Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
JBÓ völlurinn
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
4 - 0
Fram
Fram
Ása Björg Einarsdóttir 26'1 - 0Ása Björg Einarsdóttir 75'2 - 0Santa Sanija Vuskane 86'3 - 0Emersen Jennings 93'4 - 0
Dómari: Hallgrímur Viðar Arnarson
Leik lokið!
4-0 sigur heimakvenna í Grindavík/Njarðvík!
Frábær sigur hjá nýliðunum í kvöld!

Þær héldu bara áfram og áfram og Fram náðu hreinlega ekki að setja mark sitt á leikinn!

Takk fyrir samfylgdina,
Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í kvöld!

Grindavík/Njarðvík
93. mín
MAAAARK!

Emersen Jennings

Þær eru endanlega að klára þetta hérna! Emersen Jennings að opna markareikning sinn hjá félaginu og á Íslandi og það markið!
92. mín
ÚFFF
Emma Fanndal með flotta sendingu upp á Ásu, fær hann svo aftur og á hörkuskot á markið en Ashley ver þetta frábærlega
90. mín
A.m.k. 3 mínútum bætt við
90. mín
Emersen með fínustu fyrirgjöf en þær ná að skalla þetta frá
Grindavík/Njarðvík
89. mín
InnKatrín Lilja Ármannsdóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
Grindavík/Njarðvík
87. mín
Gult spjald

Natasha Moraa Anasi

Fram
87. mín
InnHanna Faith Victoriudóttir
ÚtKatrín S. Vilhjálmsdóttir
Grindavík/Njarðvík
86. mín
MAAAARK!

Santa Sanija Vuskane (stoðsending: Ása Björg Einarsdóttir)

Þær eru að þrefalda þetta og að gera út um leikinn!

Ása Björg með frábæra fyrirgjöf sem Santa getur ekki annað en skorað úr!
85. mín
Brookelyn gerir vel fyrir Fram, kemur svo boltanum inn á teiginn, þar er Taylor mætt en með bakið í markið og hún nær hvorki að snúa með hann eða gefa hann út. Boltinn berst svo út til Unu Rósar sem reynir skot af löngu færi en Stephanie nær því.
81. mín
Katrín brýtur af sér við vítateigshornið, Ellie setur hann bara á markið og hann skellur í stönginni!
Fram
81. mín
Gult spjald

Katrín S. Vilhjálmsdóttir

80. mín
VÁ!
Sophia með hööööörkuskot en Ashley með vörslu úr efstu hillu!
Grindavík/Njarðvík
77. mín
InnSigríður Emma F. Jónsdóttir
ÚtElísa Birta Káradóttir

Grindavík/Njarðvík
75. mín
MAAAARK!

Ása Björg Einarsdóttir (stoðsending: Sophia Faith Romine)

Sophia finnur Ásu Björg, sem tekur boltann með sér, missir hann reyndar en nær honum aftur þegar Brookelyn fellur og svo bara leggur hún boltann í netið!

Annað markið hennar í kvöld og þær tvöfalda forystuna!

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
75. mín
Sophia með fína sendingu upp á Emersen, sem tekur boltann með sér og reynir síðan skotið en Ashley á ekki vandræðum með það.
70. mín
Una með hættulega hornspyrnu, Stephanie missir af boltanum en það er engin sem nær að komast almennilega í hann og sóknin rennur út í sandinn
68. mín
Munaði minnstu!
Una Rós með fyrirgjöf utan af kanti sem lendir rétt ofan á markinu, munaði minnstu að þessi hefði hreinlega farið bara í samskeytin
66. mín
Elísa Birta með frábæra fyrirgjöf sem rennur fyrir markið en það er engin mætt fyrr en Ása kemur á rosalegu hlaupi en þá er færið orðið alltof þröngt og hún setur hann framhjá
63. mín
Alda fær sendingu í gegn, Hannah eltir hana þó uppi og pressar, boltinn berst til Söru sem klappar boltanum og snýr varnarmönnum Gri/Nja í heldur of marga hringi, þar sem skotið var síðan laflaust, þær þurfa að gera betur í svona stöðum
61. mín
Emersen með fína takta upp við endalínu, nær síðan stórhættulegri fyrirgjöf sem Sophia er hársbreidd frá því að ná að pota inn, Ashley hins vegar kemst í boltann á undan
59. mín
Ellie Coffield með horn en ekkert kemur úr því
Grindavík/Njarðvík
58. mín
InnSanta Sanija Vuskane
ÚtJúlía Ruth Thasaphong
Grindavík/Njarðvík
58. mín
InnEmersen Jennings
ÚtBirta Birgisdóttir
55. mín
ÚFFF
Júlía Ruth kemur sér í hörkufæri en Framkonur eru fljótar að koma sér fyrir og Júlía aðeins of lengi að athafna sig og skýtur í varnarmenn Fram
52. mín
Sara Svanhildur tekur aukaspyrnu út á velli, setur hana á markið en ekkert kemur úr þessu
51. mín
Taylor Marie fellur um Natöshu í teignum, áhorfendur Fram kalla víti en þetta var bara fín tækling hjá Natöshu
51. mín
Sara Svanhildur tekur fyrsta hornið fyrir Fram, setur það á mðjan teiginn en Emma Phillips kemur þessu frá
49. mín
Þetta hefur farið hægt af stað
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Alda Sparkar þessu aftur af stað fyrir okkur
46. mín
Anton Ingi gerir tvær breytingar í hálfleik
Fram
46. mín
InnBrookelynn Paige Entz
ÚtKatrín Erla Clausen
Fram
46. mín
InnUna Rós Unnarsdóttir
ÚtFreyja Dís Hreinsdóttir
45. mín
Hálfleikur
Grindavík/Njarðvík leiða hér 1-0 í hálfleik

Heimakonur hafa verið betri aðilinn heilt yfir en Framkonur hafa alveg verið að gefa leik og það má ekki gleyma Taylor Marie í eina sekúndu, hún getur heldur betur refsað.

Við tökum okkur annars smá pásu og mætum svo vonandi í enn betri seinni hálfleik!
45. mín
ÚFFF
Júlía með höööörkuskalla á markið sem Ashley þarf að hafa sig alla við að ná, Sophia var svo alveg tilbúin að pota boltanum inn, hefði hún misst hann
43. mín
Ágætis sókn hjá Fram, Katrín S. með fínan bolta fyrir og svo er Freyja með annan bolta fyrir en þær ná ekki að ógna í teignum
41. mín
Einhver misskilningur hjá Stephanie og Natöshu og þetta er hættulegt! En hún nær að setja boltann útaf og bjarga sér fyrir horn
40. mín
Ellie með hörkuskalla en Ashely sem fyrr nær að grípa þetta
37. mín
Gri/Nja halda áfram að ógna
Natasha með frábæra skiptingu yfir, finnur þar Sophia sem tekur eina bestu snertingu sem ég hef séð í sumar og reynir að leggja hann en Ashley leggst og handsamar boltann
36. mín
Úffffff
Úffffff, Ellie Coffield finnur Ásu Björg sem setur boltann fyrir, þar lúrir Júlía Ruth en skallinn frá henni rétt framhjá! Þarna var tækifæri til að tvöfalda
33. mín
Framkonur frá aukaspyrnu við vítateigshornið hægra megin, Harpa tekur þetta en það fer hátt yfir markið
31. mín
Natasha fellur við og Stephanie alveg úr stöðu svo það leit út fyrir að Taylor Marie kæmist ein í gegn og leggði boltann í autt markið þær voru þó báðar fljótar að átta sig og Taylor klaufi! svo ekkert verður úr þessu!
Grindavík/Njarðvík
26. mín
MAAAARK!

Ása Björg Einarsdóttir (stoðsending: Júlía Ruth Thasaphong)

Natasha tekur innkast á Júlíu sem finnur Ásu til hliðar, Ása gerir þetta síðan frábærlega, tekur boltann með sér og leggur hann svo snyrtilega í fjærhornið!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
24. mín
Harpa!
Ása Björg fær fínast bolta, er komin í góða stöðu en Harpa með frábæran varnarleik kemst fyrir hana
24. mín
Hannah fellur við og brýtur svo af sér. Júlía Margrét tekur spyrnuna en ekkert kemur úr þessu
23. mín
Birta er með aukaspyrnu utan af vinstri kantinum, Þrumar honum fyrir en Taylor Marie er sterk og skallar þetta frá
22. mín
Fæææriiii
Taylor Marie kemur sér í frábæra stöðu en færið er heldur þröngt og hún setur boltann í hliðarnetið en líklega hættulegasta færið hingað til
19. mín
Ása Björg með fínustu tilraun af fyrirgjöf en Ashley er í stuði í dag og grípur þetta
18. mín
Sara Svanhildur kemur sér í góða stöðu en flaggið góða fer á loft!
15. mín
Taylor Marie, pressar hér tvisvar í röð markmanninn hjá Gri/Nja hana Stephanie, og hún endar á að setja hann útaf. Þær ætla greinilega að færa sig ofar
13. mín
Hrafnhildur brýtur svo af sér á sama stað, Harpa setur þetta fram en hún var ekki alveg að vanda sig nægilega
12. mín
Katrín Erla fer harkalega í Hrafnhildi Sölku en ekkert dæmt og þær fá innkast
11. mín
Isabelle brýtur á Júlíu, út á kannti, Birta þrumar þessu fram en Ashley er vel vakandi og grípur þetta fyrsta allra
10. mín
Birta Birgisdóttir tekur horn fyrir Gri/Nja, setur hann í svæðið þar er Sophia mætt í baráttuna en Ashley nær hins vegar að kýla boltan frá
6. mín
Eliie Coffield með fínan bolta á teiginn þar sem Hannah nær skallanum en hann er ekki nógu fastur og Ashley grípur hann örugglega í markinu
3. mín
Þær reyna að finna Ásu innfyrir en flaggið fer á loft
1. mín
Katrín fær boltan í hendina við miðjubogann, þær setja þetta á teiginn en ekkert kemur úr því.
1. mín
Leikur hafinn
Júlía Ruth sparkar leiknum af stað fyrir okkur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin eru komin á völlinn og þetta er allt eftir áætlun!
Grindavík/Njarðvík eru hvítar-svartar-hvítar og Framkonur eru bláar-hvítar-bláar
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Grindavík/Njarðvík
Gylfi gerir 5x breytingar á liði sínu frá 0-1 tapinu gegn Breiðablik í síðustu umferð. Í markið kemur glænýi markmaðurinn Stephanie Bukovec, Natasha, Birta, Sophia og Ása en úr liðinu fara þá Taylor Fox, Katrín Lilja, Emma, Hayden og Hildur Katrín er farin aftur í FH

Fram
Anton gerir einnig 3x breytingar á sínu liði. Inn í liðið koma Alda, Freyja Dís og Harpa en úr liðinu fara Una Rós, Hlín og fyrirliðinn Hildur María sem er í banni
Fyrir leik
Spámaður 17. umferðarinnar
Valgerður Ósk Valsdóttir, leikmaður Hauka, spáir í leikina sem eru framundan.

Mynd: Haukar

Grindavík/Njarðvík 4 - 2 Fram
Þetta verður fjörugur leikur og mikið af mörkum. Grindavík/Njarðvík eru sterkar á heimavelli og taka þetta 4-2. Fram munu hins vegar ekki gefa neitt eftir og verður staðan 3-2 þangað til Grindavík/Njarðvík skorar fjórða markið á 88 mínútu leiksins. Alda mun skora sitt níunda mark í deildinni, Harpa Helgadóttir skorar eftir að hafa setið hjá í seinustu umferð, og við hljótum að fá allavegana eitt mark frá Emma Nicole Philips.

Fyrir leik
Fyrri viðureignir
Liðin hafa mæst tvisvar áður í sumar, þá í deild og bikar.

Þær mættust í deildinni þann 13. júní sl. þar sem Grindavík/Njarðvík fór með 0-2 sigur á hólmi með mörkum frá Ellie Coffield og Tinnu Hrönn Einarsdóttur



Þá mættust liðin einnig í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þann 27. júlí þar sem Grindavík/Njarðvík fóru með 0-3 sigur af hólmi með mörkum frá Hildi Katrínu, Hönnuh og Natöshu.

Framkonur hafa því klárlega harma að hefna hér í kvöld.
Fyrir leik
Fram
Framkonur sitja fyrir þennan leik í 8. sætinu með 16 stig. Þremur stigum á eftir Grindavík/Njarðvík í 5. sætinu og tveimur stigum á eftir Þór/KA og Þrótti í 6. og 7. sætinu. Þær hafa svo einnig þriggja stiga forskot á Val sem situr í 9. sætinu.

Fram konur mættu FH á heimvelli í síðustu umferð þar sem þær töpuðu 4-6 gegn FH í ótrúlegum leik. Þar á undan töpuðu þær 2-0 gegn Þór/KA fyrir norðan sem batt enda á sigurgögnu þeirra í deildinni eftir hlé en þær höfðu unnu 4 leiki í röð og komið sér úr fallbaráttunni.

En það er heldur betur stutt á milli og töpuð stig í tveimur leikjum hefur sett þær aftur í fallbaráttu þær hljóta því að koma inn í þennan leik með það hugarfar að sigur sér algjör skylda ef þær ætla að gera tilraun til að komast í efri hlutann fyrir skiptinguna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík sitja fyrir þennan leik í 5. sætinu með 19 stig. Einu stigi á undan Þór/KA og Þrótti í 6. og 7. sætinu.

Þær mættu Breiðablik í síðustu umferð á Eikarvellinum þar sem þær lutu í lægra haldi 1-0. Fyrir það hins vegar sóttu þær frábæran 4-2 sigur á ÍBV í nýliðaslag þar sem Emma Philips skoraði fernu!

Þær vilja eflaust byggja á fínustu frammstöðum í síðustu leikjum og sækja sigur hér í kvöld á heimavelli. Það hjálpar allavega helling í baráttunni við að enda í efri hlutanum og gulltryggja veru sína í deild þeirra bestu á næsta ári!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins!
Á flautunni í dag verður Hallgrímur Viðar Arnarson og honum til halds og trausts verða Óliver Thanh Tung Vú og Elías Baldvinsson aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Guðmundur Halldórsson og eftirlitsmaður í kvöld er Kristján Halldórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá JBÓ vellinum þar sem Grindavík/Njarðvík tekur á móti Fram í 17. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.