Leik lokið!
ARNA SIF
Setur boltann yfir með síðustu spyrnu leiksins. Virkilega sterkur sigur hjá Valskonum!
94. mín
InnSigrún Ísfold Valsdóttir
ÚtÍsabella Sara Tryggvadóttir
Ísabella kom inn á og tekin aftur út af
94. mín
InnLauren Adrienne Lapomarda
ÚtMaría Dögg Jóhannesdóttir
90. mín
DRAMATÍK
Lillý Rut Hlynsdóttir (stoðsending: Margrét Brynja Kristinsdóttir)
Margrét Brynja fær boltann fyrir utan teig og lyftir honum á kollinn á Lillý Rut sem er við það að tryggja Val sigur á sínum gömlu félögum.89. mín
Ísabella Sara Tryggvadóttir með skot sem fer af varnarmanni og rétt framhjá. Valur fær horn.
87. mín
Sóley Edda Ingadóttir með skot yfir mark Þórs/KA.
84. mín
Gult spjald
María Dögg Jóhannesdóttir
83. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
80. mín
InnNadía Atladóttir
ÚtSonja Björg Sigurðardóttir
80. mín
InnKimberley Dóra Hjálmarsdóttir
ÚtKolbrá Una Kristinsdóttir
78. mín
Leikmenn Þór/KA leika boltanum á milli sín í kringum teig Vals. Boltinn endar hjá Huldu Ósk sem kemur sér inn á teiginn. Hún á skot í litlu jafnvægi og boltinn vel framhjá.
75. mín
Gult spjald
Erin Flurey
73. mín
Erin!
Erin Flurey í góðu færi en skólfar boltanum yfir. Hefði átt að gera betur þarna.
67. mín
Margrét Árnadóttir með fyrirgjöf en Bryndís Eiríksdóttir kemur boltanum í horn áður en Amalía Árnadóttir kemst í boltann.
64. mín
InnAmalía Árnadóttir
ÚtKaren María Sigurgeirsdóttir
62. mín
Mjög rólegt undanfarnar mínútur. Valskonur aðeins ofan á.
54. mín
InnMargrét Brynja Kristinsdóttir
ÚtGlódís María Gunnarsdóttir
54. mín
InnÍsabella Sara Tryggvadóttir
ÚtArnfríður Auður Arnarsdóttir
52. mín
Gult spjald
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
48. mín
Þór/KA með hornspyrnu á fjærstöngina. Arna Sif skallar inn á teiginn en skallinn frá Margréti Árnadóttur ekki góður og boltinn fer yfir markið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik. Þór/KA verið betri aðilinn en Valur fékk líklega besta færið hérna undir lokin þegar Sonja átti skalla framhjá.
44. mín
Nálægt
langbesta færi Valskvenna í kvöld. Sonja Björg Sigurðardóttir með skalla rétt framhjá.
43. mín
Þór/KA fékk tvær hornspyrnur í röð. Fyrst var smá darraðadans inn á teignum og síðan misheppnuð spyrna beint í hliðarnetið.
36. mín
Hulda Ósk Jónsdóttir með fyrirgjöf en boltinn fer í átt að marki og endar í slánni
32. mín
Arnfríður Auður að komast í gott færi en Arna Sif bjargar á síðustu stundu! Virkilega vel gert hjá fyrirliða Þórs/KA.
30. mín
Gult spjald
Helga Rut Einarsdóttir
29. mín
Erin Flurey með laglega takta, snýr af sér Kolbrá Unu inn á teignum og tekur skotið en boltinn fer í utanverða stöngina.
26. mín
Arnfríður Auður Arnarsdóttir með skot af löngu færi en boltinn vel frá markinu.
23. mín
Erin Flurey með skot en það er beint á Tinnu Brá.
21. mín
Þór/KA verið með yfirburði hingað til. Valskonur reyna að sækja að marki undanfarnar mínútur en komast ekki framhjá vörn Þórs/KA.
14. mín
Hætta inn á teig Vals eftir hornspyrnu sem endar með skoti frá Karen Huldu. Skotið í varnarmann og Valskonur koma boltanum frá.
11. mín
Libby Moore kemst inn í sendingu inn á miðjunni og sendir Erin Flurey í gegn en sendingin ekkii nægilega góð og Erin nær ekki valdi á boltanum.
9. mín
Karen María Sigurgeirsdóttir með skot af löngu færi en boltinn framhjá. Tinna Brá með þetta á hreinu, engin hætta.
7. mín
Rólegar fyrstu mínúturnar. Þór/KA aðeins ógnað en ekki mikil hætta skapast.
1. mín
Leikur hafinn
Hemakonur koma þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það er ein breyting á liði Þórs/KA sem vann Víking 3-0 í síðustu umferð. Karen María Sigurgeirsdóttir kemur inn fyrir Amalíu Árnadóttir.
Það eru fimm breytingar á liði Vals sem tapaði 3-2 gegn Þrótti í síðustu umferð. Tinna Brá Magnúsdóttir, Sóley Edda Ingadóttir, Arnfríður Auður Arnarsdóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir og Glódis María Gunnarsdóttir koma inn fyrir Vera Varis, Kimberley Dóru Hjálmarsdóttir, Ísabellu Söru Tryggvadóttir, Margréti Brynju Kristinsdóttir og Málfríði Önnu Eiríksdóttir.
Það eru fimm breytingar á liði Vals sem tapaði 3-2 gegn Þrótti í síðustu umferð. Tinna Brá Magnúsdóttir, Sóley Edda Ingadóttir, Arnfríður Auður Arnarsdóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir og Glódis María Gunnarsdóttir koma inn fyrir Vera Varis, Kimberley Dóru Hjálmarsdóttir, Ísabellu Söru Tryggvadóttir, Margréti Brynju Kristinsdóttir og Málfríði Önnu Eiríksdóttir.
Fyrir leik
Spáir útisigri
Valgerður Ósk Valsdóttir, leikmaður Hauka, spáir í leikina í umferðinni. Hún spáir útisigri hér í kvöld.
Þór/KA 1 - 2 Valur
Valskonur mæta með alvöru orku inn í leikinn og Ragnheiður kemur þeim yfir eftir 15 mínútna leik. Þór/KA hins vegar verið sterkar á heimavelli (töpuðu seinast heimaleik í maí) og jafna leikinn rétt fyrir hálfleiks flautið. Engin önnur en MB (Margrét Brynja) smáhrifavaldur skorar síðan sigurmarkið og 1-2 lokaniðurstaðan.
Þór/KA 1 - 2 Valur
Valskonur mæta með alvöru orku inn í leikinn og Ragnheiður kemur þeim yfir eftir 15 mínútna leik. Þór/KA hins vegar verið sterkar á heimavelli (töpuðu seinast heimaleik í maí) og jafna leikinn rétt fyrir hálfleiks flautið. Engin önnur en MB (Margrét Brynja) smáhrifavaldur skorar síðan sigurmarkið og 1-2 lokaniðurstaðan.

Fyrir leik
Dómarateymið
Bergvin Fannar Gunnarsson verður með flautuna í kvöld. Ásgeir Þór Ásgeirsson og Leyla Ósk Jónsdóttir verða honum til aðstoðar. Aðalsteinn Tryggvason er fjórði dómari og Bragi Bergmann er eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
Valur
Valskonur hafa verið í miklum vandræðum. Liðið er í næst neðsta sæti með 13 stig, þremur stigum frá fallsæti. Liðið vann sinn þriðja leik á tímabilinu fyrr í þessum mánuði þegar liðið vann Víking.

Fyrir leik
Þór/KA
Þór/KA hefur verið á góðu skriði eftir vonda byrjun á tímabilinu. Liðið safnaði tveimur stigum úr fyrstu sjö leikjunum. Liðið hefur nælt í 16 stig úr síðustu átta leikjum og er í 6. sæti með 18 stig.

Fyrir leik
Góða kvöldið
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Vals í Bestu deild kvenna. Leikurinn fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.




