Leik lokið!
RISASTÓR 0-1 sigur hjá Víking!
94. mín
ÚFFF
Víkingar eru bara nálægt því að gera útum leikinn, Thea skýlir boltanum og nær svo að renna honum fyrir markið en þær rétt missa af honum
90. mín
A.m.k 5 mínútur í uppbótartíma og áhorfendur beggja liða hvetja sitt lið áfram
90. mín
Áslaug Dóra!
Ingibjörg kemst í gott hlaup en Áslaug Dóra passar að ekkert gerist!
89. mín
Andrea Rán reynir skot utan af kanti en Telma er með þetta!
88. mín
TELMA VER ÞETTA!
Ásdís Karen Halldórsdóttir
87. mín
VÍTI!
Bergdís fellir Helenu inn í teig! Úfffff þetta er slæmt fyrir Víkinga
86. mín
InnSelma Dögg Björgvinsdóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
85. mín
Helena reynir skot af miðjum vallarhelmingi Víkings en það er alltof laust, það var ákveðin uppgjöf í þessu
84. mín
Víkingar fá horn og svo annað horn, taka seinna hornið stutt, bolti inn í en Steinunn nær honum svo
83. mín
boltinn inn fyrir og Helena Ósk með rosalegan sprett, hægir þó aðeins á sér og varnarmenn FH ná til hennar áður en hún nær að athafna sig eitthvað
79. mín
InnHelena Ósk Hálfdánardóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
78. mín
Hildur Katrín með horn fyrir FH en ekkert kemur úr því
76. mín
Ingibjörg með ágætis tilraun en Telma grípur þetta örugglega
75. mín
Arna Ísold reynir skot af löngu færi en þetta er bara æfingabolti fyrir Steinunni
72. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtNia Raisa Christopher
72. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtHrönn Haraldsdóttir
71. mín
Það virðist vera voða sambandsleysi í fremstu víglínu hjá FH, þær eru alveg úr takti, missa boltann og senda skrítnar sendingar á síðasta þriðjung
68. mín
Gult spjald
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
68. mín
Arna Ísold næli í horn fyrir Víkinga, Þórdís Hrönn tekur hornið, hann dettur á teiginn berst út og svo aftur inn á teiginn og FH konur eru stálheppnar að vera ekki tveimur mörkum undir!
66. mín
Enn eru FH konur að leita að jöfnunarmarkinu
Helena með fínustu tilraun en Telma skutlar sér niður og nær honum
64. mín
Bergdís með horn fyrir Víking en það fer ofan á þaknetið
63. mín
InnAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
61. mín
InnThea Rhode
ÚtJasmín Erla Ingadóttir
60. mín
nálææææægt!
Nia með lúmskt skot sem Telma missir í gegnum sig en nær honum aftur áður en hann rúllar inn
56. mín
Ásdís Karen nælir í horn fyrir FH en þær ná ekki að gera sér neinn mat úr henni
55. mín
Hildur Katrín tekur hornspyrnuna en ekkert kemur úr henni
55. mín
Helena með höööörkuskot sem Telma þarf að hafa sig alla við að verja!
54. mín
Birna Kristín reynir skot af löngu færi en það er hátt yfir
52. mín
Hildur Katrín og Ingibjörg spila úr horninu, Hildur reynir svo að koma honum áfram en gengur ekki
51. mín
Ingibjörg á hlaupinu reynir að koma sér í betri stöðu en Kristín Erla með frábæra tæklingu
49. mín
ÚFFFF
Darraðardans í teig Víkings, endar með skoti frá Helenu en aftur ver Telma vel
47. mín
Hildur Katrín með frábæran sprett finnur svo Ásdísi Karen sem lætur bara vaða en Telma með frábæra vörslu!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Nia og Hrönn sparka þessu aftur af stað fyrir okkur
45. mín
Hálfleikur
Víkingur leiða hér 0-1 í hálfleik
Nokkuð óvænt kannski þá leiða Víkingar
FH konur hafa vaðið í hálffærum en hafa hingað til ekki haft herslumuninn til að ná inn jöfnunarmarkinu! Eitt mark er þó svakalega lítið í fótbolta!
Víkingar hins vegar eru vel að þessu komnar, þær hafa verið að ógna líka og haldið sóknarmönnum FH í skefjum

Ásdís Karen tekur spyrnuna en hún er hátt yfir markið
45. mín
Gult spjald
Saana Emilia Tuomala
Stálheppin þarna að gefa ekki víti! stoppar Niu rétt áður en hún stígur inn í teiginn45. mín
hár bolti fram frá FH sem Nia reynir að pressa en Telma er mættust, pikkar hann upp og stendur svo bara eins og klettur þegar Nia nær ekki að stoppa og lendir á henni
40. mín

Hafliði Breiðfjörð er mættur að mynda!

38. mín
FH enn að ógna, Nia nær að koma sér í góða stöðu, klappar boltanum aðeins og mikið en boltinn berst svo til Ásdísar Karenar en Emma kemst í boltann á undan
37. mín
Helena tekur hornið fyrir FH, setur hann á miðjan teiginn þar sem Ásdís nær að flikka honum en Ingibjörg svo rétt missir af honum
35. mín
Víkingar með tvær hornspyrnur í röð svo sem enda þó með sendingu frá Þórdísi Hrönn útfyrir endalínu
34. mín
ÚFFF
Þá munaði nú bara litlu að Víkingar næðu að tvöfalda, Jasmín nær að setja boltann yfir Steinunni, en Deja kemur boltanum frá markinu
33. mín
FH reyna að finna jöfnunarmark
Ásdís Karen reynir skot af löngu færi en Telma grípur þennan örugglega
32. mín
FH konur komast á rönnið, þær eru þrjár á þrjár, Ingibjörg reynir að setja hann fyrir en of aftarlega fyrir bæði Niu og Ásdísi og skyndisóknin rennur út í sandinn
30. mín
Brotið á Ingibjörgu á miðjum vallarhelmingi Víkings, Helena tekur spyrnuna sem fer bara í gegnum allan pakkann og út fyrir endalínu á fjær
28. mín
Nia nælir í horn fyrir FH, Helena og Ingibjörg taka þetta stutt, en þetta heppnast ekki nægilega vel hjá þeim
22. mín
Arna Ísold gerir vel og finnur Bergdísi til hliðar við sig, hún kemur á hlaupin og klárar þetta frábærlega framhjá Steinunni Ernu í markinu

MAAAARK!
Bergdís Sveinsdóttir (stoðsending: Arna Ísold Stefánsdóttir)
Vel gert hjá Víkingum!Arna Ísold gerir vel og finnur Bergdísi til hliðar við sig, hún kemur á hlaupin og klárar þetta frábærlega framhjá Steinunni Ernu í markinu

20. mín
Birna Kristín brýtur af sér og er heppin að sleppa við spjald, þær voru við það að sleppa í skyndisókn
17. mín
InnHelena Maree Errington
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
Fyrsta skipting leiksins, vonandi ekkert alvarlegt að angra hana Hafrúnu Birnu
16. mín
OJJJJJ
Ingibjörg með rosalega takta nær að setja svo frábæran bolta fyrir markið en Emma Steinsen rétt nær að passa að Ásdís Karen setji ekki boltann í opið markið
15. mín
Bergdís með aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi FH setur boltann í hlaupaleiðina á nær, hann dettur þar niður áður en Steinunn í markinu nær honum.
14. mín
Dagný reynir að stinga boltanum inn á Þórdísi Hrönn en boltinn aðeins of fastur
11. mín
Nia reynir skotið af vinstra vítateigshorninu en Telma sér við henni
10. mín
Ásdís Karen með fínustu tilraun af markteignum en skotið er framhjá
6. mín
Hafrún Birna tekur horn fyrir FH, setur hann á fjær þar sem Deja nær skallanum en hann er rétt framhjá
5. mín
Ásdís Karen með hörku sendingu á Niu en hún eiginlega bara hittir ekki boltann 3 metrum frá markinu!
3. mín
Ingibjörg fínan sprett, nær að setja boltann fyrir en Ásdís Karen og Nia ekki nógu grimmar í teignum
2. mín
Aftur kemst Þórdís Hrönn í frábæra stöðu en skotið hennar er beint á Steinunni í markinu, þarna hefði hún átt að gera betur
2. mín
Víkingar eiga fyrstu sóknina, Þórdís Hrönn fær sendingu upp í horn, þar nær hún að athafna sig og kemur boltanum svo fyrir en þær ná ekki skallanum á markið
1. mín
Leikur hafinn
Jasmín sparkar þessu af stað fyrir okkur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast
Liðin eru komin út á völl og þetta fer að detta í gang!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
FH
Bræðurnir Guðni og Hlynur gera 5x breytingar á liði sínu frá 0-3 tapinu gegn Breiðablik í síðasta leik. Steinunn Erna kemur í markið í stað Aldísar og þá koma einnig inn í liðið Mackenzie, Nia, Birna Kristín og Hafrún Birna. Á bekkinn setjast Helena, Andrea Rán og Jónína, Ída marín er svo farin til Hammarby.
Þetta er síðasti leikur þeirra áður en þær mæta liði Apollon frá Kýpur í Evrópubikarnum á miðvikudaginn nk. því kannski eðlilegt að verið sé að hvíla leikmenn og gefa öðrum séns.
Víkingur R.
Einar gerir einnig 2x breytingar á sínu liði frá 0-3 tapi gegn Þór/KA í síðustu umferð. Inn í liðið kemur Emma og Arna Ísold en úr liðinu fara Selma Dögg og Jóhanna Elín

Spámaður 17. umferðarinnar
Valgerður Ósk Valsdóttir, leikmaður Hauka, spáir í leikina sem framundan eru.

FH 1 - 0 Víkingur R.
Lokaður leikur allan tímann og FH konur sakna strax Ídu í sóknarleik sínum. Mögulega nokkrir leikmenn hvíldir hjá FH fyrir evrópuleikinn í næstu viku en Elín Björg full af orku ræður úrslitum og skorar sigurmark FH seint í leiknum og lokaniðurstaðan 1-0.

Fyrri viðureign
Liðin mættust 13. júní sl. þar sem FH fór með 2-5 sigur af hólmi.
Freyja Stefánsdóttir skoraði þá fyrsta mark leiksins fyrir Víkinga en Nia og Ingibjörg sáu til þess að FH færi með 1-2 forystu inn í hálfleik.
Í seinni hálfleik juku Deja og Thelma Lóa við forystu FH áður en Jóhanna Elín minkaði muninn í 2-4. Andrea Rán hins vegar rak smiðshöggið með fimmta marki FH þegar tíu mínútur voru til leiks loka.

Víkingskonur róa lífróður þessa dagana en þær sitja á botni deildarinnar með 11 stig. Tveimur stigum á eftir Val í 9. sætinu og fimm stigum á eftir Fram í 8. sætinu.
Liðið hefur unnið þrjá leiki og var það í byrjun sumars, gegn Stjörnunni, Fram og kom síðasti sigurleikurinn gegn Þór/KA þann 30. maí sl. frá þeim tíma hafa þær náð í tvö jafntefli, 1-1 gegn Grindavík/njarðvík í júní og svo gegn Þrótti í lok júlí.
Þær mættu Þór/KA í síðustu umferð þar sem þær steinlágu 0-3 á eigin heimavelli. Nú mæta þær FH liðinu sem tapaði illa í síðasta leik og það er spurning hvort Víkingskonur geti notfært sér það.
Það er stutt á milli í fallbaráttunni og hvert stig og/eða mark skorað og fengið á sig getur skipt sköpum þegar búið er að telja öll stigin upp úr pokanum!

FH konur sitja fyrir þennan leik í 2. sætinu með 33 stig, þremur stigum minna en Breiðablik sem tapaði stigum í gær. FH á því aftur séns á því að komast á toppinn ef þær vinna í dag.
FH konur lutu heldur betur í lægra haldi fyrir einmitt Breiðablik 0-3 í síðasta leik sem þó var frestaður leikur úr 15. umferðinni. Þar sá FH liðið lítið til sólar og var ólíkt sjálfu sér en þetta var fyrsti leikur þeirra í sumar þar sem þær náðu ekki að skora.
Eftir leikinn kom svo í ljós að besti leikmaður liðsins, Ída Marín Hermannsdóttir er farin til Hammarby og skilur eftir sig stórt skarð. Það er því spurning hvernig FH liðið mætir til leiks í dag? örlítið brotnar eftir síðasta leik og nýjustu tíðindi eða mæta þær dýrvitlausar? Guð hjálpi Víkingum ef sá háttur er á þeim!

Dómarateymi kvöldsins!
Á flautunni í kvöld verður Ásmundur Þór Sveinsson og honum til halds og trausts verða Óliver Thanh Tung Vú og Pálmi Víðir Bjarnason aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Elmar Svavarsson og eftirlitsmaður í kvöld er Sigursteinn Árni Brynjólfsson.

Fjórði dómari er Elmar Svavarsson og eftirlitsmaður í kvöld er Sigursteinn Árni Brynjólfsson.

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Kaplakrikavellinum þar sem FH tekur á móti Víking R. í 17. umferð Bestu deildarinnar.
Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

Víkingar hins vegar að fá gríðarlega mikilvæg stig í botnbaráttunni! Frábærlega vel gert hjá þeim í kvöld!
Takk annars fyrir samfylgdina! Viðtöl og skýrsla kemur ínn síðar í kvöld