmi Rafn Arinbjörnsson (2003) er þá í hóp í fyrsta sinn á þessu tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrir leik
Tvær breytingar á liði Víkings
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir tvær breytingar frá sigrinum á FH í Bestu deildinni.

Karl Friðleifur Gunnarsson og Aron Elís Þrándarson koma inn í liðið og þeir Davíð Örn Atlason og Valdimar Þór Ingimundarson taka sér sæti á bekknum.

Þeir Sölvi Stefánsson, Pálmi Rafn Arinbjörnsson og Sveinn Aron Guðjohnsen eru í fyrsta sinn í hóp hjá Víkingi á tímabilinu og eru á bekknum. Hrannar Snær Magnússon er þá í hóp í fyrsta sinn í Evrópuleik, en hann hefur komið við sögu í tveimur deildarleikjum.

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Leikurinn hefst 18:15
Fyrir leik
Víkingur líklegra liðið
Samkvæmt veðbankanum Epicbet er Víkingur talsvert líklegra liðið til að fara áfram í einvíginu.

Stuðullinn á Víkingssigri í dag er 1,6 og stuðullinn á að Víkingur fari áfram úr einvíginu er 1,5.

4,14 er stuðullinn á jafntefli og 5,44 er stuðullinn á sigri gestanna.
Fyrir leik
Dómarinn frá Albaníu
Albanski dómarinn Enea Jorgji verður með flautuna í leiknum.

Jorgji hefur tvisvar dæmt hjá Breiðabliki í Evrópuleikjum en hann dæmdi 3-1 sigur Kópavogsliðsins gegn Shamrock Rovers í Sambandsdeildinni síðasta vetur.

Albanskt teymi mun sjá um dómgæsluna á vellinum á fimmtudag en VAR dómarinn verður reyndur hollenskur dómari; Jeroen Manschot.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Víkingar unnu fyrir tveimur árum en óþarfi að horfa þangað
Liðin mættust á Kópavogsvelli í Sambandsdeildinni fyrir tveimur árum. Þá vann Víkingur 2-0 sigur. Karl Friðleifur og Niko skoruðu mörkin í fyrri hálfleik.

Sölvi Geir sagði í viðtali í gær að það þýddi eki að horfa í þann leik þar sem miklar breytingar væru á báðum liðum.

,,Það eru töluverðar breytingar hjá þeim. Ég held að við getum ekkert nýtt okkur þann leik. Það eru líka miklar breytingar sem hafa átt sér stað á Víkingsliðinu þannig það er óþarfi að horfa í þann leik. Við erum búnir að skoða og greina þá vel síðustu daga. Við erum mjög spenntir að fá að kljást við þá."

Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið í kvöld
Þeir Elías Már Ómarsson, Tarik Ibrahimagic og Óskar Borgþórsson glíma við langvarandi meiðsli og verða ekki meira með á þessu tímabili.

Daníel Hafsteinsson glímir við ökklameiðsli og Sölvi Geir, þjálfari Víkings, efaðist í gær um að Daníel gæti verið með í einvíginu. Þá var Karl Friðleifur Gunnarsson ekki með Víkingi gegn FH á sunnudag.

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Mikið undir í einvíginu
Með því að komast inn í sjálfa Sambandsdeildina fást 3,17 milljónir evra en liðið sem fellur úr leik á þessu stigi fær 1,45 milljónir evra. Það eru því um 1,7 milljónir evra undir í þessu einvígi.

Hér er miðað við þær upphæðir sem félögin fengu tímabilið 2024-25 í Sambandsdeildinni.

Með því svo að ná í stig og sigra í sjálfri Sambansdeildinni hækkar upphæðin sem félögin fá. Breiðablik fékk fimm stig á síðasta tímabili og Víkingur náði í átta stig tímabilið á undan og komst með því í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum.
Mynd: EPA
Fyrir leik
Velkomin í Víkina
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Víkings og FK Borac Banja Luka en þau eru að mætast í umspilinu um sæti í Sambandsdeildinni.

Um fyrri leik liðanna er að ræða, liðin mætast á Víkingsvelli í dag og mætast í Bosníu og Hersegóvínu eftir viku.

Leikurinn hefst klukkan 18:00. Víkingur er ríkjandi Íslandsmeistari og Borac vann deildina í Bosníu og Hersegóvínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.